27. júní 2025
27. júní 2025
Uppbygging í takt við þörf: Hægir á vexti í Hafnarfirði
- Áætlað er að íbúum í Hafnarfjarðarbæ muni fjölga um 5.549 manns á næstu 5 árum, sem er fjölgun um 17,6 prósent.
- Uppbygging dregst saman en er enn yfir meðaltali síðastliðins áratugs.
- Úthlutunaráætlun sveitarfélagsins gefur til kynna að nægt framboð verði á lóðum til að mæta íbúðaþörf á næstu árum.
Hafnarfjarðarkaupstaður hefur staðfest endurskoðaða húsnæðisáætlun fyrir árið 2025. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að íbúum sveitarfélagsins muni fjölga um 5.549 manns (18%) á næstu 5 árum og 9.407 manns (30%) á næstu tíu árum. Til samanburðar hefur íbúum fjölgað um nærri 9% á síðustu 5 árum og um 15% á síðastliðnum 10 árum.
Húsnæðisáætlun ársins 2024 ofmat fólksfjölgunina það ár um 591 manns, eða 39%. Þrátt fyrir það reyndist fjölgunin sú mesta í yfir 15 ár. Endurskoðuð áætlun fyrir árið 2025 gerir þó ráð fyrir enn meiri fjölgun í ár heldur en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Á móti hefur spá um fólksfjölgun á komandi árum verið lækkuð verulega og því er gert ráð fyrir hægari og minni fjölgun til lengri tíma litið.
Spáð er áframhaldandi vexti
Samkvæmt endurskoðaðri húsnæðisáætlun er gert ráð fyrir að þörf verði fyrir um 490 nýjar íbúðir á ári að meðaltali næstu tíu árin, sem jafngildir 2.650 íbúðum á næstu fimm árum og alls 4.903 íbúðum yfir tíu ára tímabil. Til samanburðar hefur árleg fjölgun íbúða í Hafnarfirði verið um 292 íbúðir á ári á síðustu fimm árum og að meðaltali og 204 íbúðir á ári síðastliðin tíu ár. Ný spá gerir hins vegar ráð fyrir minnkandi þörf fyrir nýjar íbúðir á síðari hluta spátímabilsins.
Íbúðauppbygging í samræmi við þörf
Samkvæmt talningu HMS voru 1.088 íbúðir í byggingu í mars 2025. Það voru um 27 prósent færri íbúðir en á sama tíma í fyrra og 36 prósent færri en á sama tíma fyrir tveimur árum. Á myndinni hér að neðan má sjá að flestar íbúðir í byggingu voru á stigum 3 til 5. Stig 3 vísar til þess að burðarvirki hússins er risið, stig 4 til þess að mannvirkið sé fokhelt og stig 5 að það sé tilbúið til innréttinga.
Fjöldi íbúða sem teljast í byggingu dugir til að mæta þeirri íbúðaþörf sem sveitarfélagið áætlar að verði á næstu tveimur árum. Talsverð uppbygging hefur átt sér stað í sveitarfélaginu á síðustu árum, sem náði hápunkti í mars 2023 þegar fjöldi íbúða í byggingu tvöfaldaðist á milli ára. Hins vegar má sjá á myndinni hér fyrir neðan að hægst hefur talsvert á uppbyggingu síðan hápunktinum var náð.
Áherslur Hafnarfjarðarbæjar í húsnæðismálum
Hafnarfjarðarbær leggur ríka áherslu á að skapa fjölbreytt og aðlaðandi búsetuskilyrði í nýjum og núverandi hverfum bæjarins. Eitt af meginmarkmiðum sveitarfélagsins er að tryggja fjölbreytt framboð húsagerða í nýjum íbúðahverfum, þannig að þau endurspegli ólíkar þarfir íbúa og stuðli að fjölbreyttu mannlífi. Í allri skipulagningu er þess gætt að úthlutun lóða geri ráð fyrir fjölbreyttum húsagerðum og að hlutfall þeirra taki mið af eftirspurn hverju sinni.
Ný íbúðahverfi Hafnarfjarðar eru skipulögð á suðausturjaðri bæjarins og tengjast við núverandi byggð, einkum hverfin á Völlum og Áslandi. Uppbyggingin kallar á markvissa þróun grunnþátta eins og skóla, leikskóla, samgönguinnviða og gatnakerfis. Þar gegnir Ásvallabraut lykilhlutverki sem ný tengibraut milli hverfa og er talið brýnt að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar í gegnum bæinn til að styrkja tengingar og bæta umferðarflæði.
Lóðaframboð í Hafnarfirði í takt við íbúðaþörf næstu ára
Hafnarfjarðarkaupstaður hefur nú skipulagt lóðir fyrir 4.439 íbúðir til úthlutunar á næstu fimm árum og alls 6.519 íbúðir til næstu tíu ára, sem samsvarar að meðaltali 651 íbúð á ári. Áætluð íbúðaþörf á sama tímabili gerir sem fyrr segir ráð fyrir um 490 íbúðum á ári.
Á næstu tveimur árum er gert ráð fyrir að þörfjin verði rúmlega 1.118 íbúðir og ætti fyrirhugað lóðaframboð að duga vel til að mæta þörf fyrir nýjar íbúðir í Hafnarfirði, að því gefnu að úthlutunaráætlanir sveitarfélagsins gangi eftir.