27. júní 2025
27. júní 2025
Hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta frá 1. september 2025
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gert breytingu á reglugerð um húsnæðisbætur sem felur í sér hækkun á frítekjumörkum vegna árlegra tekna. Frá og með 1. september 2025 munu hærri frítekjumörk gilda við útreikning húsnæðisbóta.
Endurreikningur húsnæðisbóta fer fram um miðjan septembermánuð. Umsækjendur fá bréf á island.is með niðurstöðum endurreiknings ef breyting hefur orðið á bótarétti frá síðustu tekjuáætlun.
Eftir breytingarnar verða frítekjumörkin eftirfarandi miðað við árstekjur:
Fjöldi heimilismanna | Frítekjumörk fyrir breytingar | Frítekjumörk eftir breytingar |
---|---|---|
1 | 5.935.476 kr. | 5.977.276 kr. |
2 | 7.894.184 kr. | 7.949.777 kr. |
3 | 9.199.988 kr. | 9.264.778 kr. |
4 | 9.971.600 kr. | 10.041.824 kr. |
5 | 10.802.567 kr. | 10.878.642 kr. |
6 eða fleiri | 11.633.533 kr. | 11.715.461 kr. |
Fyrsta greiðsla húsnæðisbóta eftir þessar breytingar verður 1. október næstkomandi fyrir septembermánuð. Markmiðið með breytingunni er að koma til móts við þær breytingar sem verða á örorku- og endurhæfingargreiðslum frá 1. september 2025.