27. júní 2025
27. júní 2025
Nýjar námskrár og kennsluáætlun samþykkt af Fagráði Brunamálaskólans
Fagráð Brunamálaskólans kom saman til fundar á Sauðárkróki í maí síðastliðnum. Fagráðið er Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til ráðgjafar um fagleg málefni skólans. Samband íslenskra sveitarfélaga, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Félag slökkviliðsstjóra eiga öll fulltrúa í fagráðinu og skipar ráðherra formann fagráðsins.
Á fundinum fór fagráðið meðal annars yfir drög að nýjum námskrám fyrir bæði framhaldsnám slökkviliðsmanna og nám fyrir stjórnendur á vettvangi. Jafnframt var lögð fram kennsluáætlun skólaársins 2025–2026 ásamt því að fagráðið setti starfsáætlun fyrir skólaárið 2025–2026.
Fundurinn gekk vel og ríkti góð samstaða um meginlínur mála. Samþykkt var að gera tilteknar breytingar á kynntum námskrám og leggja þær í frekara samráð við helstu fagaðila, þar á meðal Félag slökkviliðsstjóra á Íslandi og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Á meðan verður áfram unnið að lykilverkefnum í tengslum við endurskipulagningu Brunamálaskólans samkvæmt núverandi skipulagi til að tryggja nauðsynlegan framgang verkefnisins.
Skólaárið 2025-26 (birt með fyrirvara um breytingar):
Námskeið á haustönn 2025:
- Fjórar námslotur vegna grunnnáms slökkviliðsmanna (verklegar staðlotur með bóklegum undanfara á kennsluvef, auglýst síðar)
- Framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn (auglýst síðar)
- Fjórar námslotur vegna stjórnendanáms – vettvangsstjórn fyrri hluti: Suðurland, Vesturland, Norðurland og Austurland. Verklegar staðlotur með bóklegum undanfara á kennsluvef, auglýst síðar)
- Eldvarnaeftirlit námskeið I – áætlað í nóvember
- Stjórnendanám fyrir stjórnendur slökkviliða (auglýst síðar)
- Eldvarnaeftirlit endurmenntun (auglýst siðar)
- Námskeið fyrir stjórnendur (samstarfsverkefni með LSOS) – 16. október
Námskeið á vorönn 2026:
- Fjórar námslotur vegna grunnnáms slökkviliðsmanna (verklegar staðlotur með bóklegum undanfara á kennsluvef, auglýst síðar)
- Framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn (auglýst síðar)
- Fjórar námslotur vegna stjórnendanáms – vettvangsstjórn fyrri hluti: Suðurland, Vesturland, Norðurland og Austurland. Verklegar staðlotur með bóklegum undanfara á kennsluvef, auglýst síðar)
- Eldvarnaeftirlit námskeið II – áætlað í febrúar
- Eldvarnaeftirlit námskeið III – áætlað í apríl/maí
- Stjórnendanám fyrir stjórnendur slökkviliða (auglýst síðar)