27. júní 2025
27. júní 2025
HMS hefur lokið áætlun eignamarka jarða á stórum hluta Norðurlands
HMS hefur frumkvæði að kortlagningu fasteigna sem ekki hafa hnitsetta afmörkun í landeignaskrá og nýtir opinber gögn til að áætla legu eignamarka. Verkefnið er nú komið vel á veg og hafa eignamörk um 1.720 jarða á Norðurlandi verið áætluð og birt í landeignaskrá.
Fyrr á árinu sendi HMS eigendum jarðanna bréf þess efnis að drög að áætluðum eignamörkum væru komin í birtingu og að aðilar gætu kynnt sér drögin í vefsjá landeignaskrár. Aðilar höfðu sex vikur til að bregðast við og senda HMS athugasemdir um áætlaða legu einstakra eignamarka.
Frá því að HMS tók við málaflokki fasteignaskrár hefur stofnunin unnið markvisst að uppbyggingu landeignaskrár þannig að hún geti þjónað sem heildstætt upplýsingakerfi um eignarhalds lands á Íslandi. Í upphafi árs 2023 var um 29% flatarmáls Íslands með afmörkun í landeignaskrá. Hlutfallið jókst í 39% árið 2024 og árið 2025 er það komið upp í 54% með birtingu áætlaðra eignamarka á stórum hluta Norðurlands.
Næsta svæði sem tekið verður til yfirferðar er Vestfirðir og gert er ráð fyrir að drög að áætluðum eignamörkum á því svæði verði kynnt landeigendum síðar á þessu ári. Á næstu árum er svo er ráðgert að vinna Norðausturland að Langanesi, Suðausturland, Austurland, Vesturland, og enda svo á Suðurlandi og Suðvesturlandi árið 2028.
Fyrr á árinu hélt HMS fjölsóttan fund sem bar yfirskriftina „Hver á Ísland? Eignarhald og afmörkun jarða“. Á fundinum var farið yfir ástæður verkefnisins.