25. júní 2025
26. júní 2025
Fjöldi húseigna vantryggðar á Íslandi
- Fjöldi húseigna á Íslandi eru vantryggðar komi til brunatjóns sökum of lágs brunabótamats þar sem húseigendur óska ekki eftir endurmati
- Húseigendur virðast ekki nægilega upplýstir um að óska eftir endurmati brunabótamats
- Fyrir flest heimili er húseignin langstærsta fjárfestingin og því er mikið undir að vera með húseignina rétt tryggða
Fjöldi húseigna á Íslandi eru vantryggðar komi til brunatjóns sökum of lágs brunabótamats að mati HMS. Heilt yfir megi gera ráð fyrir að brunabótamat húsnæðis á Íslandi sé vanmetið um 4-8%, vegna skorts á endurmati í kjölfar viðhalds og framkvæmda. Í sumum tilfellum er vanmatið mun meira, til dæmis ef um er að ræða eldri hús og einbýli. Þar er ekki óvenjulegt að brunabótamatið sé tugmilljónum króna of lágt.
Húseigendur virðast almennt ekki upplýstir um að þeir þurfi sjálfir að óska eftir endurmati brunabótamats í kjölfar framkvæmda. Ef farið er í stærri framkvæmdir þar sem heilum byggingarhlutum er skipt út eða einhverju bætt við eignina getur verið ástæða til að endurmeta brunabótamatið. Þetta hefur áhrif á vátryggingarverðmæti hússins og fæst ekki bætt nema óskað hafi verið eftir nýju brunabótamati. Telji húseigendur að brunabótamat sé vanmetið er hægt að sækja um endurmat. Nánar um endurmat brunabótamats.
Vegvísir um bætta framkvæmd brunabótamats
HMS stóð fyrir opnum fundi í morgun þar sem nýr vegvísir um bætta framkvæmd brunabótamats var kynntur. Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS kynnti niðurstöður greiningar stofnunarinnar og þá fjallaði Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, um brunatryggingar og brunatjón sem nemur milljörðum króna árlega en hún fagnaði framtaki HMS að taka brunabótamatið til endurskoðunar.
Vegvísir að brunabótamati 2025
Bætt framkvæmd brunabótamats
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpaði einnig fundinn og sagði hann brunabótamat vera afar gamalt fyrirbæri í íslensku samfélagi en um leið mikilvægan hluta af innviðum landsins. „Það þarf að halda brunabótamatinu við rétt eins og öðrum innviðum. Með aukinni velmegun hafa húsin stækkað og meðvitund fólks um áhættuþættina líka aukist. Um brunabótamatið gilda skýrar reglur en þær hafa ekki alveg fylgt nútímanum. Fólk er almennt ekki meðvitað um að tilkynna uppfærslur á húsnæði sínu og það er mjög jákvætt frumkvæði, sem HMS er að sýna, að vekja fólk til umhugsunar hvort það sé að fullu tryggt. Þetta er vegferð sem við förum í sameiginlega, HMS og ríkisstjórnin. Við munum hugsanlega skoða einhverjar breytingar á lagaumgjörðinni til viðbótar við að fólk óski eftir endurmati hjá HMS. En fyrsta skrefið er að benda fólki á að það sé mögulega vantryggt.“
Upptaka af fundi
Verkefnin framundan
Að mati HMS er brýnt að á næstu misserum verði lögð áhersla á að endurskoða umhverfi brunabótamats með yfirferð laga og reglugerða, endurgera tækniumhverfið sem notað er við framkvæmdina en umfram allt stuðla að vitundarvakningu meðal almennings um mikilvægi þess að brunavirði húseigna sé sem réttast.
Hér á eftir eru þau átta verkefni sem HMS hyggst leggja áherslu á til að bregðast við og þróa málaflokkinn áfram.