Gjaldskrá HMS
Gjaldskrá HMS
Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 16. gr. laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar nr. 137/2019, 52. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, 38. gr. a laga um brunavarnir nr. 75/2000 og 24. gr. laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001.
Þannig samþykkt á fundi stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þann 22. ágúst 2024.
Útlán og stofnframlög
Hér má nálgast gjaldskrá fyrir verkefni og þjónustu HMS. Gildir frá 1. janúar 2024.
1.1. Lántökugjald einstaklinga 58.500 kr.*
1.2. Lántökugjald húsnæðisfélaga Allt að 1%**
1.3. Lántökugjald sveitarfélaga Allt að 1%**
1.4. Lántökugjald leigufélaga Allt að 1%**
* Þó ekki hærra en 1% af lánsfjárhæð eða 0,5% vegna lána til sérþarfa. Lántökugjald er fellt niður hjá fyrstu kaupendum af láni á 1. veðrétti.
** Lántökugjald á lánum til lögaðila geta samkvæmt gjaldskrá stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar numið allt að 1% af lánsfjárhæð, en þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 2.500.000,- vegna hverrar lánveitingar.
2.1. Greiðsluáskorun 8.100 kr. +vsk.
2.2. Nauðungarsölubeiðni 3.250 kr. +vsk.
2.3. Kröfulýsing í uppboðsandvirði 8.100 kr. +vsk.
2.4. Tilkynninga- og greiðslugjald vegna stofnun gjalddaga 150 kr.
2.5. Heimsendur greiðsluseðill 280 kr.
2.6. Milliinnheimtubréf send eftir 10, 30 og 50 daga vanskil, kostnaður fyrir hvert bréf og leggst á hvert lán. 1.050 kr.
3.1 Skuldbreyting 3.250 kr.
3.2. Veðleyfi 5.500 kr.
3.3. Veðbandslausn 5.500 kr.
3.4. Veðflutningur 11.000 kr.
3.5. Yfirtaka lána 11.000 kr.
3.6. Uppgreiðsla lána annarra en fyrirtækja 3.250 kr.
3.7. Umsýsla lána ef 14 daga skilaréttur er nýttur 11.000 kr.
3.8. Aðrar breytingar af skilmálum 3.250 kr.
3.9. Umsýslugjald vegna uppgreiðslu hlutdeildarlána 11.000 kr.
4.0. Endurrukkaður útlagður kostnaður vegna þinglýsingar skjala 2.700 kr.
4.1. Greiðslumat er framkvæmt í samstarfi við Creditinfo og er gjald vegna greiðslumats innheimt skv. gjaldskrá Creditinfo hverju sinni.
4.2. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að krefjast greiðslu vegna útlagðs kostnaðar vegna vottorða og gagna sem aflað er annars staðar frá, s.s. veðbandsyfirlits fasteignar, skuldastöðuskrá o.fl. Þá er einnig heimilt að krefjast greiðslu útlags kostnaðar vegna innheimtuaðgerða sem unnar eru af utanaðkomandi aðilum í samræmi við þjónustusamninga sem stofnunin hefur gert við viðkomandi aðila. Sem dæmi má nefna kostnað vegna birtingar greiðsluáskorunar, nauðungarsölugjald til ríkissjóðs og innheimtukostnað frá utanaðkomandi innheimtustofnunum.
4.3. Upp- og umframgreiðslugjald vegna útlána til lögaðila miðast við núvirt greiðsluflæði frá greiðsludegi fram að vaxtaendurskoðunardegi eða lokagjalddaga. Uppgreiðslugjald sjóðsins tekur mið af kostnaði Húsnæðissjóðs við uppgreiðslu fjármögnunar til ríkissjóðs.
Bruna- og mannvirkjamál
5.1. Námskeiðsgjald fyrir byggingarstjóra 23.600 kr.
5.2. Próftökugjald fyrir byggingarstjóra 23.600 kr.
5.3. Námskeiðsgjald fyrir hönnuði 70.900 kr.
5.4. Próftökugjald fyrir hönnuði 41.300 kr.
5.5. Námskeiðsgjald fyrir þjónustuaðila brunavarna 13.000 kr.
Gjaldið skal greitt við upphaf námskeiðs.
6.1. Byggingarstjórar
6.1.1. Útgáfa starfsleyfis 13.000 kr.
6.1.2. Endurnýjun starfsleyfis 13.000 kr.
6.1.3. Endurskoðun og breyting á starfsleyfi 13.000 kr.
6.2. Skoðunarstofur
6.2.1. Útgáfa starfsleyfis 41.000 kr.
6.2.2. Endurnýjun starfleyfis 18.900 kr.
6.2.3. Endurskoðun og breyting starfsleyfis 18.900 kr.
6.3. Þjónustuaðilar brunavarna
6.3.1. Útgáfa starfsleyfis 41.000 kr.
6.3.2. Endurnýjun starfsleyfis 18.900 kr.
6.3.3. Endurskoðun og breyting starfsleyfis 18.900 kr.
Gjaldið skal greitt við útgáfu starfsleyfis. Hafi vinna við úttekt á aðstöðu vegna starfsleyfis í för með sér meiri kostnað en nemur gjaldi skv. grein þessari er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu og ferðakostnað skv. 9. gr. eða annan útlagðan kostnað skv. framlögðum reikningum. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu.
7.1. Hönnuðir 12.000 kr.
7.2. Iðnmeistarar 12.000 kr.
7.3. Slökkviliðsmenn 12.000 kr.
7.4. Rafverktakar,(iðnmeistara og hönnuða) 12.000 kr. *
*Gjaldið skal greitt við útgáfu löggildingar og er innheimt skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/199.
8.1. Byggingarleyfi og byggingarheimild
8.1.1. Lágmarksgjald við móttöku umsóknar um byggingarleyfi eða byggingarheimild 13.000 kr.
8.1.2. Endurnýjun byggingarleyfis eða byggingarheimildar 13.000 kr.
8.1.3. Sé þörf á yfirferð hönnunargagna við endurnýjun skal sú vinna greidd sérstaklega skv. 9. gr
8.1.4. Byggingarleyfisgjald fyrir nýbyggingu eða viðbyggingu kr. 124 fyrir hvern m3 . Rúmmetragjald skal reikna af brúttórúmmáli, sbr. ákvæði ÍST 50.
8.2. Framkvæmdaleyfi
8.2.1. Lágmarksgjald við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi 13.000 kr.
8.3. Stöðuleyfi
8.3.1. Umsókn um stöðuleyfi 13.000 kr.
8.4. Móttaka gagna vegna tilkynningaskyldra framkvæmda 13.000 kr.
8.5. Yfirferð uppdrátta og annarra hönnunargagna:
8.5.1. Burðarþols-, lagna og séruppdrættir aðalhönnuða.
8.5.2. Breytingar á innra skipulagi.
8.5.3. Slökkvikerfi. Gjald skv. grein þessari skal miðast við vinnuframlag og tímagjald skv. 9. gr. og skal áætlun um kostnað kynnt við upphaf vinnu.
8.6. Úttektir og vottorð:
8.6.1. Lágmarksgjald vegna áfangaúttektar 13.000 kr.
8.6.2. Lágmarksgjald vegna öryggisúttektar 23.600 kr.
8.6.3. Lágmarksgjald vegna lokaúttektar 35.400 kr.
8.6.4. Lágmarksgjald vegna stöðuskoðunar 11.800 kr.
8.6.5. Lágmarksgjald vegna byggingarstjóraskipta 23.600 kr.
8.6.6. Gjald fyrir vottorð og staðfestingu á úttektum skv. liðum a-e. 11.800 kr.
8.7. Gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa
8.7.1. Lágmarksgjald vegna úttektar á gæðastjórnunarkerfum 44.800 kr. byggingarfulltrúa
8.8. Gæðastjórnunarkerfi þjónustuaðila brunavarna
8.8.1. Lágmarksgjald vegna úttektar á gæðastjórnunarkerfum 44.800 kr. þjónustuaðila brunavarna
8.9. Staðfesting á nothæfi byggingarvöru með tilliti til brunaþols og brunaeiginleika byggingarvöru
8.9.1. Lágmarksgjald vegna staðfestingar á nothæfi 44.800 kr.
8.10. Útmælingar á mannvirkjum
8.10.1 Lágmarksgjald vegna gagnkvæmrar viðurkenningar 44.800 kr.
HMS er heimilt að krefjast greiðslu vegna kostnaðar við utanaðkomandi sérfræðiráðgjöf sem þörf er á tengslum við mat á gögnum sem liggja til grundvallar umsókn, en þó aðeins að því marki sem lágmarksgjaldið nægir ekki til að greiða heildarkostnað vegna afgreiðslu umsóknarinnar. Kostnaður vegna utanaðkomandi sérfræðiráðgjafar skal vera í samræmi við þjónustusamninga sem HMS hefur gert við viðkomandi aðila. Þegar ljóst er að þörf er á utanaðkomandi aðstoð við mat á gögnum skal umsækjanda um gagnkvæma viðurkenningu gerð grein fyrir líklegum kostnaði vegna hennar í samræmi við áætlun sem HMS hefur fengið frá þeim aðila sem leitað verður til. Gjald skv. þessum lið skal greitt við útgáfu yfirlýsingar HMS um gagnkvæma viðurkenningu gagna.
8.11 Útmælingar á mannvirkjum
Gjald fyrir útmælingu mannvirkja skal miðast við vinnuframlag og skal ferðakostnaður og tímagjald innheimt skv. 9. gr., en annar útlagður kostnaður Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar skv. framlögðum reikningum. Áætlun um kostnað vegna útmælingu skal gefin út og kynnt við upphaf vinnunnar. Gjaldið skal greitt við lok vinnunnar.
Hafi úttekt eða vinna við útgáfu leyfa, vottorða, úttekta o.fl. skv. grein þessari í för með sér meiri kostnað en nemur gjaldi er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 9. gr., ferðakostnað skv. 9. gr. og annan útlagðan kostnað skv. framlögðum reikningum. Þegar ljóst er að þörf er á umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu og skal reikningur gefinn út þegar úttekt eða vinnu er lokið.
Önnur gjöld samkvæmt þessari grein skulu greidd við upphaf úttektar eða vinnunnar.
9.1. Vinna sérfræðings á klst. 11.500 kr.
9.2. Vinna fagritara á klst. 6.330 kr.
9.3. Ljósrit og önnur endurrit 1.640 kr.
9.4. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytisins.
9.5. Tímagjald vegna tækniþjónustu við veitingu útlána 11.500 kr.
10.1. Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er 14 dögum eftir útgáfu reiknings.
10.2. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af innheimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.
10.3. Gjalddagar einstakra gjalda skv. gjaldskrá þessari eru eftirfarandi:
10.3.1. Gjalddagi lágmarksgjalds vegna byggingarleyfis er við mótttöku umsóknar og gjalddagi byggingarleyfisgjalds við útgáfu byggingarleyfis en þó áður en leyfi er gefið út. Dragi umsækjandi umsókn sína til baka eða umsókn er synjað er lágmarksgjald ekki endurgreitt. Falli byggingarleyfishafi frá notkun byggingarleyfis eða byggingarleyfi fellur úr gildi er lágmarksgjald og byggingarleyfisgjald ekki endurgreitt.
10.3.2. Gjalddagi úttektargjalda áfangaúttekta er við útgáfu byggingarleyfis en þó áður en leyfi er gefið út.
10.3.3. Vottorð og staðfestingar á úttektum skulu greidd við afhendingu þeirra.
10.3.4. Gjalddagi skoðunargjalds er samhliða beiðni um skoðun.
10.3.5. Gjalddagi annarra gjalda skv. gjaldskrá þessari eru skv. ákvæðum um einstök gjöld.
10.3.6. Gjöldum skv. 51. og 52. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laganna.
11. Lögmælifræði - markaðseftirlit
HMS sinnir verkefnum sem Neytendastofa hafði með höndum m.a. markaðseftirliti og öðrum verkefnum á sviði mælifræði. Gjöld tengd þessum verkefnum eru ekki ákvörðuð af HMS heldur á grundvelli laga um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur nr. 87/2018 og laga um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn nr. 91/2006. Nánar um gjaldtöku er vísað í eftirfarandi reglugerð, auglýsingu og gjaldskrár sem settar eru á grundvelli framangreindra laga:
1. Reglugerð nr. 992/2022 um tilkynningar um markaðssetningu, auk leyfisveitinga, og innihaldsefni nikótínvara, rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur sem innihalda nikótín
2. Auglýsing nr. 465/2018 um gjald vegna þátttöku á vigtarmannanámskeiðum í Reykjavík
3. Gjaldskrá nr. 186/2009 fyrir leyfisveitingu Neytendastofu fyrir innra eftirlit með löggildingarskyldum mælitækjum
4. Gjaldskrá nr. 935/2007 fyrir löggildingargjöld á mælitækjum
Löggilding vigtarmanna 12.000 kr. *
Bráðabirgðalöggilding vigtaramanna 12.000 kr. *
*Gjaldið er skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991 eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram.
Viðurkenning og skráning á nafnastimpli 10.000 kr.**
Eftirlitsgjald 12.000 kr.**
**Gjaldið er skv. 12. gr. laga um eðalmálma nr. 77/2002
Útseld ráðgjafar- og sérfræðiþjónusta***
Sérfræðingur I 22.880 kr.
Sérfræðingur II 19.880 kr.
*** Gjaldið er skv. auglýsingu nr. 256/2019 um prófunar og kvörðunarþjónustu Neytendastofu.
Fasteignaskrá, fasteignamat og brunabótamat
12.1. Gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta.
Sveitarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda. Skal gjaldið nema 0,0060% af heildarfasteignamati í viðkomandi sveitarfélagi 31. desember ár hvert. Gjaldið skal innheimt árlega í janúarmánuði.
12.2. Gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi.
Vátryggingafélög skulu greiða gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi. Skal gjaldið nema 0,00021% af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá viðkomandi vátryggingafélagi í lok hvers mánaðar. Gjaldið skal innheimt mánaðarlega.
12.3. Gjald fyrir stofnun fasteignar. Gjald fyrir stofnun nýrrar fasteignar í fasteignaskrá kr. 35.200
Auk gjalds fyrir aðgang að upplýsingum skv. ákvæðinu í gr. 13.1, skal greiða einingaverð, sbr. gr. 13.2, 13.3 og 13.4.
13.1. Aðgangur að upplýsingum úr fasteignaskrá
Gjald fyrir aðgang að upplýsingum úr fasteignaskrá er sem hér segir:
Mánaðarlegt þjónustugjald vefþjónustu og vefuppflettingar kr. 5.100
Stofngjald vefþjónustu og FTP gagnaveitu kr. 85.200
Gjald fyrir breytingar rafrænna skilríkja kr. 8.640
13.2. Einingaverð úr fasteignaskrá Greiða skal einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá. Svæðin eru:
a. mannvirkja- og lóðasvæði,
b. matssvæði,
c. eigendasvæði.
Einingaverð er miðað við fjölda fasteigna sem óskað er upplýsinga um og tekur mið af fjölda svæða fyrir hverja fasteign. Miðað er við notkun á einu almanaksári og reiknast afsláttur þegar tilteknum fjölda fasteigna er náð.
Fjöldi fasteigna | Eitt svæði | Tvö svæði | Þrjú svæði
1 – 70.000 | kr. 30 kr. | 60 kr. | 90
70.001 – 140.000 | kr. 26 | kr. 52 | kr. 78
Fleiri en 140.000 | kr. 23 | kr. 46 | kr. 69
Önnur einingaverð fyrir upplýsingar úr fasteignaskrá eru sem hér segir:
Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) kr. 90
Eigendasaga fasteignar kr. 90
Breytingasaga fasteignar kr. 90
13.3. Einingaverð úr þinglýsingarhluta
a) Veðbandayfirlit: Gjald fyrir rafrænar fyrirspurnir úr þinglýsingarhluta er samkvæmt 24. gr. laga nr. 6/2001.
b) Rafræn veðbandavöktun: Mánaðargjald fyrir rafræna vöktun á breytingum á veðbandayfirliti eignar er miðað við fjölda eigna í vöktun á hverju almanaksári:
Fjöldi eigna í vöktun | Verð fyrir hverja eign
1 - 100 | kr. 89
101 – 1.000 | kr. 58
1.001 – 10.000 | kr. 49
10.001 – 20.000 | kr. 39
Fleiri en 20.000 | kr. 29
c) Rafræn endurrit skjala:
Skjalalisti (listi yfir rafræn endurrit skjala í þinglýsingarhluta): kr. 90
Gjald fyrir rafrænt endurrit skjals í þinglýsingarhluta: kr. 361
13.4. Einingaverð úr verðskráningargrunnum
Gjald fyrir upplýsingar um hverja fasteign verðskráningargrunnum:
Einingaverð úr kaupskrá kr. 146
Einingaverð úr leiguskrá kr. 146
13.5. Grunnupplýsingar úr staðfanga- og landeignahluta fasteignaskrár
Grunnupplýsingar úr staðfangahluta fasteignaskrár eru án endurgjalds, en til grunnupplýsinga teljast hnitpunktar, heiti og auðkennisnúmer. Grunnupplýsingar úr landeignahluta fasteignaskrár eru án endurgjalds, en til grunnupplýsinga teljast landeignanúmer, skráð stærð, ef hún er til staðar, og hnitsett eignarmörk landeigna, ef þau eru til staðar.
14.1. Sérvinnslur
Gjald fyrir sérvinnslur úr skrám er sem hér segir:
Einingaverð upplýsinga úr fasteignaskrá samkvæmt 13. gr.
Einingaverð fyrir staðfestingu á upplýsingum úr þinglýsingarhluta um tiltekna eign kr. 117
Límmiðagjald/línugjald pr. stk./línu á sérvinnslum á pdf formi kr. 13
Byrjunargjald sérvinnslu (innifalið 2 klst. vinna sérfræðings) kr. 51.300
Vinna umfram 2 klst. er greidd samkvæmt gr. 14.2.
Sé óskað eftir endurteknum sérvinnslum skal gera um það skriflegan samning við stofnunina þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga á tímabilinu sem hér segir en greitt er fyrir hverja afhendingu.
Fjöldi afhendinga á almanaksári | Afsláttur af reiknuðu gjaldi afhendingar
1 afhending á ári | 100% gjald fyrir 1. afhendingu
2-4 afhendingar á ári | 25% afsláttur af gjaldi fyrir 2.-4. afhendingu
Fleiri en 5 afhendingar | 50% afsláttur af gjaldi fyrir afhendingar umfram 5
14.2. Tímavinna
Tímagjald almenns starfsmanns pr. klst. kr. 12.100
Tímagjald sérfræðings pr. klst. kr. 17.600
Fyrir útkall eftir almennan opnunartíma er innheimt að lágmarki 4 tímar á taxta almenns starfsmanns.
14.3. Vottorð, uppflettingar og ljósrit
Gjald fyrir vottorð, uppflettingu í skrám, ljósrit o.fl. er sem hér segir:
Vottorð sem krefjast sérvinnslu:
Tímagjald skv. gr. 14.1 og 14.2
Afhending lista úr fasteignaskrá kr. 864
Ljósrit pr. bls. kr. 25
Staðfest ljósrit úr skrám kr. 864
Eignastöðuvottorð
Fyrir hverja kennitölu kr. 3.900
Viðbótargjald fyrir hverja færslu kr. 55
Rafræn afhending vottorða:
A) Eignastöðuvottorð: Fyrir hverja kennitölu kr. 830
B) Stimpilgjald skjala vegna fasteigna í byggingu:
Vottorð fyrir áætlað fasteignamat fyrir fasteignir í byggingu kr. 500
14.4. Miðlun upplýsinga úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Miðlun upplýsinga úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er óheimil nema fyrir liggi samningur um miðlun. Með miðlun upplýsinga er átt við miðlun til þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar samkvæmt gr. 13 og 14 eftir því sem við á.
Árgjald miðlara kr. 413.640
14.5. Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrir hönd þriðja aðila er óheimil nema fyrir liggi samningur um slíka vinnslu. Átt er við hvers kyns tölfræðivinnslu, úrtaksvinnslu eða aðra vinnslu fyrir þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar samkvæmt gr. 13. og 14 eftir því sem við á.
Árgjald vinnsluaðila kr. 57.000
14.6. Undanþágur frá gjaldskrá.
Heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku:
a. Námsmönnum sem upplýsingar þurfa vegna verkefna í þágu náms.
b. Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagnkvæmum upplýsingasamskiptum.
c. Fjölmiðlum ef upplýsingar varða heildarfjölda eða summutölur úr skrám.
d. Skráningaraðilum sem annast skráningu í skrár Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
e. Miðlurum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar 10% afslátt af gjöldum vegna endursölu upplýsinga sem taldar eru upp í gr. 13.2 og c lið gr. 13.3
Leigumál
15.1 Afrit leigusamninga úr leiguskrá kr. 864
15.2 Skráning pappírssamninga í leiguskrá kr. 2.700
Gjaldskrá
Hér má nálgast gjaldskrá (PDF skjal) fyrir verkefni og þjónustu HMS. Gildir frá 1. september 2024.
Gjaldskrá
Hér má nálgast gjaldskrá (PDF skjal) fyrir verkefni og þjónustu HMS. Gildir frá 1. september 2024.