22. maí 2026

187,5 milljónum króna úthlutað úr Aski til mannvirkjarannsókna

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • 18 verkefni hljóta styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði árið 2025 fyrir samtals 187,5 milljónir króna
  • 54 gildar umsóknir bárust um styrki að upphæð tæplega 535 milljónir króna
  • Heimsóknir voru farnar til styrkþega þar sem þeim voru afhentar viðurkenningar og tekin stutt viðtöl um verkefnin

Alls hljóta 18 verkefni styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði árið 2025 og nemur heildarúthlutunin 187,5 milljónum króna. Umsóknir um styrki voru 54 talsins og nam samanlögð styrkbeiðni tæplega 535 milljónum króna, sem endurspeglar þann mikla áhuga sem er á nýsköpun og rannsóknum á sviði mannvirkjagerðar.

Í ár var farin önnur leið við afhendingu styrkjanna en áður hefur tíðkast. Í stað formlegs úthlutunarviðburðar var farið í heimsóknir til styrkþega þar sem þeim voru afhentar viðurkenningar og blóm. Samhliða heimsóknunum voru tekin stutt viðtöl um verkefnin og markmið þeirra og eru þau nú aðgengileg á verkefnasíðum styrkþeganna. Með þessu er leitast við að varpa ljósi á fjölbreytileika verkefnanna og mikilvægi þeirra fyrir þróun mannvirkjagerðar á Íslandi. Ekki hefur náðst að heimsækja alla styrkþega enn sem komið er og því vantar enn nokkur myndbönd, auk þess sem ekki eru myndir af öllum styrkþegum.

Askur – mannvirkjarannsóknasjóður var stofnaður árið 2021 og er þetta því fimmta úthlutun úr sjóðnum. Hlutverk sjóðsins er að styðja við rannsóknir, þróun og nýsköpun á sviði mannvirkjagerðar. Áhersla sjóðsins er meðal annars á að efla þekkingu, bæta gæði mannvirkja og stuðla að sjálfbærri þróun til að mæta samfélagslegum áskorunum, í samræmi við markmið laga um mannvirki.

Sjóðurinn er fjármagnaður sameiginlega af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun. Stofnunin annast jafnframt stjórn og daglega umsýslu sjóðsins.

Opnað verður fyrir umsóknir í sjóðinn fyrir styrkárið 2026 næsta haust og eru öll áhugasöm hvött til að sækja um.

Frekari upplýsingar um sjóðinn og styrkt verkefni má finna á www.hms.is/askur

Inni­vist

Nafn umsækjanda og félagsHeiti verkefnisStyrkfjárhæð
Auður Hreiðarsdóttir, Esja Arkitektar ehf.Vetrargarðar – millirými milli byggingar og umhverfis1.500.000 kr.
Ásta LogadóttirInnivist - hvað, hvenær og hvernig?8.900.000 kr.
Eva Huld FriðriksdóttirInngilding heima6.700.000 kr.
Jacob Angus Clay Wood FinkImpact of Human Behaviour study on Indoor Air Quality8.400.000 kr.
Stefán Hrafn Jónsson, Háskóli ÍslandsMat á innleiðingu algildrar hönnunar í nýbyggðum fjölbýlishúsum8.800.000 kr.
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, VERKVISTRIAQ 2025 (Retrofitting for Improved Air Quality: promoting  sustainable and healthy homes)3.800.000 kr.
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Háskóli ReykjavíkurStaðbundinn glatvarmi húshitunar – núverandi nýting og tækifæri5.400.000 kr.
Samtals43.500.000 kr.
Hlutfall af heildar úthlutun (187,5 m.kr.)23%
Hlutfall af heildarfjölda styrktra verkefna(7/18)39%

Ís­lenskt veð­ur­far

Nafn umsækjanda og félagsHeiti verkefnisStyrkfjárhæð
Gísli Guðmundsson, TækniseturHagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður37.400.000 kr.
Jónas Þór Snæbjörnsson, Háskóli ReykjavíkurSnjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun10.600.000 kr.
Nína Gall Jörgensen, Efla VerkfræðistofaVind- og slagregnsáraun á mannvirki12.800.000 kr.
Þorvaldur Birgir Arnarsson, TandraorkaLífkol í steypu og vegagerð við íslenskar aðstæður12.500.000 kr.
Samtals73.300.000 kr.
Hlutfall af heildar úthlutun (187,5 m.kr.)39%
Hlutfall af heildarfjölda styrktra verkefna(4/18)22%

Raka­tengd mál­efni og bygg­ingagall­ar

Nafn umsækjanda og félagsHeiti verkefnisStyrkfjárhæð
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, VERKVISTByggingagallar og rakaskemmdir- orsakir þeirra og umfang33.700.000 kr.
Samtals33.700.000 kr.
Hlutfall af heildar úthlutun (187,5 m.kr.)18%
Hlutfall af heildarfjölda styrktra verkefna(1/18)6%

Verk­efni til­heyr­ir Rann­sókn­ar­þörf - en ekki áherslu­flokk­um

Nafn umsækjanda og félagsHeiti verkefnisStyrkfjárhæð
Aðalsteinn Ólafsson, HúsasmiðjanSteinull í Hringrás5.400.000 kr.
Anna Kristín Karlsdóttir,lúdika arkitektarEfnisheimar6.600.000 kr.
Auður Hreiðarsdóttir, Esja ArkitektarÍslenskt grjót2.000.000 kr.
Hjördís Sveinsdóttir, Grænni byggðNáttúrumiðaðar lausnir fyrir íslenskar byggingar8.300.000 kr.
Katarzyna Anna Jagodzinska, Grænni byggðHagkvæm nýting bygginga - íslensk saga um nægjusemi6.900.000 kr.
Wai Ying LamAccessible Communities Iceland: Planning Checklist and Indicators for Housing, Neighbourhoods and Mobility Systems7.800.000 kr.
Samtals37.000.000 kr.
Hlutfall af heildar úthlutun (187,5 m.kr.)20%
Hlutfall af heildarfjölda styrktra verkefna(6/18)33%

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS