2025
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Byggingagallar og rakaskemmdir - orsakir þeirra og umfang
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Byggingagallar og rakaskemmdir - orsakir þeirra og umfang
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
Byggingagallar og rakaskemmdir - orsakir þeirra og umfang
Byggingagallar og rakaskemmdir - orsakir þeirra og umfang
Verkefnið snýst um að meta orsakir og umfang galla í úrtaki mannvirkja með áherslu á virkni veðurhjúps, þéttinga, lagnakerfa og samspil þeirra við loftslag, notkun og framkvæmd.
Markmið verkefnisins er að greina helstu galla og skemmdir, umfang þeirra og orsakir í nýbyggingum með áherslu á rakavandamál og galla þeim tengdum. Þá verða greindir samverkandi þættir og ástæða endurtekningar mistaka eða galla þrátt fyrir aukna þekkingu og breytingar á regluverki.
Greiningarvinnan yrði fyrsti þáttur í að kortleggja helstu vandamál íslenskrar mannvirkjagerðar og með henni lagður grunnur að þróun gagnabanka um galla í mannvirkjum á Íslandi. Með slíkum gagnabanka og áframhaldandi greiningum má meta umfang vandans og kostnaðargreina. Þá verði til hagnýtur þekkingargrunnur sem nýtist til umbóta í mannvirkjagerð.
Verður m.a. byggt á rannsókninni ,,Algengi og eðli galla í nýbyggðum fjölbýlishúsum á Íslandi,, sem hlaut styrk úr ASKI 2024 og skoðuð þau ellefu mannvirki sem töldust mest gölluð í úrtaki hennar, auk fleiri gallaðra mannvirkja.
Notuð verður blönduð aðferðafræði þar sem sameinaðar verða vettvangsskoðanir, greining gagna, samanburður við reglur, staðla og erlendar rannsóknir og sértækir spurningalistar. Við vettvangsskoðun og úttekt verður m.a. byggt á gátlistum úr fyrra verkefni styrkt af ASKI, ,,Úttektir á rakaástandi,,.
Sérstök áhersla er lögð á veðurhjúp, þök, glugga, hurðir, votrými og lagnakerfi, sem og áhrif efnisvals, frágangs og vinnubragða. Horft verður til ábyrgðarskiptingar og upplýsingaflæðis milli aðila og hvernig ákvarðanir á mismunandi stigum byggingarferlisins hafa áhrif á byggingargalla og rakavandamál síðar meir.
Niðurstöður verkefnisins verða settar fram í skýrslu með greiningu, dæmum, myndum og teikningum. Áhersla er lögð á hagnýtar niðurstöður sem nýtast til að auka þekkingu á byggingargöllum þannig hægt sé að bregðast við og bæta gæði og endingu íslenskra bygginga.
