2025
RIAQ 2025 (Retrofitting for Improved Air Quality: promoting  sustainable and healthy homes)

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2025

RIAQ 2025 (Retrofitting for Improved Air Quality: promoting  sustainable and healthy homes)

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir

RIAQ 2025 (Retrofitting for Improved Air Quality: promoting  sustainable and healthy homes)

RIAQ 2025 (Retrofitt­ing for Improved Air Qu­ality: promot­ing  susta­ina­ble and healthy homes)

RIAQ er þverþjóðlegt rannsóknar- og þróunarverkefni innan Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætlunarinnar sem miðar að því að bæta orkunýtingu, innivist og heilnæmi íbúðarhúsnæðis í köldum loftslagsbeltum Evrópu.

Verkefnið byggir á því að orkuskipti og orkuendurbætur í byggingum geti, ef þær eru ekki rétt útfærðar, haft óæskileg áhrif á loftgæði, raka, mygluáhættu og heilsu íbúa, þrátt fyrir jákvæð áhrif á orkunotkun og losun gróðurhúsalofttegunda.

Meginmarkmið RIAQ er að þróa sameiginlegar, gagnreyndar leiðbeiningar og verkfæri fyrir endurbætur sem tryggja að markmið um orkusparnað og loftslagsaðgerðir fari ekki á kostnað innivistar og heilsu. Verkefnið leggur áherslu á að skoða byggingar sem kerfi, þar sem loftræsting, efnisval, framkvæmdaaðferðir og notkunarmynstur mynda samverkandi heild.

RIAQ nýtir raunveruleg tilvik í fimm löndum (Finnlandi, Írlandi, Svíþjóð, Noregi og Íslandi) þar sem framkvæmdar eru ítarlegar fyrir- og eftir-mælingar á loftgæðum og rakaskilyrðum í íbúðarhúsnæði sem fer í endurbætur. Mæld eru m.a. hitastig, rakastig, CO₂-styrkur, svifryk (PM2.5), formaldehýð og aðrir lykilþættir sem endurspegla bæði loftgæði og heilsufarslega áhættu. Samhliða er metin varmavirkni bygginga, mygluáhætta og tengsl við framkvæmdaaðferðir og tæknilausnir.