2025
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Náttúrumiðaðar lausnir fyrir íslenskar byggingar
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Náttúrumiðaðar lausnir fyrir íslenskar byggingar
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Hjördís Sveinsdóttir
Náttúrumiðaðar lausnir fyrir íslenskar byggingar
Náttúrumiðaðar lausnir fyrir íslenskar byggingar
Verkefnið felst í kortlagningu og greiningu á náttúrumiðuðum lausnum (e. nature-based solutions, NBS) fyrir byggingar í íslensku samhengi, með sérstaka áherslu á loftslags-og menningarleg sérkenni. Markmiðið er að styðja við upplýsta ákvörðun um val á náttúrumiðuðum lausnum, með sérstaka áherslu á íslenskt loftslag, eiginleika byggingarumhverfisins, og menningarlega og félagslega þætti.
Kortlagningin verður unnin með því að safna upplýsingum úr rannsóknum, raundæmum frá Íslandi og Norðurlöndunum. Þær NBS sem eru notaðar í Norðurlöndunum verða metnar út frá því hvort þær henti íslensku veðri og loftslagi, með því að byggja á rannsóknum og samtölum við sérfræðinga. Næst verða þær NBS sem hafa verið skilgreindar sem viðeigandi við íslenskar aðstæður skoðaðar nánar, með hliðsjón af umhverfisáhrifum þeirra, félagslegum ábata og ábata fyrir innviði (möguleikum á að draga úr álagi á frárennsliskerfi). Þessi athugun verður framkvæmd sem samsetning af yfirferð á fyrri rannsóknum og gögnum, viðtölum við sérfræðinga og LCA.
