2025
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Mat á innleiðingu algildrar hönnunar í nýbyggðum fjölbýlishúsum
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Mat á innleiðingu algildrar hönnunar í nýbyggðum fjölbýlishúsum
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Stefán Hrafn Jónsson
Mat á innleiðingu algildrar hönnunar í nýbyggðum fjölbýlishúsum
Mat á innleiðingu algildrar hönnunar í nýbyggðum fjölbýlishúsum
Byggingarreglugerð er eitt mikilvægasta neytendaverndar- og gæðatæki íslensks húsnæðismarkaðar. Reynslan úr fyrri rannsókn umsækjenda bendir þó til þess að frávik frá regluverki séu of algeng. Kröfur eru stundum settar fram með þeim hætti að litið er á þær sem leiðarljós frekar en skýr regla. Það verður til þess að erfitt getur reynst að sannreyna hversu vel er farið eftir kröfunum sem hamlar að nokkru leyfisveitingum og eftirliti. Algild hönnun er gagnlegt dæmi til að varpa ljósi á þennan veikleika í reglugerð og eftirfylgni.
Hugmyndin er skýr en ef viðmið eru óskýr eða matskennd getur hún í framkvæmd haft óheppilegar afleiðingar, m.a. skert möguleika ólíkra hópa til notkunar nýrra íbúða í fjölbýlum. Með því að rýna í framkvæmd ákvæða um algilda hönnun í nýbyggðum fjölbýlishúsum má því bæði meta stöðu þessara mála og ekki síður greina hvar regluverk, leiðbeiningar og eftirlitsferlar þurfa skýrari mælikvarða og samræmdari túlkun til að markmið reglugerðarinnar nái fram að ganga.
Með því að meta með markvissum hætti hvort ákvæðum um algilda hönnun í byggingareglugerðum sé framfylgt, þannig að þau nái tilætluðum árangri,er betur unnt að rýna í og bæta byggingareglugerðir, leyfisveitingar, eftirlit og ekki síður gæði nýbygginga á Íslandi.
Aðferðafræði rannsóknarinnar felst í því að starfsmenn hennar fara í skipulagðar vettvangsferðir þar sem lagt verður kerfisbundið mat á hvort ákvæðum um algilda hönnun sé fylgt auk rýnihópaviðtala við notendur, byggingaraðila og starfsfólk byggingarfulltrúa.
