2025
Efnisheimar

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2025

Efnisheimar

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Efnisheimar

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Efnisheimar

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Anna Kristín Karlsdóttir

Efnisheimar

Efn­is­heim­ar

Efnisheimar er rannsóknar- og miðlunarverkefni sem miðar að því að safna, samræma og setja í samhengi þekkingu um byggingarefni og byggingaraðferðir á Íslandi, frá landnámi til dagsins í dag. Verkefnið byggir á þeirri forsendu að mikil þekking og reynsla hafi tapast eða orðið ósýnileg á síðustu áratugum, samhliða auknum innflutningi byggingarefna og breytingum á regluverki og framkvæmdum í mannvirkjagerð.
Verkefnið er framhald rannsókna sem þegar hafa átt sér stað með stuðningi Hönnunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs námsmanna, þar sem safnað hefur verið gögnum, heimildum og reynslu um byggingarefni, nýsköpun og efnisnotkun í íslensku samhengi. Í Efnisheimum verður þessi þekking dýpkuð, greind og sett fram á samræmdan hátt, með áherslu á að gera hana aðgengilega og nýtanlega fyrir áframhaldandi rannsóknir, hönnun og stefnumótun.

Verkefnið felur í sér kerfisbundna samantekt á fyrirliggjandi rannsóknum og gögnum, greiningu á kerfislægum hindrunum sem hafa áhrif á nýtingu þekkingar í framkvæmd og þróun sameiginlegrar verkfærakistu fyrir byggingarefni og byggingaraðferðir. Niðurstöður verða settar fram í opinni, stafrænni útgáfu með myndrænni framsetningu sem safnar saman gögnum verkefnisins í varanlegt og aðgengilegt form.