2025
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Lífkol í steypu og vegagerð við íslenskar aðstæður
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Lífkol í steypu og vegagerð við íslenskar aðstæður
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Þorvaldur Birgir Arnarsson
Lífkol í steypu og vegagerð við íslenskar aðstæður
Lífkol í steypu og vegagerð við íslenskar aðstæður
Verkefnið felur í sér þróun og innleiðingu nýrrar lífkolaframleiðslu á Íslandi þar sem vannýttur grisjunarviður er umbreyttur í hágæða lífkol fyrir mannvirkjagerð, með sérstakri áherslu á lífkol í steypu. Með þessu er brugðist beint við skilgreindri rannsókna- og þróunarþörf í íslenskum byggingariðnaði, einkum varðandi þróun vistvænni byggingarvara, kolefnisspor steypu og virkni byggingarefna við íslenskar aðstæður.
Í steypuverkefninu eru lífkol þróuð sem staðgengill hluta sements, sem hefur í för með sér verulegan samdrátt í kolefnislosun án þess að skerða burðarþol, frostþol eða endingu. Verkefnið styður þannig við þá forgangsþörf sem greind hefur verið fyrir umhverfisvænni steypu, ný losunarviðmið og lífsferilsgreiningar fyrir íslensk mannvirki. Samhliða verður unnið að sannprófun og aðlögun lausnanna að íslensku veðurfari, þar sem frost–þíðuhringir og rakaálag setja sérstakar kröfur á byggingarefni.
Heildstætt styður verkefnið við markmið um hringrásarhagkerfi með því að nýta innlent lífrænt hráefni, skapa varanlega kolefnisbindingu og þróa markaðshæfar, vistvænar byggingarvörur.
