19. nóvember 2026
Umhverfismat októbermánaðar og mál í kynningu
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Í október voru gefin út fjögur álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana
- Eitt álit um matsáætlun og þrjár ákvarðanir um matsskyldu
- Þá eru tvö mál í kynningu, endurvinnsla lífræns úrgangs vestan Þorlákshafnar og ferðaþjónusta og frístundabyggð að Laxárbakka
Álit um matsáætlun
Mýnesnáma, Múlaþingi – álit um matsáætlun
Ylur ehf. áformar áframhaldandi efnistöku úr Mýnesnámu í landi Mýness í Múlaþingi. Áætlað er að um 400.000 m³ efnis hafi þegar verið unnið úr Mýnesnámu á um 16 ha landsvæði. Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér allt að 400.000 m³ frekari efnistöku. Áætlaður vinnslutími Mýnesnámu er um 15 ár.
Ákvörðun um matsskyldu
Selfosslína 1, breyting á legu vestan Ölfusár – ákvörðun um matsskyldu
Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Efnistaka úr Eyrarbakkafjöru (náma E2), Árborg – ákvörðun um matsskyldu
Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Vatnsnesvegur (711-07), Húnaþingi vestra – ákvörðun um matsskyldu
Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Umhverfismatsskýrsla til kynningar
Ferðaþjónusta og frístundabyggð að Laxárbakka
Laxárbakki Resort ehf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar vegna umhverfismats uppbyggingar ferðaþjónustu á Laxárbakka á sunnanverðu Snæfellsnesi, í Eyja- og Miklaholtshreppi. Kynningartími 16. Nóvember- 5. janúar 2027.
Matsáætlun til kynningar
Endurvinnsla lífræns úrgangs vestan Þorlákshafnar
Áformin felast í því að reisa úrvinnslustöð sem tekur við lífrænum úrgangi frá fiskeldi sem starfar á svæðinu vestan Þorlákshafnar. Einnig stendur til að taka við húsdýraáburði frá landbúnaði. Afurðirnar verða lífgas og lífrænn áburður. Kynningartími 26. október – 24. nóvember.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



