2025
Snjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2025

Snjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Snjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Snjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Jónas Þór Snæbjörnsson

Snjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun

Snjó­á­lags­for­send­ur fyr­ir mann­virkja­hönn­un

Verkefnið snýst um að endurmeta snjóálagsforsendur fyrir Ísland í tengslum við endurskoðun á núgildandi Evrópustöðlum fyrir mannvirkjahönnun sem fram fer um þessar mundir á vegum CEN (the European Committee for Standardization). Niðurstöður verkefnisins munu skapa grunn að endurbættu mati á hönnunargildi snjóálags sem sett verður fram með sérstöku snjóálagskorti fyrir Ísland sem verður hluti af uppfærðu þjóðarskjali fyrir Ísland.
Núverandi snjóálagsforsendur byggja á greiningu sem var framkvæmd á árinu 1997. Síðan þá (þ.e. síðustu 28 ár) hefur ekki farið fram nein frekari úrvinnsla á snjóálagi á mannvirki á Íslandi. Þess vegna er tímabært að setja í gang vinnu sem miðar að því að endurmeta og samræma snjóálag á heildstæðan hátt, þar sem notaðar eru nýjar aðferðir og tekið tillit til þeirra upplýsinga um snjó á Íslandi sem safnast hafa á síðustu áratugum..
Á undanförnum árum hafa komið fram tölvulíkön þar sem ítarleg endurgreining er gerð á veðrum í þéttum reiknimöskva (t.d. 2,5kmx2,5km). Niðurstöður þessa greininga má nota til að meta snjóálag og dreifingu þess yfir landið.
Í verkefninu verður tekið saman og unnið úr þeim mælingum sem eru til á snjódýpi og sambandi snjódýpis og eðlisþyngdar. Snjóálag verður reiknað út frá endurgreiningu veðurs. Sérstök áhersla er síðan á að meta áreiðanleika slíkra greininga og hversu vel þær passa við fyrirliggjandi mælingar.