2025
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Vind- og slagregnsáraun á mannvirki
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Vind- og slagregnsáraun á mannvirki
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Nína Gall Jörgensen
Vind- og slagregnsáraun á mannvirki
Vind- og slagregnsáraun á mannvirki
Verkefnið snýst um notkun á tölulegum straumfræðihermunum (e. Computational Fluid Dynamics, CFD) við greiningar á vind- og veðuráraun á mannvirki. Verkefnið tengist uppfærslu á Evrópustaðli (EN1991-1-4:2005). Í drögum að nýjum staðli er aukið svigrúm til hagnýtingar CFD hermana á vindálagi . Einnig er nýr viðauki um ákvörðun grunngildis vindhraða út frá mælingum og tölfræðilega greiningu á vindálagi. Það eru því töluverðar breytingar á ákvörðun vindálags í nýjum staðli.
Með nákvæmari ákvörðun vindálags er ennfremur hægt að meta slagregnsáraun með nákvæmari hætti. ISO staðall 15927-3 skilgreinir aðferðir til að reikna slagregnsstuðul (e. driving rain index). Í nágrannalöndum er aðferðin notuð til að kortleggja og flokka svæði eftir slagregnsáraun, sem nýtist hönnuðum. Aðferðafræðinni verður beitt á hérlendar aðstæður.
Vindálag og slagregn er lykilþáttur í hönnun mannvirkja á Íslandi og munu niðurstöðurnar gagnast hönnuðum og tryggja hagkvæmni og endingu nýrra mannvirkja.
