20. nóvember 2026
Fjögur af hverjum tíu hlutdeildarlánum hafa verið veitt fyrrum leigjendum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Hlutdeildarlán hafa aðstoðað leigjendur við að komast af leigumarkaði
- Upplýsingar um veru á leigumarkaði byggja á leiguskrá HMS og þinglýstum leigusamningum undanfarin 10 ár
- Meirihluti þeirra sem taka hlutdeildarlán hefur þó ekki verið á leigumarkaði
Viðtakendur um það bil 40 prósent hlutdeildarlána hafa áður verið á leigumarkaði, miðað við upplýsingar úr leiguskrá HMS og þinglýstum leigusamningum frá síðastliðnum 10 árum. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir nóvembermánuð sem gefin var út í gær. Skýrsluna í heild sinni má nálgast með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mánaðarskýrsla HMS fyrir nóvember 2026
Hlutdeildarlán hafa nýst heimilum á leigumarkaði
Hlutdeildarlán hafa aðstoðað fyrrum leigjendur við að komast af leigumarkaði. Um það bil fjögur af hverjum tíu hlutdeildarlánum hafa verið veitt lántakendum þar sem að minnsta kosti annar lántakenda hafði áður verið skráður á leigumarkaði samkvæmt upplýsingum úr leiguskrá HMS og þinglýstum leigusamningum síðastliðin tíu ár. Þegar eingöngu er stuðst við leiguskrá HMS finnst leigusamningur hjá aðeins 19% umsókna þeirra sem fengið hafa hlutdeildarlán.
Myndin hér að neðan sýnir hvernig fyrri leiguskráning skiptist eftir fjölda lántakenda. Í 30,1% tilvika fannst skráning hjá öllum lántakendum á umsókninni. Þar eru taldar bæði umsóknir með einum lántakanda sem hafði áður verið skráður á leigumarkaði og umsóknir með tveimur lántakendum sem báðir höfðu verið skráðir. Í 12,3% tilvika voru tveir lántakendur á umsókninni og skráning fannst aðeins hjá öðrum þeirra. Alls fannst því fyrri leiguskráning hjá að minnsta kosti einum lántakanda í 42,4% tilvika.
Í meirihluta tilvika virðast viðtakendur hlutdeildarlána aftur á móti ekki hafa verið á leigumarkaði fyrir veitingu hlutdeildarláns samkvæmt gögnum HMS. Það þarf þó ekki að þýða að viðkomandi hafi aldrei leigt húsnæði.
Hlutfall fyrrum leigjenda gæti verið vanmetið
Leiguskrá HMS var tekin í gagnið í byrjun árs 2023 og vitað er að hún nær ekki yfir allan leigumarkaðinn um þessar mundir, en HMS áætlar að allt að 48 þúsund heimili séu á leigumarkaði í ár.
Almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá HMS tók gildi 1. janúar 2026 og nær einnig til eldri samninga sem voru í gildi þann dag, en ekki samninga sem lauk áður. Skráningarskyldan tryggir því ekki að upplýsingar um eldri leigusögu lántakenda liggi fyrir í leiguskrá. Leigusalar geta gert og skráð leigusamninga á Ísland.is.
Fyrir tíma leiguskrár HMS var þinglýsing leigusamninga forsenda fyrir greiðslu húsnæðisbóta, en að öðru leyti var ekki gerð krafa um opinbera skráningu leigusamninga. Í þessari greiningu var aðeins horft til þinglýstra leigusamninga undanfarin tíu ár. Í ljósi þess kann hlutfall hlutdeildarlána sem veitt hafa verið fyrrum leigjendum að vera vanmetið.
Nýr póstlisti hagdeildar HMS
Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.
Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Póstlisti hagdeildar HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




