Ráðgjöf
Þegar greiðsluvandi er fyrir hendi er mikilvægt að skoða allar mögulegar leiðir til að leysa hann. Auk úrræða Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Umboðsmanns skuldara geta verið fleiri kostir í stöðunni eins og t.d.:
- Endurfjármögnun lána
- Frjáls sala íbúðar á markaði
- Aðrar lausnir hjá fjármálastofnunum
- Bera saman lánakosti
Endurfjármögnun lána
Mikið framboð er af lánakostum hjá bönkum, lífeyrissjóðum og öðrum fjármálafyrirtækjum. Lána-
kostir í dag eru fleiri með betri kjörum en voru á lánum sem tekin voru fyrir nokkrum árum.
Í endurfjármögnun felst:
- Nýtt lán tekið til að greiða upp eldra og óhagstæðara lán.
- Greiða þarf lántökugjöld vegna lántökunnar.
- Mögulega þarf sömuleiðis að greiða umsýslugjöld og kostnað vegna greiðslumats.
- Skoða þarf hvort uppgreiðslugjöld eru á núverandi lánum og taka tillit til þeirra í mati á valkostum.
- Reiknivélin „Bera saman lánakosti“ er gott tæki til að leggja mat á hvort endurfjármögnun skilar árangri.
Frjáls sala á markaði
Með frjálsri sölu undirveðsettrar íbúðar á markaði getur skuldari leyst út eigið fé sem byggst hefur upp í eigninni og nýtt það til að kaupa ódýrari íbúð og/eða kaupa íbúð með fjármögnun sem hentar betur fjárhagsstöðu skuldara.
Ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði um að fá greiðsluúrræði og ekki finnst önnur lausn á greiðsluvanda hans getur þessi leið verið góður kostur til að standa vörð um þá eignastöðu sem hefur byggst upp í íbúðinni.
Aðrar lausnir hjá fjármálastofnunum
Kynntu þér þá kosti og þau greiðsluúrræði sem standa skuldurum til boða hjá öðrum lánastofnunum, ef það á við.
Lausnir og úrræði vegna greiðsluvanda geta verið misjöfn hjá fjármálastofnunum og mikilvægt er að kynna sér vel þá kosti sem standa til boða.