Heimahleðsla rafbíla
Heimahleðsla rafbíla
Heimahleðsla rafbíla
Heimahleðsla rafbíla
Hleðsla í eldri byggingum
Hleðsla í eldri byggingum
Vinnu við uppsetningu á hleðslu rafbíla í eldri byggingum þarf að taka í nokkrum skrefum. Þessi skref eru sambærileg hvort sem um er að ræða sérbýli, fjölbýli eða atvinnuhúsnæði. Umfangið getur hins vegar verið mjög mismunandi, eftir aðstæðum á hverjum stað.
Uppsetning hleðslulausna í eldri byggingum kallar í flestum tilvikum á að uppdráttum (teikningum) sé breytt, s.s. aðluppdráttum, raflagnauppdráttum og lóðaruppdráttum (fyrirkomulag á bílastæði). Skila þarf þessum gögnum inn til byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags og fá leyfi fyrir framkvæmdum.
Sex skref sem mikilvægt er að fara eftir:
Skref 1: Forathugun
Fyrsta skref er að kanna ytra umhverfi og aðstæður vegna mögulegra breytinga.
Ef um er að ræða sameign, þarf að fylgja lögum um fjöleignarhús varðandi samþykki fyrir nauðsynlegum framkvæmdum. Taka þarf málið upp á húsfundi og samþykkt húsfélagsins þarf að liggja fyrir.
Ef um er að ræða hleðslu á sameiginlegu bílastæði eða á eign annarra, þarf að semja um slíka notkun, kostnað og eignarhald.
Lög um fjöleignarhús skilgreina reglur um réttindi og skyldur eigenda fjöleignarhúsa. Í þeim kemur m.a. fram að húsfélögum er skylt að gera ákveðna úttekt á stöðu og mögulegum lausnum varðandi hleðslu rafbíla og að ekki er hægt að neita eiganda um að setja upp búnað til hleðslu rafbíla að undangenginni slíkri úttekt.
- Kynntu þér upplýsingar um rafbíla og hleðslu. Töluvert af upplýsingum má finna á þessum vef.
- Kynntu þér lög og reglugerðir, þ.m.t. lög um fjöleignarhús og byggingarreglugerð.
- Hafðu samband við aðra í byggingunni sé um fjöleignarhús að ræða. Húsfélög þurfa að samþykkja nauðsynlegar framkvæmdir.
Skref 2: Þarfagreining
Annað skref er að kanna þörfina fyrir hleðslu rafbíla í byggingunni, bæði þá þörf sem þegar er fyrir hendi og einnig m.t.t. fyrirsjáanlegrar fjölgunar rafbíla í náinni framtíð.
- Kanna hversu margir rafbílar eru til staðar og hverjir hafa hug á að fá sér rafbíl.
- Gera yfirlit yfir aflþörf og orkunotkun.
- Ákveða fjölda, staðasetningu og fyrirkomulag á hleðslustæðum í fyrstu lotu og hvernig standa eigi að fjölgun hleðslustæða í framtíðinni.
Skref 3: Forsendur
Þriðja skref er að kanna þær forsendur sem til staðar eru í rafmagnsmálum byggingarinnar, bæði m.t.t. ástands raflagna og þess hve mikil orka er aflögu til hleðslu rafbíla. Það getur verið mikill munur á hversu mikil raforka er til aflögu í byggingum.
Fá upplýsingar um rafmagnsinntak byggingarinnar frá dreifiveitu á þínu svæði: Veitur, RARIK, HS Veitur, Norðurorka, Orkubú Vestfjarða.
Nóg er að gefa upp heimilisfang.
Kanna aðstæður í rafmagnstöflu, með aðstoð löggilts rafverktaka:
- Stærð heimtaugar (rafmagnsinntaks), hvaða straumur (A) er til staðar inn í töflu?
- Hvaða tegund dreifikerfis er í hverfinu (TN/TT)?
- Er rafmagn byggingarinnar einfasa eða þriggja fasa?
- Er nægt pláss í rafmagnstöflu fyrir breytingar?
Kanna rafmagnsöryggi byggingarinnar, með aðstoð löggilts rafverktaka:
- Er þörf á endurnýjun raflagna og búnaðar?
- Athugið að sérstaka útfærslu varbúnaðar (öryggja) þarf fyrir hleðslu rafbíla.
Fara yfir forsendur:
- Hversu mikinn straum þarf til hleðslu rafbíla í fyrstu lotu?
- Hversu mikilli fjölgun rafbíla má reikna með í framtíðinni?
Skref 4: Skipulag og hönnun
Fjórða skref er hönnun hleðslulausnar og skipulag hleðslustæða.
- Fara yfir hvaða hleðslulausnir henta, t.d. með því að hafa samband við sölu- og þjónustuaðila og afla upplýsinga á vefnum.
- Ákveða staðsetningu á hleðslubúnaði við bílastæði.
- Huga að því hvernig stækka megi kerfið, með fjölgun hleðslustöðva á komandi árum.
- Hanna lagnaleiðir og tengingar við aðaltöflu. Miða ætti við að hægt sé að stækka kerfið án þess að fara þurfi oft í verulegar framkvæmdir við raflagnir.
- Ákveða hvernig haga eigi mælingu á orkunotkun hvers notanda. Ekki er nauðsynlegt að hafa sérstaka grein í töflu fyrir hvert bílastæði sem tengd væri orkumæli hvers notanda, aðrar lausnir gætu hentað betur.
- Áætla gróflega heildarkostnað við framkvæmdina, búnað og vinnu.
- Ákveða kostnaðarskiptingu við framkvæmdina og hver sé eðlilegur kostnaður fyrir nýja notendur sem síðar koma.
- Kanna hvort rafmagnsinntakinntak (heimtaug) dugi, með aðstoð álagsstýringar og skipulagi hleðslutíma, áður en ráðist er í stækkun þess.
- Sækja um leyfi fyrir framkvæmdum til viðkomandi sveitarfélags/byggingarfulltrúa.
Skref 5: Val á búnaði
Fimmta skref er val á hleðslulausnum og búnaði. Margar tegundir hleðslustöðva eru á markaðnum og að ýmsu að huga áður en búnaður er valinn.
Velja búnað, atriði sem skipt geta máli eru:
- Hvaða lausnir eru í boði?
- Kostaður við mismunandi lausnir.
- Hvernig tala hleðsustöðvarnar saman (þarf viðbótar nettengingu í bygginguna?)
- Hvernig upplýsingar og ytri tengingar eru í boði, t.d. smáforrit (app)
- Greiðslumáti fyrir notendur
- Rekstur og viðhald búnaðar
- Fyrirkomulag hleðslustöðva og uppsetningarmöguleikar
- Annar búnaður s.s. árekstrarvarnir og merkingar, eins og við
Fá tilboð frá sölu- og þjónustuaðilum hleðslulausna og búnaðar í heildarlausnir, þ.m.t. notkun og viðhald.
Fá tilboð frá löggiltum rafverktaka í uppsetningu á búnaði og viðbætur og breytingar á raflögnum.
Ákveða skilatíma og forsendur afhendingar.
Skref 6
Framkvæmd: Sjötta skref er framkvæmd á uppsetningu heðslulausnar og búnaðar og viðbætur og breytingar á raflögnum. Þessi vinna þarf að vera unnin af löggiltum rafverktaka.
- Semja við löggiltan rafverktaka um uppsetningu og frágang.
- Semja við sölu- og þjónustuaðila þeirrar hleðslulausnar sem valin er.
- Afla leyfis fyrir framkvæmdum hjá viðkomandi sveitarfélagi/byggingarfulltrúa. Slíkt getur verið á hendi framkvæmdaraðila.
- Tryggja að frágangur sé góður og tekið sé tillit til viðhalds og breytinga.
- Tryggja að gengið sé frá brunaþéttingum þar sem farið er með lagnir á milli brunahólfa.
- Tryggja öryggi vegna framkvæmdar, m.a. með afmörkun vinnusvæða og aðstöðu.
- Tryggja að rafbúnaður sé merktur á fullnægjandi hátt og gengið sé frá í samræmi við reglur og góða starfshætti. Merkingar á búnaði tryggja öryggi notenda og þeirra sem koma þurfa að breytingum í framtíðinni.
- Ganga úr skugga um að löggilti rafverktakinn sendi inn lokatilkynningu til HMS að verki loknu.
- Koma upplýsingum um búnaðinn og virkni hans til allra notenda. Einnig er eðlilegt að aðrir aðilar í sameign fái þessar upplýsingar.