Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir

Er raf­magns­­tafl­an hjá þér orð­in vara­söm?

Er raf­magns­­tafl­an hjá þér orð­in vara­söm?

Rafmagnstaflan er hjarta rafkerfisins í hverju húsi, um hana fer allt rafmagn sem notað er í húsinu og því getur verið um mikið álag að ræða. Gamlar og illa farnar rafmagnstöflur geta verið hættulegar, ekki síst ef þær eru úr tré eða staðsettar þar sem nóg er um eldsmat, t.d. inni í skáp. Rafbúnaðar, eins og flest annað, hefur takmarkaðan líftíma og tryggir því ekki endilega öryggi við lok hans.

Nauðsynlegt er að láta löggiltan rafverktaka kanna ástand eldri rafmagnstaflna og gera úrbætur áður en tjón hlýst af, það getur einnig átt við aðra hluta raflagnarinnar í húsinu. Upplýsingar um löggilta rafverktaka má finna á heimasíðu HMS.

Liðinn er langur tími síðan töflur (töfluspjöld) úr tré voru settar upp og afar líklegt að þær séu komnar fram yfir þann líftíma sem gera má ráð fyrir að þær hafi. Það sama getur átt við rafbúnaðinn í töflunum, bæði varbúnað og víra. Það eru þó ekki eingöngu rafmagnstöflur úr tré sem huga þarf að, en hið sama á við um allar gamlar og úr sér gengnar rafmagnstöflur.

Hvers vegna geta raf­magns­töfl­ur úr tré ver­ið hættu­leg­ar?

  • Timbur er brennanlegt efni
  • Timbrið í töflunum þornar yfir tíma og verður enn brennanlegra
  • Mikill rafstraumur fer um rafmagnstöflur – allt rafmagn heimilisins, þ.m.t. bílhleðslustöðin
  • Margir áratugir síðan rafmagnstöflur úr tré voru settar upp – eru úr sér gengnar og úreltar
  • Ekki í samræmi við núgildandi reglur að rafmagnstöflur séu úr tré – ekki leyft í nýjum og endurnýjuðum húsum
  • Öryggisbúnaður í gömlum töflum getur verið úr sér genginn og öryggi því ábótavant

Lands­skrá raf­verk­taka

Lands­skrá raf­verk­taka