Markaðseftirlit
Markaðseftirlit
Mælitæki í notkun
Mælitæki í notkun
Í reglugerðum um mælifræðilegt eftirlit með mælitækjum í notkun eru ákvæði um hvaða notkun er eftirlitsskyld, um löggildingar, hvenær fyrsta löggilding skal fara fram og um gildistíma löggildinga ásamt ákvæðum um prófanir vegna löggildinga og fleira. HMS getur veitt umboð til aðila sem til þess teljast hæfir og hafa fengið faggildingu til slíkra starfa að annast verklega framkvæmd við löggildingu mælitækja sem falla undir eftirlit stofnunarinnar, sbr. reglugerð nr. 956/2006.
Þrír aðilar starfa á grundvelli slíks umboðs frá HMS
Frumherji: Mælikerfi fyrir eldsneytisskammtara, tankbifreiðar og mjólk.
BSI á Íslandi: Ósjálfvirkar vogir (með 3.000 kg hámarksvigtargetu), sjálfvirkar vogir, raforkumælar, varmaorkumælar, vatnsmælar og mælikerfi fyrir eldsneytisskammtara, tankbifreiðar og mjólk.
Löggilding: Allar ósjálfvirkar og sjálfvirkar vogir.
Í þeim tilvikum að eftirlitsskyldur aðili fer ekki að gildandi reglum þá tilkynnir umboðsaðilinn um slík tilvik til stofnunarinnar sem tekur ákvörðun um hvort beita eigi stjórnvaldsúrræðum, s.s. lokun eða stöðvun viðskipta og notkun mælitækisins.