Um sjóðinn

Hlutverk Asks er að veita styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar, í samræmi við markmið mannvirkjalaga.

Hlutverk sjóðsins 

Hlutverk Asks er að veita styrki til mannvirkja­rannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskor­unum á sviði mannvirkjagerðar, í samræmi við markmið mannvirkjalaga.

Í rekstri sjóðsins verður leitast við að opna opinbert styrkjaumhverfi fyrir fleiri aðila úr háskólasamfélagi og atvinnulífi og einnig að stuðla að auknu samstarfi við erlenda rannsóknaraðila. Áherslur sjóðsins snúa einkum að samfélagslegum áskorunum í byggingariðnaði, svo sem rakaskemmdum í mannvirkjum og aðgerðum til lækkunar kolefnisspors. Við hverja úthlutun verður horft til þarfa, eðlis og áskoðana á sviði mannvirkjagerðar, áherslna í nýsköpun og markmiða um sjálfbærni.

 

Reglur sjóðsins

Í reglugerð sjóðsins, breytingu á reglugerð árið 2022 og starfsreglum hans er fjallað nánar um styrkveitingar, fyrirkomulag úthlutana og fleira. Væntanlegir umsækjendur eru hvattir sérstaklega til að kynna sér þau ákvæði.

 

Fjármögnun og umsýsla 

Sjóðurinn er fjármagnaður sameiginlega af innviðaráðuneytinu og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.

Sjóðurinn heyrir undir innviðaráðuneytið en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast stjórn og daglega umsýslu sjóðsins, þ.m.t. stjórnsýslu og úthlutun.

 

Fagráð sjóðsins

Þáverandi barna- og félagsmálaráðherra skipaði fimm manna fagráð Asks - mannvirkjarannsóknarsjóðs árið 2021 til þriggja ára í senn. Fagráð er skipað fulltrúum með sérþekkingu á sviði mannvirkjamála tilnefndum af félagsmálaráðuneytinu, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, samstarfsnefnd háskólastigsins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samtökum iðnaðarins. Varamenn eru tilnefndir og skipaðir með sama hætti. Fulltrúi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er formaður fagráðsins.

Fagráð skal annast faglegt mat umsókna í samræmi við áherslur á sviði nýsköpunar og atvinnulífs, veita umsögn um styrkumsóknir og gera tillögur til ráðherra um úthlutun styrkja. Fagráð er jafnframt ráðgefandi fyrir ráðherra um fagleg málefni við úthlutanir úr sjóðnum eftir því sem óskað er. Fagráðið skipa:

  • Olga Árnadóttir, formaður, tilnefnd af HMS.
  • Ólafur Pétur Pálsson, tilnefndur af háskólasamfélaginu.
  • Dr. Björn Karlsson, tilnefndur af félagsmálaráðuneytinu.
  • Ingibjörg Birna Kjartansdóttir árið 2022, tilnefnd af SI, Hjörtur Sigurðsson árið 2021, tilnefndur af SI.,
  • Guðríður Friðriksdóttir, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

 

Nánari upplýsingar

HMS annast rekstur og dag­lega umsýslu sjóðsins, stjórnsýslu, framkvæmd úthlutunar og samskipti við fagráð sjóðsins. Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum með því að senda tölvupóst á netfangið askur@hms.is

Starfsmenn sjóðsins hjá HMS eru:

  • Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, hrafnhildur.hrafnsdottir@hms.is, verkefnisstjóri Asks
  • Olga Árnadóttir, olga.arnadottir@hms.is, formaður fagráðs Asks
  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, thora.thorgeirsdottir@hms.is, framkvæmdastjóri mannvirkja- og sjálfbærni hjá HMS