14. október 2025

Opið fyrir umsóknir um stofnframlög

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög í þriðju úthlutun fyrir árið 2025. Stofnframlögin eru veitt til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili. 

Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember næstkomandi 

Umsókn um stofnframlag

Stofn­fram­lög hafa ver­ið veitt til upp­bygg­ing­ar á rúm­lega 4.000 íbúð­um 

Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld úthlutað stofnframlögum upp á rúmlega 33 milljarða til uppbyggingar á um 4.000 leiguíbúðum víðs vegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingunni nemur um 167 milljörðum króna. 

Fjölg­un íbúða með stofn­fram­lög­um eft­ir lands­hlut­um 

Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í. 

Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. 

Það eru ýmsar kröfur gerðar til almennra íbúða, sem eru byggðar eða keyptar með stofnframlögum, þær þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni t.a.m. stærðarmörk m.t.t. fjölda svefnherbergja. Þessi umgjörð er til þess fallin að lækka leiguverð og skapa aukið húsnæðisöryggi tekju-og eignaminni heimila. 

Fyrirspurnir beinast á stofnframlag@hms.is 

Nánar um stofnframlög 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS