Aukin þekking, umbætur og nýsköpun
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Aukin þekking, umbætur og nýsköpun
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar.
Askur - Mannvirkjarannsóknarsjóður
Opnað verður fyrir umsóknir haustið 2026.
Verið er að vinna umsóknir sem bárust til sjóðsins fyrir 2025. Allir umsækjendur verða upplýstir þegar búið er að fara yfir verkefnin.
Askur hvetur fagfólk úr háskólasamfélaginu, rannsókna- og nýsköpunargeiranum, opinberum aðilum og atvinnulífi að vinna saman að metnaðarfullum verkefnum. Verkefni eru m.a. metin út frá nýútgefin Rannsóknaþörf húsnæðis og mannvirkja árið 2025 var lögð áhersla á þrjá flokka innan hennar.
- Íslenskt veðurfar - Veður, slagregn, vindur, frost- og þíðuálag og áhrif loftslagsbreytinga á byggingar og byggingahluta.
- Rakatengd málefni og byggingagallar - Virkni veðurhjúps, þéttingar, lagnakerfi og orsakavaldar rakaskemmda
- Innivist - Loftgæði, hljóðvist, ljósvist og áhrif á heilsu, vellíðan og notagildi bygginga.
Einnig var horft til verkefna sem styðja almennt við nýsköpun og þróun þvert yfir húsnæðis- og mannvirkjagerð.
Rannsóknarþörfin varpar ljósi á mikilvægi, umfang, eðli og samfélagslegan ávinning mannvirkjarannsókna í breiðum skilningi. Markvissari rannsóknavinna á sviði mannvirkjagerðar hjálpar rannsakendum að velja brýn viðfangsefni til rannsókna og mun hún vera í leiðarljósi við val á verkefnum til úthlutunar úr Aski. Rannsóknarþörfin í dag er ekki tæmandi yfirlit eða forgangsröðun rannsóknaþarfar í íslenskri húsnæðis- og mannvirkjagerð, hún gefur mynd af stöðunni eins og hún er í dag.






