Upplýsingar fyrir styrkhafa
Upplýsingar fyrir styrkhafa
Hér má finna upplýsingar um útgreiðslur hjá Aski, skjal með yfirliti yfir kostnað í tengslum við lokagreiðslu styrks, útlitslegt skjal fyrir lokaskýrslu, slóð á umsóknarkerfið og upplýsingar um hvernig vitna á til styrksins í kynningarefni og ritrýndum greinum.
Áfangaskýrsla
Styrkhafar sem hlutu styrk árið 2025 skulu skila áfangaskýrslu samkvæmt samningi.
Í áfangaskýrslu skal gera grein fyrir framvindu verkefnisins, helstu áföngum sem náðst hafa og áætlaðri framvindu fram að lokum verkefnis.
Skýrsluna skal senda á askur@hms.is.
Áfangaskýrsla
Sniðmát fyrir skil á áfangaskýrslu
Progress report
Template for progress report
Lokaskil
Við lok verkefnis skal skila:
- Lokaskýrslu
- Kostnaðaryfirliti
- Reikningum vegna aðkeypts kostnaðar, eftir því sem við á
- Mynd sem tengist verkefninu til birtingar á vefsíðu Asks (valkvætt)
Til að lokaskýrsla geti verið samþykkt þarf hún að sýna fram á að verkefnið hafi verið unnið í samræmi við samþykkta verkefnalýsingu eða gera grein fyrir frávikum frá henni.
Gögn skulu send á askur@hms.is.
Lokaskýrsla
Sniðmát fyrir skil á lokaskýrslu
Final report
Template for final report
Kotnaðaryfirlit
Sniðmát fyrir kostnaðaryfirlit
Útgefið efni styrkhafa
Í samningi styrkhafa við Ask kemur fram að: "Styrkþegi skuldbindur sig til að láta það koma fram á öllu útgefnu efni, auglýsingum o.s.frv. sem tengist hinu styrkta verkefni að það hafi hlotið styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknarsjóði sem er fjármagnaður af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
HMS hefur heimild til að birta niðurstöður þeirra rannsókna sem hljóta styrki úr sjóðnum og safna þeim saman á miðlægt vefsvæði Asks – mannvirkjasjóðs hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Lokaskýrsla verður birt á svæðinu sem og myndræn og upplýsandi kynning á verkefninu í formi myndbands og/eða PPT kynningar."
Birting á niðurstöðum rannsókna
Við birtingu á niðurstöðum í lokaskýrslu þarf að koma fram að verkefnið er styrkt af Aski - mannvirkarannsóknasjóði.
"Þetta verkefni er styrkt af Aski - mannvirkjarannsóknarsjóði. Sjóðurinn veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun.
Askur er fjármagnaður sameiginlega af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Stjórn og dagleg umsýsla sjóðsins er í höndum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Frekari upplýsingar um sjóðinn eru á vefsíðu hans hms.is/askur
Skýrslan er unnin af ofangreindum höfundum sem eru eigendur skýrslunnar og bera ábyrgð á innihaldi hennar."
Þegar styrkta verkefnið er ritrýnd grein
Acknowledgements: This report is funded / funded partially by Askur - mannvirkjarannsóknasjóður (e. Askur - Research Fund for the Construction Industry) which is managed by the Housing, Construction and Planning Authorities of Iceland and funded by the Icelandic ministry of Social Affairs and Housing and the ministry of Culture, Innovation and Higher education.
The authors of the report are the owners of the report and are responsible for its content. Any opinions, findings and conclusions or recommendations expressed in this material are those of the authors and do not necessarily reflect the viewes of the Housing, Construction and Planning Authorities.