Þegar lagt er mat á greiðslubyrði er mikilvægt að skoða bæði greiðslubyrði í skemmri og lengri tíma.
Lán Húsnæðis- og mannvirkjastofnun má stytta eða lengja í 5, 10, 15, 20, 25, 30 eða 35 ár.
Lán þurfa að vera í fullum skilum til að lenging eða stytting lánstíma geti farið fram.
Ef óskað er eftir greiðsluerfiðleikaaðstoð og skilyrði þar að lútandi eru uppfyllt er hægt að lengja lánið um allt að 30 ár en þó má hámarkslánstími ekki fara yfir 70 ár.
Ef lánstíma hefur verið breytt áður, þá getur greiðandi óskað eftir því að lánstímanum verði breytt í upprunalegan fjölda gjalddaga. Dæmi: hafi lán verið gefið út til 20 ára og lántaki óskað eftir því að lánstími yrði lengdur í 40 ár, þá er heimilt að stytta lánið aftur í 20 ár, óski lántaki eftir því. Það á jafnt við um lán með og án uppgreiðsluákvæðis.
Áhrif styttingar eða lengingar láns
Stytting
- Hærri mánaðarleg greiðslubyrði í fyrstu.
- Minni vaxtabyrði af láninu í heild.
- Færri gjalddagar til greiðslu.
Lenging
- Lægri mánaðarleg greiðslubyrði í fyrstu.
- Hærri vaxtabyrði af láninu í heild.
- Fleiri gjalddagar til greiðslu.
Fyrir hverja lengingu/styttinu er tekið gjald, samkvæmt gjaldskrá HMS. Því er bætt inn á lánið og kemur til innheimtu á næsta gjalddaga þess.