4. september 2026
7. september 2026
Hlutdeild fyrstu kaupenda hefur aukist á síðustu árum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Að heimsfaraldrinum undanskildum hefur hlutdeild fyrstu kaupenda ekki verið hærri í 19 ár
- Fyrstu kaupendur eru þó færri í ár en þeir hafa verið á síðustu árum
- Að meðaltali hefur þriðjungur allra kaupsamninga verið um fyrstu kaup
Fyrstu kaupendur komu að rúmlega 36% allra kaupsamninga sem þinglýst var á fyrri helmingi þessa árs. Hlutfall fyrstu kaupa á fasteignamarkaði er með því hæsta sem mælst hefur frá árinu 2007, þótt fjöldi fyrstu kaupenda sé undir meðaltali síðustu ára.
Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir septembermánuð, en skýrslan kemur út fimmtudaginn 17. september.
Þriðjungur allra kaupsamninga hafa verið um fyrstu kaup
Í mælaborði um fyrstu kaupendur á heimasíðu HMS má nálgast mánaðartölur um fjölda kaupsamninga eftir tegund kaupenda frá ársbyrjun 2007. Samkvæmt mælaborðinu hafa fyrstu kaupendur að jafnaði staðið að baki 32% allra kaupsamninga á tímabilinu.
Á mynd hér að neðan má sjá fjölda og hlutfall fyrstu kaupa eftir árshelmingum. Líkt og myndin sýnir hefur hlutdeild fyrstu kaupa verið nokkuð stöðug á tímabilinu, en hún var þó sérstaklega lítil eftir fjármálahrunið árið 2009 og í kringum uppkaup Þórkötlu á fasteignum í Grindavík árið 2024.
Á fyrri helmingi þessa árs hefur hlutfall fyrstu kaupa náð 36%, sem er með því hæsta sem mælst hefur síðustu 19 árin. Ef litið er til síðustu sex mánaða er hlutfallið 37%. Hlutfallið hefur aðeins verið sambærilegt á tímum heimsfaraldursins árin 2020 og 2021, en þá komu fyrstu kaupendur að 37% allra kaupsamninga.
Færri fyrstu kaupendur en á síðustu árum
Þrátt fyrir hátt hlutfall fyrstu kaupa er fjöldi kaupsamninga fyrstu kaupenda undir meðaltali síðustu tíu ára. Á fyrri helmingi þessa árs komu fyrstu kaupendur að 1.762 kaupsamningum, en að meðaltali voru um 1.900 kaupsamningar hjá fyrstu kaupendum í hverjum árshelmingi á tímabilinu 2016-2025.
Þegar vextir voru í lágmarki á árunum 2020 og 2021 voru kaupsamningar fyrstu kaupenda um 2.870 á hverjum árshelmingi, rúmlega helmingi fleiri en þeir voru á fyrri hluta þessa árs. Þó hafa fleiri íbúðir verið keyptar af fyrstu kaupendum á nýliðnum árshelmingi heldur en á nokkrum árshelmingi á tímabilinu 2008-2019.
Líkt og HMS fjallaði um í mánaðarskýrslu sinni fyrir ágústmánuð njóta langflestir fyrstu kaupendur aðstoðar frá foreldrum eða nánum ættingjum þegar kemur að kaupum á fyrstu fasteign, samkvæmt fasteignasölum. Hlutdeildarlán frá HMS hafa einnig skipt máli, en rúmlega fimmtungur fasteignasala segjast hafa komið að fasteignakaupum fyrstu kaupenda sem fjármögnuð voru með hlutdeildarláni á síðasta ári.
Nýr póstlisti hagdeildar HMS
Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.
Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Nýjustu tölur og mælingar HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




