4. september 2026

Greiðsla húsnæðisbóta í ágúst 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS greiddi alls 924 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í ágúst
  • Yfir 17 þúsund heimili á leigumarkaði fengu húsnæðisbætur í mánuðinum
  • Rúmlega 1.200 heimili í Skagafirði og Kópavogi fengu sérstakan húsnæðisstuðning

Þann 1. september síðastliðinn greiddi HMS um 924 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í ágúst. Greiðslurnar styðja við þúsundir heimila um land allt og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði tekju- og efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.

Al­menn­ar hús­næð­is­bæt­ur

Húsnæðisstuðningurinn skiptist í tvo meginflokka, annars vegar almennar húsnæðisbætur og hins vegar sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga.

Stærsti hluti greiðslna í ágúst var vegna almennra húsnæðisbóta. HMS greiddi tæpar 889 milljónir króna til um 17.558 heimila í almennar húsnæðisbætur. Þetta samsvarar um þriðjungi af áætlaðri stærð leigumarkaðarins, en HMS áætlar að hann telji um 50 þúsund heimili.

Sér­stak­ur hús­næð­isstuðn­ing­ur fyr­ir Kópa­vog og Skaga­fjörð

Auk þess greiddi HMS sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Í ágúst voru greiddar tæpar 35 milljónir króna til 1.126 heimila í Kópavogi og 84 heimila í Skagafirði. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er honum ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS