31. ágúst 2026
31. ágúst 2026
Brunahólfandi hurðir geta skipt sköpum þegar eldur kemur upp
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Aðlögunartímabili vegna brunahólfandi innihurða lýkur 1. október 2026
- Brunahólfandi hurðir eru mikilvægur öryggisbúnaður sem takmarkar útbreiðslu elds og reyks og getur veitt fólki dýrmætan tíma til að komast í öruggt skjól
- Aðeins hurðargerðir sem þegar eru komnar í formlegt prófunarferli geta komið til greina fyrir tímabundna framlengingu aðlögunartímans
Aðlögunartímabili sem tók gildi í mars 2024, lýkur 1. október 2026
Brunahólfandi hurðir eru ekki hefðbundnar innihurðir heldur mikilvægur hluti af brunavörnum mannvirkja. Hlutverk þeirra er ekki einungis að afmarka rými og veita næði heldur að takmarka og tefja útbreiðslu elds og reyks milli brunahólfa og tryggja þannig að fólk hafi þann tíma sem þarf til að yfirgefa mannvirki með öruggum hætti. Ef þær virka ekki eins og ætlað er getur það haft bein áhrif á líf og öryggi fólks. Það er ástæðan fyrir því að gerðar eru ríkar kröfur um að sýnt sé fram á eiginleika þeirra með áreiðanlegum hætti, þ.e. með faggiltum prófunum og rekjanlegum gögnum.
Frá og með 1. október 2026 lýkur aðlögunartímabili vegna brunahólfandi innihurða. Eftir þann tíma verða aðeins heimilar á markaði hurðir sem byggja á fullnægjandi og rekjanlegum gögnum um nothæfi þeirra. Breytt verklag á að tryggja samræmda og skilvirka afgreiðslu sem uppfyllir skilyrði gildandi laga og er jafnframt til þess fallið að undirbúa innlenda framleiðendur fyrir það ef gefinn verður út samhæfður vörustaðall fyrir innihurðir.
Málið snýst um öryggi fólks
Brunahólfandi innihurðir gegna lykilhlutverki í brunahólfun mannvirkja. Þær eiga að koma í veg fyrir að eldur og reykur berist hratt milli rýma og tryggja að flóttaleiðir haldist greiðfærar eins lengi og þörf er á. Slík brunahólfun getur ráðið úrslitum um hvort fólk komist út eða hvort slökkvilið fái það svigrúm sem þarf til að bjarga fólki út.
Vísbendingar eru um að hér á landi hafi verið settar upp hurðir þar sem ekki hefur verið sýnt fram á með fullnægjandi hætti að þær uppfylli kröfur sem gerðar eru til brunavarna. Brunahólfandi hurð sem uppfyllir ekki kröfur eða röng uppsetning getur rofið brunahólfun og flýtt fyrir útbreiðslu elds og reyks. Þess vegna hefur HMS unnið markvisst að samræma verklag og tryggja að kröfur um brunahólfandi hurðir séu uppfylltar.
Hátt í 20 framleiðendur hafa farið í prófunarferli
Á aðlögunartímabilinu hefur HMS unnið með markaðsaðilum, haldið kynningarfundi, gefið út leiðbeiningar og komið á samstarfi við danska prófunaraðilann DBI til að styðja við nauðsynlegar brunaprófanir. Alls hafa 17 framleiðendur brunahólfandi innihurða hafið undirbúning að brunaprófunum í gegnum samstarfsvettvanginn Burð.
Þeir framleiðendur sem hafa hafið formlegt prófunarferli geta sótt um tímabundna framlengingu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Markmiðið er að tryggja að þeim prófunum sem þegar eru komnar af stað verði lokið og að viðkomandi hurðir geti í framhaldinu farið í gegnum nauðsynlegt staðfestingarferli til að sýna fram á nothæfi þeirra.
Aðlögunartími verður aðeins framlengdur fyrir hurðir í formlegu prófunarferli
HMS mun ekki veita almenna framlengingu að loknu aðlögunartímabilinu 1. október nk. Aðeins verður tekið til skoðunar að veita framlengingu fyrir tilteknar hurðargerðir sem þegar hafa hafið prófunarferli hjá faggiltri prófunarstofu. Sækja þarf sérstaklega um framlengingu til HMS og þurfa meðal annars eftirfarandi upplýsingar að vera fyrirliggjandi samhliða umsókn:
- hvaða hurðargerð eða hurðargerðir verða prófaðar,
- hver framleiðandi vörunnar er,
- hvaða prófunarstofa annast prófunina,
- hvaða prófunarstaðli prófað verður eftir,
- framangreint skal staðfest af viðkomandi prófunarstofu
Þeir aðilar sem fá tímabundna framlengingu þurfa jafnframt að skila HMS reglubundnum upplýsingum um framgang prófana. Að lágmarki skal á fimm mánaða fresti liggja fyrir staðfesting um stöðu viðkomandi hurðargerða og framgang í prófunarferlinu. Þegar prófunardagsetning liggur fyrir skal hún tilkynnt HMS án tafar.
Að loknum prófunum skal sækja um staðfestingu/gagnkvæma viðurkenningu til HMS á grundvelli niðurstaða prófananna. Umsækjandi skal senda til HMS tilheyrandi gögn til yfirferðar.
Öryggisbúnaður sem verður að virka
Framleiðendur hafa haft rúm tvö og hálft ár til að hefja nauðsynlegar prófanir og aðlaga sig breyttu verklagi. Framlenging er því aðeins ætluð þeim hurðargerðum sem þegar eru komnar í formlegt prófunarferli. Að prófun lokinni þurfa fullnægjandi gögn að liggja fyrir áður en unnt er að staðfesta nothæfi vörunnar. Brunahólfandi hurðir eiga að virka þegar mest liggur við. Þær eiga að veita fólki tíma til að komast í öruggt skjól og slökkviliðum svigrúm til að bregðast við. Þess vegna verða þær að byggja á prófunum og rekjanlegum gögnum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




