31. ágúst 2026
2. september 2026
Öll sveitarfélög hafa lokið álagningu fasteignagjalda 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Öll 62 sveitarfélög landsins hafa lokið álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026 og álagningarseðlar hafa verið birtir á Mínum síðum á Ísland.is
- Unnið er að uppfærslu álagninga vegna meðal annars eigendaskipta, nýrra lóða og breytinga á fasteignamati
- Undirbúningur fyrir álagningu fasteignagjalda árið 2027 er hafinn hjá mörgum sveitarfélögum
Öll 62 sveitarfélög landsins hafa nú lokið álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026 og birt álagningarseðla á Mínum síðum á Ísland.is.
Nú vinna sveitarfélögin að breytingum á fyrri álagningum og eru að taka inn nýja eigendur/gjaldendur á eignum sem hafa gengið kaupum og sölum frá áramótum. Eins eru þau að leggja á fasteignamat nýrra lóða sem stofnaðar hafa verið frá áramótum og á húsmat á fasteignum sem eru að koma inn á fokheldi eða hærra byggingastigi/matstigi.
Mörg sveitarfélög hafa hafið vinnu við áætlunarálagningar í álagningakerfi fasteignagjalda á nýja fasteignamatið og prófað sig áfram með álagningarprósentur og upphæðir í gjöldum fyrir fjárhagsáætlun ársins 2027.
Sveitarfélög sem það gera hafa gert endurreikning afslátta á þegar veittan afslátt af fasteignaskatti í álagningakerfi fasteignagjalda miðað við nýjar tekjuupplýsingar eftir birtingu álagningarskrár Skattsins.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




