Rafmagnsöryggi
Rafmagnsöryggi
Rafmagnsöryggi
Rafmagnsöryggi
Búnaður á sprengihættustöðum
Búnaður á sprengihættustöðum
Allur búnaður til notkunar á sprengihættustöðum sem markaðssettur er á Íslandi skal uppfylla ákvæði sem fram koma í reglugerð um búnað og verndarkerfi sem ætluð eru til notkunar í mögulega sprengifimu lofti, nr. 313/2018.
Ofangreind reglugerð er byggð á tilskipun Evrópusambandsins um sama efni, 2014/34/ESB (ATEX*), og gilda því sömu reglur á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), sem samanstendur af Evrópusambandinu (ESB), Íslandi, Liechtenstein og Noregi, um þann búnað sem fellur undir tilskipanir ESB sem staðfestar hafa verið af sameiginlegu EES-nefndinni.
Í reglugerðinni eru skilgreindar kröfur til búnaðar, samræmismatsaðferðir, skyldur rekstraraðila (framleiðenda, innflytjenda og dreifenda), kröfur um CE-merkingu, Ex-merkingu, ESB-samræmisyfirlýsingu, tæknigögn o.fl.
Framleiðendur, innflytjendur og eftir atvikum aðrir rekstraraðilar bera ábyrgð á að ákvæðum ofangreindrar reglugerðar sé fylgt. Faggiltar skoðunarstofur í umboði HMS sjá með virku markaðseftirliti til þess að búnaður uppfylli þau skilyrði sem sett eru í reglugerðinni.
*) ATEX (ATmosphere EXplosibles) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/34/ESB frá 26. febrúar 2014 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi búnað og verndarkerfi sem ætluð eru til notkunar í hugsanlega sprengifimu lofti.
Nánari upplýsingar, reglugerð og tilskipun
- Reglugerð nr. 313/2018 um búnað og verndarkerfi sem ætluð eru til notkunar í mögulega sprengifimu lofti
- ATEX-tilskipunin um búnað og verndarkerfi til notkunar á sprengihættustöðum, ásamt ítarefni
- Samhæfðir staðlar, ATEX
- ESB-samræmisyfirlýsing (dæmi á íslensku)
- ESB-samræmisyfirlýsing (dæmi á ensku)
- CE-merkingin
- Leiðbeiningar um sprengifimt andrúmsloft á vinnustöðum