Lífsferilsgreining (LCA)

Lífsferilsgreining (LCA)

Lífsferilsgreining (LCA)

Lífsferilsgreining (LCA)

Skilagátt LCA

Í þeim sveitarfélögum þar sem nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa HMS hefur ekki verið tekið í notkun á að skila lífsferilsgreiningum í gegnum LCA skilagátt

Í þeim sveitarfélögum þar sem nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa HMS hefur verið tekið í notkun á að skila lífsferilsgreiningum beint í nýja umsóknarviðmótinu.

Upplýsingar um hvaða sveitarfélög hafa tekið nýja umsóknarviðmótið í notkun má finna hér: Byggingarleyfi | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Hverju þarf að skila og hvenær?

  • Frá og með 1. september 2025 taka gildi kröfur í byggingarreglugerð um gerð og skil lífsferilsgreininga fyrir nýbyggingar í 2. og 3. umfangsflokki, með áherslu á að reikna kolefnisspor á hönnunarstigi. Lífsferilsgreiningu þarf að skila í byggingarleyfisumsókn áður en byggingarleyfi er veitt.
  • Niðurstöðum skal skilað inn í gegnum nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa HMS eða í gegnum rafræna LCA skilagátt hjá HMS. Það er gert bæði með því að brjóta niður niðurstöðurnar á hvern lífsferilsfasa A1-A3, A4, A5, B4, B6, C1-C4 og D er valfrjáls. Eining losunar skal gefin upp á fermetra á ári [kg CO2-ígilda á m2 á ári], það skal miða fermetra fjölda við brúttó fermetra. Losun samkvæmt loftslagsáhrifaflokki GWP Total eða GWP GHG skal vera reiknuð.
  • Ef verið er að nota tölur úr skráningartöflu er hægt að miða við dálk D8 brúttóflatarmál.

Ef lífsferilsgreiningum er skilað í gegnum LCA skilagáttina þarf að hlaða niður kvittun sem staðfestingu á skilum þegar niðurstöðum hefur verið skilað inn. Sú staðfesting hluti þeirra gagna sem þurfa að liggja fyrir svo byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi. Í þeim sveitarfélögum sem nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa hefur verið tekið í notkun er lífsferilsgreiningum skilað beint inn í umsóknarviðmótið ásamt öðrum gögnum fyrir umsókn um byggingarleyfi.

Ekki er gerð krafa um að þeir aðilar sem geri lífsferilsgreiningar hafi lokið tilteknu námi eða hafi sérstök réttindi, en þó er ætlast til að þekking á mannvirkjagerð sé til staðar. Hins vegar er lagt til að notaður verði hugbúnaður fyrir LCA greiningar til að tryggja gæði gagna, rekjanleika og einfalda LCA sérfræðingum og hönnuðum vinnuna. Ekki er gerð krafa um notkun á ákveðnum hugbúnaði umfram annan, en ætlast til að allar forsendur og bakgrunnsgögn liggi fyrir.

Upplýsingum um losun verður safnað saman til nánari rannsókna en upplýsingarnar verða ekki rekjanlegar. Önnur úrvinnsla gagna verður gerð til að þróa viðmiðunarmörk í framtíðinni.