16. júlí 2025

Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,41 prósent á milli mánaða í júní 2025

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Leiguverð lækkaði í júní eftir að hafa hækkað mikið síðustu fjóra mánuði
  • Hægt hefur á hækkun vísitölu leiguverðs síðustu mánuði og nam 12 mánaða hækkun hennar 5,77 prósent í júní
  • Markaðsleiga hækkaði um 1,5 prósent að raunvirði á ársgrundvelli í júní, samanborið við 4,9 prósenta raunverðshækkun í maí

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 122,8 stig og lækkaði um 0,41 prósent á milli mánaða í júní. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 5,77 prósent, á sama tíma og verbólga mældist 4,2 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 4,7 prósent.

Hægt er að nálgast mælaborð fyrir vísitölur HMS með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Raunverðshækkun vísitölu leiguverðs á ársgrundvelli er á niðurleið og nam 1,5 prósent í júní en til samanburðar hefur 12 mánaða raunhækkun leiguverðs verið á bilinu 2 til 8 prósent undanfarin tvö ár. Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo júnígildi hennar tekur mið af leigusamningum í maí og júní.

Hægt er að nálgast upplýsingar um leigusamninga í leiguverðsjá HMS, en hana má nálgast með því að smella á þennan hlekk.

Minni verð­þrýst­ing­ur á leigu­mark­aði en í fyrra

Á fyrri helmingi ársins hefur vísitala leiguverðs hækkað um 3,5 prósent að nafnvirði og 0,2 prósent að raunvirði. Á sama tímabili í fyrra hækkaði vísitalan öllu meira, eða um 9,6 prósent að nafnvirði og um 5,6 prósent að raunvirði. Framangreint er til marks um að dregið hafi úr verðþrýstingi á leigumarkaði undanfarið.

Því til stuðnings má jafnframt nefna að tíðni yfirboða á leigumarkaði hefur dregist saman milli ára. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 var umsamið leiguverð yfir auglýstu leiguverði í um 18 prósent leigusamninga. Það sem af er ári hafa aftur á móti öllu færri leigusamningar verið gerðir yfir auglýstu verði, eða að jafnaði 9 prósent leigusamninga.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS