8. maí 2025
29. september 2021
Þak á hámarksgreiðslubyrði hefur aðallega áhrif á þá tekjuhærri
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Fjármálastöðuleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að setja reglur um hámark greiðslubyrðar af nýjum lánum. Nýju reglurnar takmarka greiðslubyrgði nýrra lána í 35% af heildar ráðstöfunartekjum en í 40% hjá fyrstu kaupendum.[1] Fyrir vikið munu mörg heimili ekki getað tekið jafn há lán og áður í ljósi þessara takmarkana. Þessar breytingar hafa þó mismikil áhrif á lántakendur en í mörgum tilfellum er greiðslugeta lántakenda undir 35% samkvæmt greiðslumati bankanna og því ekki mögulegt að taka hærra lán.

HMS hefur tekið saman nokkur dæmi um hvernig þessar breytingar geta haft áhrif á hámarkslán hjá lántakendum miðað við mismunandi forsendur. Taflan hér að neðan sýnir áætlaða greiðslugetu samkvæmt greiðslumati miðað við mismunandi forsendur um fjölda barna og fjölda bifreiða.[2] Eins og sjá má eru þessar reglur frekar takmarkandi hjá tekjuhærri heimilum en þeim tekjulægri. Þá eru þær síður bindandi eftir því sem að fjöldi barna eða bíla eykst.
Í dæmunum hér að ofan er ekki gert ráð fyrir neinum öðrum skuldum eða skuldbindingum, svo sem bílalánum eða námslánum en slíkar skuldbindingar lækka greiðslugetu og mögulegt hámarkslán. Eftir því sem aðrar skuldbindingar eru fleiri er ólíklegra að nýtt þak á hámarksgreiðslubyrði hafi áhrif þar sem almenn greiðslugeta fólks lækkar og verður þannig takmarkandi þáttur.
Ljóst er að nýjar reglur um hámarskgreiðslubyrði eiga eftir að takmarka getu heimilanna til skuldsetningar og stemma þannig stigu við hækkandi fasteignaverði. Þetta eru ekki fyrstu aðgerðir Seðlabankans sem miða að því að kæla fasteignamarkaðinn en í lok júní tilkynnti hann um lækkun hámarksveðsetningarhlutfalls úr 85% í 80% fyrir aðra en fyrstu kaupendur. Því til viðbótar hefur bankinn hækkað stýrivexti tvívegis á seinustu mánuðum.
[1] Lánveitendum er þó veitt undanþága frá reglunum fyrir allt að 5% heildarfjárhæðar nýrra fasteignalána sem veitt er á hverjum ársfjórðungi.
[2] Forsendur í greiðslumati geta verið mismunandi á milli banka og niðurstöður geta verið breytilegar út frá öðrum forsendum. Ekki er gert ráð fyrir neinum öðrum tekjum eða skuldum. Hámarkslán miða við 40 ára lán á 4% vöxtum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS