30. janúar 2025
29. janúar 2025
Rauntímaupplýsingar um íbúðir í byggingu aðgengilegar í mannvirkjaskrá
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Nýtt mælaborð íbúða í byggingu aðgreinir íbúðir sem byrjað er að byggja frá íbúðum sem einungis eru samþykkt byggingaráform um og útgefin byggingarleyfi
- Mælaborðið bendir til þess að álíka margar íbúðir séu nú í byggingu og við síðustu íbúðatalningu HMS í fyrrahaust
- Stafræn byggingarleyfi munu draga úr gagnaóvissu, en við uppfærslu mælaborðsins kom í ljós að íbúðir í byggingu hafi áður verið oftaldar um 4 prósent
Mælaborð íbúða í byggingu
Vísbending um svipuð umsvif íbúðauppbyggingar frá síðustu talningu
HMS hefur hingað til greint sérstaklega frá fjölda íbúða sem einungis voru byggingaráform í reglulegum fréttatilkynningum um fjölda íbúða í byggingu en nú verða þessar upplýsingar aðgengilegar í sem næst rauntíma. Í október voru 7.585 íbúðir í byggingu en þar af voru um 800 íbúðir einungis byggingaráform, en í nóvember voru 7.839 íbúðir í byggingu en þar af töldust um 1.254 íbúðir vera byggingaáform.
Samkvæmt nýju mælaborði mannvirkjaskrár eru framkvæmdir hafnar á 6.605 íbúðum af þeim 7.544 byggingaleyfum sem eru útgefin, en byggingaráform eru um 939 íbúðir. Fjöldi íbúða í byggingu auk byggingaráforma er því 7.544.
Mælaborði íbúða í byggingu í mannvirkjaskrá er ætlað að gefa upplýsingar um rauntímastöðu íbúðauppbyggingar um allt landið, en HMS metur einnig stöðu íbúðauppbyggingar með talningum sem framkvæmdar eru tvisvar á ári í mars- og septembermánuði. Samkvæmt síðustu íbúðatalningu HMS voru um 7.200 íbúðir í byggingu í september 2024, og hafði þeim fækkað úr tæplega 8.000 íbúðum í mars 2024.
Nýjar framkvæmdir sem hafist var handa við frá október 2024 gæti að hluta vantað í mælaborðið ef HMS hefur ekki borist skráning byggingaleyfa frá byggingarfulltrúum. HMS er í daglegum samskiptum við byggingafulltrúa um allt land til að tryggja réttari skráningu útgefinna byggingaleyfa. Auk þess nýtast talningar HMS á íbúðum í byggingu til að gefa nákvæmari upplýsingar.
Tvískráðar íbúðir fjarlægðar úr mælaborðinu og stafræn byggingaleyfi verða innleidd í ár
Við uppfærslu mælaborðsins kom í ljós að mælaborðið ofmat fjölda íbúða í byggingu um tæplega 300 vegna tvískráningar í kerfum HMS og sveitarfélaga. Þetta jafngildir 4 prósentum af heildarfjölda íbúða í byggingu. Tvískráningin var tilkomin vegna innlesturs á gögnum fyrir íbúðir sem ekki var búið að skrá og staðfesta í fasteignaskrá.
Með innleiðingu á stafrænu umsóknarviðmóti byggingaleyfa fyrir öll sveitarfélög landsins mun þessi áhætta á frávikum í rekstri mannvirkjaskrár hverfa. Lesa má nánar um vinnu við stafræn byggingarleyfi hér, en um er að ræða eitt samræmt viðmót og verkferil fyrir öll sveitarfélög í stað 62 mismunandi viðmóta og ferla. Innleiðing á stafrænum byggingarleyfum er hafin og gert er ráð fyrir að þau verði tekin upp í Reykjavík um mitt árið.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS