22. september 2026
Íbúðir í byggingu
Skoða skýrslu
Á hverju ári lætur HMS framkvæma mælingu á stöðu leigjenda í formi spurningakönnunar. Könnunin er borin undir leigjendur eingöngu og þeir spurðir um fjárhag, viðhorf, bakgrunn og önnur atriði er varða stöðu þeirra á leigumarkaði. Kannanir HMS hafa alla jafna náð að takmörkuðu leyti til aðfluttra á leigumarkaði, en í ár voru valdar spurningar lagðar sérstaklega fyrir úrtak sem samanstóð af félagsmönnum stéttarfélaganna Eflingar, VR og Einingar-Iðju sem eru annaðhvort með erlent upprunaland, ríkisfang eða hvoru tveggja.
Leigukannanirnar hafa verið framkvæmdar á tímabilinu júní til september og ná til einstaklinga 18 ára og eldri sem eru á leigumarkaði á landinu öllu. Prósent sá um framkvæmd könnunarinnar fyrir HMS í ár og var gögnum safnað á tímabilinu 21. júlí 2026 til 9. september 2026.
Úrtakið var þrískipt í ár. Í fyrsta lagi var könnunin í heild sinni lögð fyrir tilviljunarúrtak einstaklinga 18 ára og eldri úr könnunarhópi Prósents og í öðru lagi fyrir tilviljunarúrtak Íslendinga 18 ára og eldri úr Þjóðskrá. Könnunin var lögð fyrir 3.632 einstaklinga í úrtökunum tveimur en alls bárust 613 svör og svarhlutfall var því 17%. Í þriðja lagi voru valdar spurningar lagðar fyrir félagsmenn Eflingar, VR og Einingar-Iðju sem eru ýmist með erlent upprunaland, ríkisfang eða hvoru tveggja. Spurningarnar voru lagðar fyrir 20.359 einstaklinga úr því úrtaki en alls bárust 1.601 svar sem gerir um 8% svarhlutfall.
Niðurstöðurnar hafa verið vigtaðar til að úrtakið endurspegli sem best álit leigjenda. Frá 2023 til 2025 voru gögn vigtuð út frá könnunarhópi Prósents og miðaðist vigtun við kyn, aldur og búsetu. Í ár hafa niðurstöðurnar aftur á móti verið vigtaðar út frá samsetningu leigjenda í leiguskrá HMS með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og upprunalands. Í ljósi breyttra vigtunaraðferða gæti samanburðarhæfni gagna á milli ára verið skert.
Kannanir af þessu tagi eru mikilvægar svo unnt sé að fá mynd af stöðu mismunandi hópa á leigumarkaði og taka upplýstar ákvarðanir um stefnumörkun í málaflokknum. Í þessari skýrslu er fjallað um helstu niðurstöður könnunarinnar í ár og þær settar í samhengi við þróun undanfarinna ára. Þar sem við á eru niðurstöðurnar jafnframt greindar eftir uppruna leigjenda. Í ljósi þess að úrtak aðfluttra leigjenda samanstendur nánast alfarið af einstaklingum sem eru virkir á vinnumarkaði er samanburðarhópur leigjenda af íslenskum uppruna jafnframt takmarkaður við þá stöðu á vinnumarkaði.
Leigjendur telja framboð af hentugu íbúðarhúsnæði til leigu almennt vera lítið hér á landi. Niðurstöður leigumarkaðskannana undanfarinna ára benda hins vegar til þess að það hafi aukist að mati leigjenda.
Framboð á leigumarkaði náði hámarki árið 2020 þegar aðstæður til íbúðarkaupa voru sem hagstæðastar. Hluti leigjenda komst þá í eigið húsnæði og í kjölfarið losnaði fyrra húsnæði þeirra til leigu. Á þeim tíma sáu fjármagnseigendur jafnframt tækifæri til að fjárfesta í íbúðarhúsnæði til að leigja út. Þá hurfu ferðamenn af landinu um stund á meðan óvissa vegna heimsfaraldursins var hvað mest, sem varð til þess að nokkur fjöldi leiguíbúða færðist af skammtímaleigumarkaði yfir á langtímaleigumarkað.
Þegar mesta ógnin af heimsfaraldrinum var yfirstaðin og fleiri ferðamenn komu til landsins jókst umfang skammtímaleigumarkaðarins á ný og framboð á leiguhúsnæði dróst saman. Vaxtastig í landinu fór jafnframt hækkandi frá miðju ári 2021 og samhliða versnuðu aðstæður til íbúðarkaupa.
Frá og með 2023 tók svo að hægja á aðflutningi erlendra ríkisborgara til landsins og samhliða töldu leigjendur framboð á leigumarkaði aukast lítillega ár frá ári. Þar gæti einnig hafa haft áhrif að á undanförnum árum hafa reglur um skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis í þéttbýli verið hertar.
Helmingur svarenda telur að framboð af íbúðum til leigu muni standa í stað á næstu tólf mánuðum en tæplega fjórðungur telur að það muni aukast aðeins. Leigjendur eru bjartsýnni á þróun framboðs af leiguhúsnæðis nú heldur en undanfarin ár, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Á sama tíma og leigjendur telja framboð af leiguhúsnæði hafa aukist hefur dregið úr verðþrýstingi á leigumarkaði undanfarin ár. Hægt hefur á leiguverðshækkunum á höfuðborgarsvæðinu eftir miklar hækkanir á árunum 2023 og 2024. Frá áramótum hefur leiguverð að mestu staðið í stað að raunvirði á ársgrundvelli, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Leiguverð er þó enn að hækka að nafnvirði samkvæmt vísitölu leiguverðs, en tólf mánaða hækkun vísitölunnar hefur mælst í kringum 5% undanfarna mánuði. Leigjendur vænta þess flestir að leiguverð haldi áfram að hækka á næstu tólf mánuðum.
Tæplega 40% svarenda sem tóku afstöðu í nýjustu könnuninni telja að verð muni hækka töluvert, þ.e. um meira en 5%, en um 45% telja að það muni hækka eitthvað. Einungis 2% telja að leiguverð muni fara lækkandi á næstu mánuðum á meðan um 13% svarenda telja að það muni standa í stað. Það er nokkuð hærra hlutfall en í könnunum undanfarinna ára þegar það hefur mælst á bilinu 6% til 8%.
Algengast er að leiga nemi á bilinu 30 til 39% af ráðstöfunartekjum heimila samkvæmt niðurstöðum leigumarkaðskönnunarinnar. Um 20% greiða á bilinu 20 til 29% af ráðstöfunartekjum heimilisins í leigu á meðan um 8% greiða minna en fimmtung tekna í leigu.
Húsnæðiskostnaður telst almennt íþyngjandi ef hann nemur meira en 40% af ráðstöfunartekjum heimilis. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar býr um 45% leigjenda við íþyngjandi leigubyrði þegar einungis er tekið tillit til leigufjárhæðar en ekki annars húsnæðiskostnaðar. Þar af greiða um 13% leigjenda meira en 60% ráðstöfunartekna heimilisins í leigu.
Leigjendur greiddu að meðaltali um 43% af ráðstöfunartekjum sínum í leigu í maí samkvæmt könnuninni. Leigjendur af erlendum uppruna greiddu að jafnaði hærra hlutfall tekna sinna í leigu en leigjendur af íslenskum uppruna, eða 45% samanborið við 38%, sé einungis litið til leigjenda sem eru virkir þátttakendur á vinnumarkaði.
Sé einungis litið til svarenda af íslenskum uppruna, til að tryggja samanburðarhæfi við niðurstöður undanfarinna ára, mældist hlutfallið um 41% í ár. Hlutfallið hefur lækkað lítillega undanfarin ár síðan að það mældist 45% árið 2021. Hlutfallið mældist þó um 40% á tímabilinu 2017 til 2019, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Byrði leigukostnaðar mælist að jafnaði þyngri á höfuðborgarsvæðinu heldur en utan þess, sé litið til allra svarenda. Á höfuðborgarsvæðinu greiða leigjendur að meðaltali 45% af ráðstöfunartekjum heimilis í leigu, þar sem 48% leigjenda búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað. Utan höfuðborgarsvæðisins greiða leigjendur að jafnaði 38% ráðstöfunartekna heimilis í leigu, og þar mælist byrði leigukostnaðar íþyngjandi hjá um 41% leigjenda.
Byrði leigukostnaðar er almennt lægri eftir því sem tekjur eru hærri eða leigufjárhæð lægri. Námsmenn, sem alla jafna hafa lágar tekjur, greiða til að mynda að meðaltali um 57% ráðstöfunartekna sinna í leigu. Leigjendur sem leigja af einkareknum leigufélögum eða einstaklingum greiða jafnframt hátt hlutfall ráðstöfunartekna heimilisins í leigu, eða á bilinu 43 til 48% að meðaltali. Leiga hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum er að jafnaði lægri en markaðsleiga, en þeir leigjendur greiða að jafnaði um 39% ráðstöfunartekna heimilisins í leigu.
Lægst er byrði leigukostnaðar hjá leigjendum sem leigja af sveitarfélögum, búseturéttarfélögum, ættingjum og vinum. Hjá þeim nemur leigufjárhæðin á bilinu 34 til 37% af ráðstöfunartekjum heimilis.
Hagstæð leiga stuðlar að því að leigjendur geti safnað sparifé. Þeir leigjendur sem segjast geta safnað talsverðu sparifé greiða að jafnaði 25% af ráðstöfunartekjum heimilisins í leigu á meðan þeir leigjendur sem nota sparifé til að ná endum saman greiða að jafnaði um 62% ráðstöfunartekna heimilisins í leigu.
Stór hluti leigjenda segist fá greiddar húsnæðisbætur frá HMS, eða um 43% svarenda í könnuninni. Húsnæðisbætur eru beinar greiðslur til leigjenda sem ætlað er að lækka kostnað við leigu íbúðarhúsnæðis og þar með byrði leigukostnaðar.
Leigjendur af íslenskum uppruna eru talsvert líklegri til að þiggja húsnæðisbætur heldur en leigjendur af erlendum uppruna. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar fá um 52% íslenskra leigjenda greiddar húsnæðisbætur samanborið við einungis 28% leigjenda af erlendum uppruna.
Mikill munur á hlutfalli leigjenda sem þiggur húsnæðisbætur eftir upprunalandi skýrist að hluta til af því að svarendur af erlendum uppruna eru líklegri til að vera virkir þátttakendur á vinnumarkaði heldur en leigjendur af íslenskum uppruna, þar sem úrtak aðfluttra samanstendur af félagsmönnum þriggja stéttarfélaga. Sé einungis litið til svarenda sem eru virkir á vinnumarkaði sögðust um 37% íslenskra leigjenda þiggja húsnæðisbætur samanborið við um 25% leigjenda af erlendum uppruna.
Af þeim sem fengu ekki húsnæðisbætur sögðust í kringum 30% ekki hafa sótt um bætur. Stór hluti þeirra vissi að þau uppfylltu ekki skilyrði húsnæðisbóta, til dæmis vegna of hárra tekna og eigna, og sóttu þar af leiðandi ekki um. Rúmlega fjórðungur leigjenda af erlendum uppruna sem sótti ekki um húsnæðisbætur kvaðst hins vegar ekki vita að það væri hægt, en það hlutfall mældist hverfandi meðal íslenskra leigjenda.
Heimilistekjur leigjenda af erlendum uppruna eru að jafnaði rúmlega 20% lægri en heimilistekjur leigjenda af íslenskum uppruna samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, sé einungis litið til leigjenda sem eru virkir þátttakendur á vinnumarkaði. Meðalheimilistekjur erlendra leigjenda voru þannig um 662 þúsund krónur samanborið við um 841 þúsund krónur meðal innfæddra leigjenda.
Líkt og fjallað var um ofar í skýrslunni greiða aðfluttir leigjendur að jafnaði hærra hlutfall heimilistekna í leigu, eða um 45% samanborið við 38% meðal leigjenda af íslenskum uppruna. Þrátt fyrir það geta leigjendur af erlendum uppruna safnað sparifé í talsvert meira mæli en leigjendur af íslenskum uppruna, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar segjast um 62% leigjenda af erlendum uppruna getað safnað sparifé á meðan einungis um 42% leigjenda af íslenskum uppruna segjast geta það. Á sama hátt segjast einungis 13% aðfluttra leigjenda nota sparifé til að ná endum saman eða safna skuldum, samanborið við um 21% innfæddra leigjenda. Þess ber þó að geta að í samsettum búsetukönnunum meðal aðfluttra og innfæddra mældist ekki marktækur munur á sparnaðargetu leigjenda eftir uppruna.
Óvíst er hvaða ástæður liggja að baki meiri sparnaðargetu aðfluttra leigjenda. Niðurstöðurnar benda þó til þess að aðfluttir leigjendur verji lægra hlutfalli af heimilistekjum til annarra útgjalda þar sem heimilistekjur þeirra eru að meðaltali lægri og leiga nemur hærra hlutfalli af ráðstöfunartekjum heimilis heldur en meðal leigjenda af íslenskum uppruna. Þar kann að hafa áhrif að hluti leigjenda með erlendan uppruna kemur hingað til lands að meginástæðu til þess að vinna og hyggjast flytja af landi brott í náinni framtíð. Samkvæmt könnuninni telja 42% leigjenda með erlendan uppruna að þeir muni ekki búa á Íslandi til frambúðar.
Leigjendur hafa að jafnaði búið í rúm fjögur ár í því húsnæði sem þeir búa í þessa stundina, en sá tími hefur lengst undanfarin ár. Til samanburðar höfðu leigjendur að jafnaði búið í tæplega tvö og hálft ár í þáverandi húsnæði árið 2020. Árið 2015 mældist meðaltíminn í þáverandi húsnæði tæplega þrjú ár.
Á sama tíma og meðaltími í núverandi húsnæði hefur lengst hefur meðaltíðni flutninga smám saman farið lækkandi undanfarin ár. Niðurstöður nýjustu könnunarinnar gefa til kynna að leigjendur hafi að meðaltali flutt rétt rúmlega þrisvar sinnum á síðastliðnum 10 árum, en árið 2018 höfðu leigjendur að meðaltali flutt tæplega fjórum sinnum á tíu ára tímabili þar á undan.
Eftir því sem leigjendur hafa búið lengur í núverandi húsnæði og flutt sjaldnar á síðastliðnum 10 árum upplifa þeir að jafnaði meira húsnæðisöryggi. Þeir leigjendur sem telja sig ekki búa við húsnæðisöryggi nefna tímabundna leigusamninga og mögulega sölu þess íbúðarhúsnæðis sem þeir hafa búsetu í meðal helstu ástæðna húsnæðisóöryggis.
Um 55% leigjenda sem eru virkir á vinnumarkaði telja sig búa við húsnæðisöryggi hér á landi, á meðan um 28% telja sig ekki búa við húsnæðisöryggi. Samkvæmt niðurstöðum leigumarkaðskönnunarinnar upplifa innfæddir leigjendur meira húsnæðisöryggi heldur en leigjendur af erlendum uppruna. Þess ber þó að geta að í samsettum búsetukönnunum meðal aðfluttra og innfæddra mældist ekki marktækur munur á húsnæðisöryggi leigjenda eftir uppruna.
Samkvæmt niðurstöðum þessarar könnunar voru 62% innfæddra leigjenda sammála fullyrðingunni „Ég tel mig búa við húsnæðisöryggi“, samanborið við 49% leigjenda af erlendum uppruna. Á sama hátt voru 33% leigjenda af erlendum uppruna ósammála fullyrðingunni, samanborið við 22% meðal innfæddra leigjenda, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Heilt yfir hefur húsnæðisöryggi á leigumarkaði hér á landi minnkað lítillega undanfarin ár, ef miðað er við meðaltalsálit leigjenda. Árið 2020 mældist meðaltalsniðurstaða 3,7 stig á skalanum 1 til 5, þar sem 1 merkir að leigjendur séu mjög ósammála fullyrðingunni „Ég tel mig búa við húsnæðisöryggi“ og 5 merkir að leigjendur séu mjög sammála henni. Síðan þá hefur meðaltalsniðurstaðan lækkað lítillega og mældist 3,4 í könnuninni í ár.
Leigjendur sem leigja af nauðsyn upplifa að jafnaði minnsta húsnæðisöryggið á meðan leigjendur sem vilja vera á leigumarkaði upplifa mesta húsnæðisöryggið. Leigjendur upplifa jafnframt mismikið húsnæðisöryggi eftir tegund leigusala sem þeir leigja hjá. Leigjendur sem leigja íbúðir af óhagnaðardrifnum leigufélögum og sveitarfélögum upplifa að jafnaði mesta húsnæðisöryggið. Á hinn bóginn upplifa leigjendur sem leigja íbúðir af einstaklingum og einkareknum leigufélögum minnsta húsnæðisöryggið.
Einnig má greina fylgni á milli húsnæðisöryggis annars vegar og fjárhagslegrar stöðu heimilisins hins vegar. Þeir leigjendur sem greiða lægri leigufjárhæð og geta safnað sparifé upplifa talsvert meira húsnæðisöryggi en þeir sem greiða háa leigufjárhæð og nota sparifé eða safna skuldum til að ná endum saman.
Einstaklingar eru umfangsmestu leigusalarnir hér á landi, en rúmlega helmingur leigjenda segist leigja íbúð af einstaklingi. Sé eingöngu litið til leigjenda sem eru virkir á vinnumarkaði er hlutfallið um 60%. Leigjendur af erlendum uppruna eru talsvert líklegri en leigjendur af íslenskum uppruna til að leigja af einstaklingum, en um 70% aðfluttra leigjenda leigja af einstaklingum samanborið við um 50% meðal innfæddra leigjenda.
Leigjendur af erlendum uppruna eru jafnframt líklegri til að leigja íbúð af vinnuveitanda sínum heldur en leigjendur með íslenskan uppruna, þó hlutfallið sé ekki ýkja hátt. Um 5% aðfluttra leigja af vinnuveitanda samanborið við 1% innfæddra leigjenda, sé einungis litið til leigjenda sem eru virkir á vinnumarkaði.
Leigjendur með íslenskan uppruna eru aftur á móti talsvert líklegri en leigjendur með erlendan uppruna til að leigja íbúðir sem falla utan markaðsleigu. Til að mynda leigja um 11% leigjenda af íslenskum uppruna sem eru virkir á vinnumarkaði af óhagnaðardrifnum leigufélögum, samanborið við einungis 2% leigjenda af erlendum uppruna. Sömuleiðis leigja einungis 1% aðfluttra leigjenda af sveitarfélögum samanborið við 3% innfæddra leigjenda, sé einungis litið til þeirra sem eru virkir á vinnumarkaði.
Þrír af hverjum fjórum leigjendum leigja íbúðir í fjölbýlishúsum. Þar af leigja 15% í stóru fjölbýli (17 eða fleiri íbúðir í stigagangi), 20% leigja í meðalstóru fjölbýli (9 til 16 íbúðir), 24% í smærra fjölbýli (5 til 8 íbúðir) og 17% í tví-, þrí eða fjórbýli. Um 10% leigjenda leigja sérbýlisíbúðir, þ.e. ýmist einbýlishús, parhús eða raðhús.
Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að leigjendur af erlendum uppruna séu talsvert líklegri en leigjendur af íslenskum uppruna til að leigja herbergi, bílskúra, deilihúsnæði, aukaíbúðir í einbýlishúsum, atvinnuhúsnæði eða annars konar húsnæði. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan leigja aðfluttir leigjendur slíkt húsnæði í um 24% tilvika, samanborið við um 9% tilvika meðal innfæddra leigjenda, ef einungis er litið til leigjenda sem eru virkir á vinnumarkaði.
Fæstir leigjendur vilja vera á leigumarkaði, en flestir hafa ekki annarra kosta völ. Þetta á við hvort sem um er að ræða leigjendur af íslenskum eða erlendum uppruna, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan þar sem einungis er litið til leigjenda sem eru virkir á vinnumarkaði.
Hlutfall leigjenda sem eru á leigumarkaði vegna þess að þeir hafa ekki annarra kosta völ hefur hækkað talsvert á undanförnum tíu árum á sama tíma og hlutfall þeirra sem vilja vera á leigumarkaði hefur lækkað. Samkvæmt niðurstöðum úr leigumarkaðskönnun frá árinu 2017 sögðust 57% svarenda vera leigjendur af nauðsyn samanborið við um 77% í dag, sé einungis litið til leigjenda af íslenskum uppruna. Hlutfall þeirra sem vilja vera á leigumarkaði hefur aftur á móti lækkað úr 29% árið 2017 niður í um 12% í dag. Hlutfall tímabundinna leigjenda hefur verið öllu stöðugra á tímabilinu og að jafnaði mælst um 11%.
Á sama tíma og hlutfallslega fleiri leigja af nauðsyn hefur meðaltími leigjenda á leigumarkaði lengst. Leigjendur hafa nú að jafnaði verið um 12 ár á leigumarkaði, en meðaltíminn hefur lengst jafnt og þétt úr um 7 árum árið 2019.
Meðaltími á leigumarkaði er mislangur eftir tegundum leigusala. Þau sem leigja af sveitarfélögum hafa að jafnaði verið lengst á leigumarkaði, eða rúmlega 16 ár að meðaltali. Leigjendur hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum hafa jafnframt verið lengi á leigumarkaði, eða að jafnaði rúmlega 13 ár. Leigjendur í þessum hópum eru alla jafna í bágri fjárhagslegri stöðu og hafa takmarkaða möguleika til að komast af leigumarkaði.
Stærstur hópur leigjenda leigir af einstaklingi á almennum markaði, en meðaltími þeirra á leigumarkaði mælist nú tæplega 12 ár. Námsmenn sem leigja á stúdentagörðum hafa að jafnaði verið styst á leigumarkaði, eins og við er að búast enda í flestum tilfellum ungt fólk sem er að koma inn á leigumarkað úr foreldrahúsum.
Meðaltími á leigumarkaði hefur lengst á milli ára hjá öllum leigjendahópum, nema þeim sem leigja af búseturéttarfélögum og á stúdentagörðum. Hjá búseturéttarfélögum styttist meðalleigutíminn lítillega á milli ára á meðan hann stóð í stað á stúdentagörðum.
Meirihluti leigjenda er að safna fyrir útborgun til íbúðakaupa, en hlutfall þeirra hefur farið vaxandi undanfarin ár. Um það bil 60% svarenda sögðust vera að safna fyrir útborgun í nýjustu könnuninni, en hlutfallið hafði verið um 40% árin 2022 og 2023.
Þrátt fyrir að fleiri leigjendur safni nú fyrir útborgun til íbúðarkaupa sjá fæstir fyrir sér að kaupa sér húsnæði næst þegar þau skipta um húsnæði. Rúmlega þriðjungur telur alveg útilokað að þau kaupi sér húsnæði við næstu flutninga og tæplega 40% til viðbótar telja það ólíklegt. Einungis 4% telja alveg öruggt að þau kaupi húsnæði við næstu flutninga og 7% telja það mjög líklegt.
Flestir leigjendur sjá þannig fyrir sér að þurfa að finna sér nýtt leiguhúsnæði næst þegar kemur að flutningum, en um 73% svarenda telja það ýmist líklegt eða öruggt.
Þótt flestir sjái ekki fyrir sér að komast af leigumarkaði við næstu húsnæðisskipti stefna margir að því að komast af leigumarkaði síðar. Niðurstöður leigumarkaðskönnunarinnar benda þó til þess að aukinnar svartsýni gæti meðal leigjenda í þeim efnum. Um 53% leigjenda telja nú ólíklegt að komast nokkurn tímann af leigumarkaði sem er talsvert hærra hlutfall en mældist í könnuninni árið 2025 þegar það mældist rétt rúmlega 40%. Á sama tíma fækkaði nokkuð í hópi þeirra sem telja líklegt að þau muni fara af leigumarkaði á næstu 5 árum.
Leigjendur í eldri aldurshópum telja ólíklegra að þau komist nokkurn tímann af leigumarkaði en þeir sem yngri eru, enda hafa yngri leigjendur að jafnaði meiri möguleika til aukinna tekna en þeir sem eldri eru og eru þannig líklegri til að geta komist í eigið húsnæði í framtíðinni. Tekjuhærri leigjendur telja jafnframt líklegra að þeir fari af leigumarkaði en þeir tekjulægri.
Þau sem leigja af stúdentagörðum eða af ættingjum og vinum telja líklegast að þau fari af leigumarkaði á einhverjum tímapunkti, enda segist stór hluti þeirra vera á leigumarkaði tímabundið. Leigjendur sveitarfélaga og óhagnaðardrifinna leigufélaga telja ólíklegast að þeir komist af leigumarkaði, en það eru meðal annars leigjendur í almenna íbúðakerfinu. Sá hópur leigjenda er gjarnan með lægri ráðstöfunartekjur en leigjendur sem leigja af einstaklingum og einkareknum leigufélögum en greiða þó á sama tíma nokkuð lægri leigu að jafnaði.
Nýlega gaf HMS út vegvísi að markvissari húsnæðisstuðningi við leigjendur. Ein af tillögunum sem lagðar voru fram í vegvísinum sneri að því að greiða leiðina fyrir leigjendur út úr almenna íbúðakerfinu inn á eignamarkað. Þeim leigjendum sem hafi fjárhagslega getu til verði heimilað að kaupa þær eignir sem þeir hafa búsetu í, meðal annars með hjálp hlutdeildarlána. Tillagan stuðlar þannig að því að húsnæðisstuðningur við þá leigjendur sem hafa minnst á milli handanna nýtist ekki eingöngu til að lækka leigukostnað þeirra, heldur jafnframt til þess að auka möguleika þeirra á að komast að lokum í eigið húsnæði.