22. október 2026
Mánaðarskýrsla HMS október 2026
Skoða skýrslu
Niðurstöður samstarfshóps HMS og FSÍ sýna að æfingaaðstaða slökkviliða á Íslandi er verulega takmörkuð og mjög misjöfn eftir landshlutum. Ekkert af núverandi æfingasvæðum býður upp á aðstöðu til þjálfunar fyrir öll lögbundin verkefni slökkviliða og þau hæfniviðmið sem lögð eru til grundvallar í námskrá Brunamálaskólans og nemendum ber að uppfylla.
Þessi staða er alvarleg. Án viðeigandi æfingaaðstöðu er ekki unnt að tryggja að slökkviliðsmenn fái þá verklegu þjálfun sem starfið krefst eða geti með reglubundnum hætti æft við raunhæfar og krefjandi aðstæður. Það getur haft bein áhrif á hæfni og öryggi slökkviliðsmanna sem og getu slökkviliða til að bregðast við þegar vá steðjar að.
Brýn þörf er því á uppbyggingu æfingaaðstöðu fyrir slökkvilið landsins. Tryggja þarf slökkviliðum, óháð staðsetningu, raunhæft aðgengi að öruggri aðstöðu til reglulegrar þjálfunar og jafnframt tryggja Brunamálaskólanum fullnægjandi aðstöðu til verklegrar kennslu.
Æfingaaðstaða er grunnforsenda þess að slökkvilið geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og tryggt öruggt og tiltækt viðbragð um land allt. Uppbyggingu hennar verður því að líta á sem nauðsynlega fjárfestingu í öryggi samfélagsins og getu þess til að bregðast við þegar mest á reynir.
Við mat á uppbyggingu æfingasvæða slökkviliða þarf að horfa til þess að starfsemi slökkviliða er hluti af heildaröryggi samfélagsins. Slökkvilið gegna lykilhlutverki í viðbrögðum við eldsvoðum, mengunaróhöppum, fastklemmdu fólki, stórslysum, náttúruhamförum, og öðrum atburðum sem geta ógnað öryggi samfélagsins og mikilvægra innviða. Því er eðlilegt að starfsumhverfi og aðstaða slökkviliða, þar á meðal uppbygging og rekstur æfingasvæða, sé studd af ríkinu.
Í skýrslunni er lagt til að æfingasvæði verði skilgreind í þrjá flokka eftir umfangi og aðstöðu, svæði A, B og C. Flokkunin gerir kleift að tengja þjálfunarþætti og hæfniviðmið við viðeigandi aðstöðu og styður þannig samræmda kennslu og þjálfun. Greining á fjarlægðum og aðgengi sýnir að eitt fullbúið æfingasvæði tryggir ekki jafnt aðgengi, en jafnframt er hvorki raunhæft né hagkvæmt að byggja fullbúna aðstöðu á mörgum stöðum. Lausnin þarf því að sameina fullbúna sérhæfða aðstöðu og dreifð svæði fyrir reglulega verklega þjálfun.
Meginniðurstaðan er að eitt fullbúið svæði A ásamt nokkrum dreifðum svæðum B veiti raunhæfasta jafnvægið milli sérhæfðrar aðstöðu, reglulegrar þjálfunar og aðgengis slökkviliða. Einfaldari svæði C geti áfram stutt grunnæfingar í heimahéraði.
Uppbygging og rekstur æfingasvæða slökkviliða á landsvísu kallar á skýra sýn á fjármögnun verkefnisins. Þar sem slökkvilið eru á ábyrgð sveitarfélaga, en Brunamálaskólinn er rekinn af ríkinu, er eðlilegt að uppbygging slíkra svæða byggi á samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Æfingasvæði sem nýtast bæði til daglegrar þjálfunar slökkviliða og kennslu Brunamálaskólans verða þannig sameiginlegir innviðir sem þjóna bæði sveitarfélögum og ríkinu.
Mikilvægt er að horfa til þess að æfingasvæði slökkviliða gætu einnig nýst fleiri viðbragðsaðilum. Samnýting slíkra svæða gæti styrkt samhæfingu viðbragðsaðila og aukið gæði sameiginlegra æfinga vegna stærri atburða. Í því samhengi mætti einnig skoða mögulega aðkomu almannavarnakerfisins að uppbyggingu og þróun slíkra svæða, þar sem þau gætu nýst við samæfingar og undirbúning viðbragða við stærri áföllum.
Á grundvelli niðurstaðna greininganna leggur samstarfshópurinn fram tillögur hvernig styrkja þurfi uppbyggingu æfingasvæða slökkviliða á Íslandi til framtíðar.
Tryggja þarf samræmda, örugga og aðgengilega æfingaaðstöðu fyrir öll slökkvilið landsins.
Skýra þarf ábyrgð og aðkomu ríkisins og sveitarfélaga að uppbyggingu, rekstri og fjármögnun æfingasvæða og skapa þannig forsendur fyrir markvissri uppbyggingu og sjálfbærum langtímarekstri.
Auka nýtingu innviða og styrkja samhæfingu milli viðbragðsaðila.
Tryggja að æfingasvæði uppfylli samræmdar kröfur um aðstöðu, búnað, öryggi og nýtingu.
Samkvæmt lögum um brunavarnir nr. 75/2000 starfrækir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) Brunamálaskólann sem ætlaður er slökkviliðsmönnum og skal skólinn hafa umsjón með bóklegri og verklegri menntun slökkviliðsmanna og fræðslu í þeirra starfi.
Ein af niðurstöðum stefnumótavinnu starfshóps um málefni Brunamálaskólans, sem skilaði tillögum til ráðuneytis árið 2022, var að til lengri tíma litið þyrfti að styrkja slökkviliðin í landinu með markvissri uppbyggingu æfingasvæða. Í því samhengi var talið ákjósanlegt að ríkið, á grundvelli Brunamálaskólans, og sveitarfélögin kæmu sameiginlega að slíkri uppbyggingu. Í dag er hvergi á landinu æfingasvæði slökkviliða sem ríkið stendur kostnað af við uppbyggingu og rekstur með skipulögðum hætti.
HMS tekur þátt í norrænu samstarfi um Brunamálaskólann með systurstofnunum á Norðurlöndunum og hefur í því sambandi heimsótt æfingasvæði þeirra. Við þessar heimsóknir hefur komið skýrt fram hversu takmarkaðar aðstæður eru til verklegrar þjálfunar slökkviliðsmanna á Íslandi. Skólarnir á hinum Norðurlöndunum búa yfir stórum og vel búnum æfingasvæðum sem geta tekið við mörgum æfingum samtímis og boðið upp á þjálfun fyrir öll lögbundin verkefni slökkviliða.
Auk æfingasvæða eru þessir skólar búnir fjölbreyttum tækjakosti, svo sem slökkvibifreiðum og sérhæfðum búnaði, þar á meðal reykköfunartækjum og persónuhlífum. Þá hafa þeir jafnframt fullbúin verkstæði og starfsfólk til að sinna viðhaldi og rekstri svæðanna. Rétt er að taka fram að skipulag slökkviliða á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum er að meginstefnu sambærilegt þar sem sveitarfélög bera ábyrgð á slökkviliðunum en ríkið ber ábyrgð á rekstri skólanna og almannavarnaviðbragði.
Æfingasvæði slökkviliða á Íslandi eru verulega takmörkuð og mjög misjöfn þar sem þau eru til staðar. Flest slökkvilið hafa ekki skilgreind æfingasvæði. Ekkert svæði er þannig uppbyggt í dag að það taki mið af öllum lögbundnum verkefnum slökkviliða.
Aðrir viðbragðsaðilar á Íslandi búa einnig við takmarkaðar aðstæður til æfinga, þó þörfin sé mismunandi milli aðila. Í ljósi smæðar landsins og þess að verkefni viðbragðsaðila skarast að hluta til má telja líklegt að sameiginlegt æfingasvæði fyrir nokkra aðila, svo sem slökkvilið, lögreglu, Landhelgisgæslu, björgunarsveitir og sjúkraflutninga, gæti verið hagkvæm og árangursrík leið. Þrátt fyrir sérstöðu einstakra verkefna er markviss þjálfun lykilforsenda fyrir viðbragðsgetu og vettvangsvitund allra viðbragðsaðila.
Á aðalfundi Félags slökkviliðsstjóra Íslands (FSÍ), sem haldinn var á Akureyri í apríl 2025, var tilkynnt um stofnun samstarfshóps með sérfræðingum frá HMS og fulltrúum slökkviliðanna. Markmið hópsins var að greina stöðuna og koma með tillögur að næstu skrefum í framtíðaruppbyggingu æfingasvæða slökkviliða á Íslandi. Í þessari skýrslu er fjallað um niðurstöður samstarfshópsins.
Í samstarfshópnum áttu sæti fulltrúar frá sex slökkviliðum, sérfræðingar frá HMS, ásamt formanni fagdeildar slökkviliðsmanna LSS, sem fulltrúa Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) en hann er einnig í fagráði Brunamálaskólans, fulltrúa Félags slökkviliðsstjóra Íslands (FSÍ) í fagráði Brunamálaskólans og fulltrúa frá stjórn FSÍ.
Til að meta þörf fyrir uppbyggingu æfingasvæða slökkviliða á Íslandi var unnin samantekt á fyrirliggjandi upplýsingum. Verkefninu var skipt í tvo hluta og átta meginþætti:
Fyrri hluti
1. Æfingasvæði á landinu í dag
2. Æfingasvæði á hinum Norðurlöndunum
3. Framtíðaruppbygging æfingasvæða
4. Brunamálaskólinn
5. Æfingasvæði annarra viðbragðsaðila
Seinni hluti
6. Kostnaður
7. Fjármögnun
8. Leyfismál
Kortleggja þurfti núverandi stöðu æfingasvæða á landinu, þar á meðal hvaða svæði væru til staðar, hvaða búnaður væri á þeim, hvaða möguleikar væru til æfinga, hver kostnaður væri við uppbyggingu og rekstur og hverjir framtíðarmöguleikar þeirra væru. Að fengnum upplýsingum frá öllum slökkviliðum landsins um stöðu þeirra æfingasvæða var farið í heildargreiningu á þörf slökkviliðanna sem og Brunamálaskólans.
Leitast var við að svara því hvort þörf væri á einu stóru fullbúnu æfingasvæði án minni svæða eða hvort hagkvæmara væri að hafa eitt stórt fullbúið svæði ásamt nokkrum minni æfingasvæðum dreifðum um landið.
Í inngangi kom fram að sérfræðingar HMS hafa heimsótt æfingasvæði systurstofnana HMS á Norðurlöndunum sem nýtt eru til menntunar slökkviliðsmanna í viðkomandi löndum. Þessi svæði eru ekki eingöngu nýtt fyrir verkefni skólanna sjálfra heldur einnig fyrir æfingar slökkviliða á nærliggjandi svæðum, aðra viðbragðsaðila og jafnframt fyrir erlenda hópa og stofnanir sem sækja svæðin heim til þjálfunar.
Hluti verkefnisins fólst í að greina hlutverk Brunamálaskólans í framtíðaruppbyggingu æfingasvæða. Í dag hefur skólinn enga skilgreinda aðstöðu til verklegrar kennslu, heldur fer hún alfarið fram á æfingasvæðum slökkviliða víðs vegar um landið. Með hliðsjón af smæð landsins ákvað samstarfshópurinn jafnframt að taka til greiningar æfingasvæði annarra viðbragðsaðila til að kanna möguleika á samstarfi. Upplýsingum var safnað um hvernig og hvar aðrir viðbragðsaðilar stunda æfingar, rekstur þeirra svæða og hvort möguleiki væri á sameiginlegri nýtingu æfingasvæða. Horft var bæði til þeirra svæða sem eru til staðar í dag og möguleika á uppbyggingu nýs sameiginlegs æfingasvæðis.
Að lokum var unnin greining á kostnaði, annars vegar vegna uppbyggingar og reksturs æfingasvæða og hins vegar vegna kostnaðar slökkviliða við að sækja æfingar utan eigin starfssvæðis. Jafnframt voru skoðaðar mögulegar leiðir til fjármögnunar verkefnisins, þar á meðal möguleikar á erlendum styrkjum og tengsl verkefnisins við hlutverk slökkviliða í varnar- og öryggismálum landsins.
Samstarfshópinn skipuðu:
Birgir Finnsson, Slökkviliðsstjóri SHS og formaður FSÍ
Bjarni Höskuldsson, HMS
Eyþór Rúnar Þórarinsson, Slökkviliðsstjóri, Brunavarnir Suðurnesja
Helga Einarsdóttir, HMS
Henning Þór Aðalmundarson, Slökkviliðsstjóri, Slökkvilið Norðurþings
Hlynur Höskuldsson, Deildarstjóri, SHS
Ingvar Georgsson, Slökkviliðsstjóri, Slökkvilið Fjarðabyggðar
Jón Kristinn Valsson, Formaður fagdeildar slökkvistarfa hjá LSS
Lárus Kristinn Guðmundsson, Slökkviliðsstjóri, Brunavarnir Árnessýslu
Maron Pétursson, Varaslökkviliðsstjóri, Slökkvilið Akureyrar
Sigurður A. Jónsson, Slökkviliðsstjóri, Slökkvilið Ísafjarðarbæjar
Stefán Árnason, HMS
Inn í starfið komu einnig á einhverjum stigum þeir:
Andri Hnikarr Jónsson, HMS
Anton Berg Carrasco, Slökkvilið Akureyrar
Indriði Margeirsson, Slökkvilið Fjarðabyggðar
Ingvi Þór Hákonarson, Brunavarnir Suðurnesja
Kaflinn lýsir núverandi æfingaaðstöðu slökkviliða, reynslu af uppbyggingu og rekstri og sameiginlegri stöðu samkvæmt könnun meðal slökkviliða. Nánari lýsingar á einstökum svæðum eru í viðauka 1.
Nokkur slökkvilið hafa byggt upp æfingaaðstöðu, en hún er almennt mjög takmörkuð. Staða slökkviliða er mjög misjöfn, bæði hvað varðar fjárhagslega getu og aðgengi að hentugum lóðum til framtíðaruppbyggingar.
Æfingasvæði hafa oft verið sett upp við misjafnar aðstæður og hafa reynst krefjandi í rekstri og viðhaldi. Helstu áskoranir tengjast aðgengi að lóðum sem heimila notkun elds og reyks, eru jafnframt í ásættanlegri fjarlægð, með góðum vegtengingum, nægjanlegu rými, aðgengi að vatni, almennri aðstöðu ásamt fleiri þáttum.
Afleiðingin er sú að nokkur þeirra slökkviliða sem hafa skilgreind svæði hafa einungis komið sér upp grunnaðstöðu, oft í formi gámaeininga, án raunhæfra möguleika á æfingum með eld og heitan reyk. Önnur slökkvilið hafa ekki skilgreinda aðstöðu en hafa þó í einhverjum tilvikum aðgengi að húsnæði í eigu sveitarfélaga sem ekki eru í notkun, sökum myglu eða slæms ástands. Slík húsnæði hafa þá verið nýtt til kaldra æfinga. Æfingasvæði hafa einnig oft þurft að hörfa af úthlutuðum svæðum vegna stækkandi byggðar. Könnun sem send var á slökkvilið landsins um aðstöðu til æfinga dregur þessa mynd skýrt fram.
Mynd 1: Núverandi æfingaaðstaða á Íslandi
Heildarniðurstaðan er sú að æfingaaðstaða slökkviliða á Íslandi er verulega takmörkuð og nær hvergi að mæta öllum lögbundnum verkefnum slökkviliða með raunhæfum hætti. Á myndinni hér að neðan má sjá dreifingu aðstöðunnar á landsvísu, en taka ber fram að sum slökkvilið sem merkt eru með enga aðstöðu hafa í einhverjum tilvikum aðgang að húsnæði á vegum sveitarfélaga í misjöfnu ástandi.
Mynd 2: Dreifing æfingaaðstöðu á landsvísu
Sex slökkvilið hafa komið sér upp æfingaaðstöðu sem telja má marktæka í samhengi skýrslunnar. Helstu upplýsingar um aðstöðu þeirra eru teknar saman í töflunni hér að neðan.
| Staðsetning og fyrirkomulag | Helsta aðstaða og búnaður | Framtíð, kostir og takmarkanir |
|---|---|---|
| Gámasvæði Árborgar á Selfossi. Svæðið tilheyrir sveitarfélaginu, er girt af og slökkviliðið greiðir ekki leigu | Yfirtendrunargámur, gamall strætó, aðstaða til að klippa bíla, flugvélaflak, vörubílahús, tankar, steypurör, steyptir veggir og kubbar. Aðstaðan nýtist til æfinga í slökkvitækni, björgunartækni og viðbragði við hættulegum efnum. | Starfsemi á svæðinu er talin trygg til framtíðar. Aðgangur að gámasvæðinu auðveldar nýtingu búnaðar og brotajárns til æfinga. Áætlað er að setja upp litla gámastæðu; þrír 40 feta gámar eru þegar komnir. Uppbyggingin hefur byggst á samvinnu slökkviliðs og verktaka sem hefur dregið úr fjárfestingarkostnaði. |
| Staðsetning og fyrirkomulag | Helsta aðstaða og búnaður | Framtíð, kostir og takmarkanir |
|---|---|---|
| Ferjutröð 15 í Reykjanesbæ á athafnasvæði Tæknivalla á Ásbrú. Svæðið er um 28.000 m², skipulagt samkvæmt gildandi deiliskipulagi og uppbyggt í samráði við Heilbrigðiseftirlitið. | Gámaeiningar, endurnýtt húsnæði fyrrum sorpeyðingarstöðvar, yfirtendrunargámur, brunahani og rafmagn. Undirlag er malbik eða yfirborðsmöl, svæðinu er skipt með mönum og það er girt, með myndavélakerfi og öryggismerkingum. | Framtíðarsýn felur í sér áframhaldandi skipulagsvinnu, kostnaðargreiningu, frekari uppbyggingu og mögulegt samstarf við aðra viðbragðsaðila. Miklir stækkunarmöguleikar eru á svæðinu og nálægð við önnur stór slökkvilið og flugvöll er kostur. |
| Staðsetning og fyrirkomulag | Helsta aðstaða og búnaður | Framtíð, kostir og takmarkanir |
|---|---|---|
| Um 500 m² tveggja hæða húsnæði innan lóðamarka slökkvistöðvarinnar; um 200 m² eru nýttir sem æfingaaðstaða. Yfirtendrunargámur er í grjótnámi við Súluveg. | Æfingaaðstaða sem líkir eftir íbúðarhúsnæði með léttum og færanlegum veggjum. Húsnæðið skiptist í íbúðaaðstöðu, rými fyrir eiturefnaæfingar og óráðstafað svæði. Einnig er 40 m² yfirtendrunargámur fyrir heita reykköfun. | Uppbygging hefur að stórum hluta verið fjármögnuð með styrkjum úr Fræðslusjóði brunamála. Óvissa er um framtíð núverandi aðstöðu vegna skoðunar á nýrri slökkvistöð á horni Súluvegar og Miðhúsabrautar. |
| Staðsetning og fyrirkomulag | Helsta aðstaða og búnaður | Framtíð, kostir og takmarkanir |
|---|---|---|
| Æfingahús við slökkvistöðina að Skútahrauni 6 í Hafnarfirði, í sameign og sameiginlegum rekstri með Slysavarnaskóla sjómanna. Aðstaða til kaldrar reykköfunar er einnig í Mosfellsbæ. | Tveggja hæða æfingahús úr gámaeiningum. Á neðri hæð eru fimm gámar, þar á meðal stjórngámur og geymsla; efri hæð er minni og með svölum. Fjórar gasdrifnar æfingauppsetningar eru í húsinu. Í kjallara slökkvistöðvarinnar við Skarhólabraut eru tvær æfingaíbúðir fyrir inngöngu, leit og björgun. | Aðstaðan er samþykkt til framtíðar og skipulag heimilar annað æfingahús. Takmörkun er að aðeins má nota gasdrifinn eld en ekki eldsneyti í föstu formi. |
| Staðsetning og fyrirkomulag | Helsta aðstaða og búnaður | Framtíð, kostir og takmarkanir |
|---|---|---|
| Aðstaða við slökkvistöðina við Hraun á Reyðarfirði og á hafnarsvæði um 200 metra frá stöðinni. | Tveggja hæða gámaeiningar, alls tíu gámar, lóðréttur 40 feta gámur með svölum og geymslugámar. Á hafnarsvæðinu eru yfirtendrunargámur og olíupanna. Búnaður felur meðal annars í sér master-blásara, hitalampa, reykvélar og færanlega milliveggi. Brunahanar eru á báðum svæðum og stutt er í sjó til vatnsöflunaræfinga. | Svæðin eru samþykkt til framtíðar. Unnið er að stækkun aðstöðunnar og skipulagsvinnu á hafnarsvæðinu í samstarfi við Fjarðabyggðahafnir. |
| Staðsetning og fyrirkomulag | Helsta aðstaða og búnaður | Framtíð, kostir og takmarkanir |
|---|---|---|
| Gömul malarnáma í Haukamýri, um 2.000 m². Lóðinni var úthlutað árið 2019 og uppbygging hófst 2020; gert er ráð fyrir að slökkviliðið hafi lóðina til framtíðar. | Tveggja hæða gámastæða úr níu gámum, innréttuð líkt og íbúðarhúsnæði, með bílskúr, þvottahúsi, tveimur stigauppgöngum og þrauta- og skriðbrautum. Einnig eru yfirtendrunargámur, svæði fyrir björgun fastklemmdra, 330 m³ olíugámur fyrir björgun úr hæð og stigaæfingar, tankur fyrir æfingar vegna hættulegra efna, steypt plön, vatnslögn og virkur brunahani. | Reykvélar og master-blásarar eru notaðir til að mynda reyk og hita í gámastæðunni. Áætlaður grunnkostnaður var um 8.000.000 kr., en sjálfboðavinna starfsmanna og gjafir fyrirtækja drógu umtalsvert úr kostnaði. |
Í viðauka 1 má sjá nánari lýsingu á þeim æfingasvæðum sem framangreind slökkvilið eru með.
Á hinum Norðurlöndunum eru brunamálaskólar reknir af ríkinu líkt og á Íslandi, en þar er rekstur og uppbygging stórra og sérútbúinna æfingasvæða fyrir slökkviliðsmenn og aðra viðbragðsaðila hluti af rekstri skólanna. Svæðin bjóða fjölbreyttar og raunhæfar æfingar við öruggar aðstæður.
Auk æfingasvæðanna hafa skólarnir yfir að ráða öllum nauðsynlegum búnaði, svo sem slökkvibifreiðum og tengdum tækjum, dælum, reykköfunarbúnaði, fjarskiptabúnaði, búnaði til björgun fastklemmdra, rústabjörgunarbúnaði og öðrum þeim tækjakosti sem nauðsynlegur er í námi og þjálfun slökkviliðsmanna. Þá reka skólarnir jafnframt verkstæði og þjónustudeildir sem annast uppsetningu æfinga, viðhald búnaðar og rekstur svæðanna.
Á öllum Norðurlöndunum er markvisst unnið eftir samræmdu þjálfunarkerfi þar sem bóklegt og verklegt nám fer fram á sérútbúnum æfingasvæðum. Þar er meðal annars að finna aðstöðu fyrir slökkvistarf í byggingum og farartækjum, vinnu í hæð, björgun fastklemmdra, reykköfun, meðhöndlun hættulegra efna, rústabjörgun, vatnabjörgun, akstursþjálfun og fyrir stjórnunaræfingar.
Skipulag svæðanna er með nokkrum breytileika milli landa:
Á Norðurlöndum fara kennsla, æfingar og rannsóknir saman og styðja þannig samræmda færni og öryggi viðbragðsaðila. Stærri slökkvilið og sveitarfélög reka einnig vel búin æfingasvæði, en ríkið kemur að uppbyggingu svæða sem brunamálaskólar nota til námskeiða.
Samanborið við þessi lönd skortir á Íslandi fullbúið og ríkisrekið æfingasvæði þar sem hægt er að framkvæma fjölþættar og samhæfðar æfingar með raunhæfum hætti. Þjálfun Brunamálaskólans hérlendis er alfarið háð aðstöðu einstakra slökkviliða, sem takmarkar samræmda kennslu og markvissa uppbyggingu verklegrar færni á landsvísu.
Nánari lýsingar á æfingasvæðum erlendis má finna í viðauka 2.
Aðstæður til verklegrar þjálfunar slökkviliðsmanna á Íslandi hafa ekki fylgt auknum kröfum um fagmennsku, öryggi og hæfni. Námskrá og hæfniviðmið Brunamálaskólans krefjast fjölbreyttrar og raunhæfrar þjálfunar sem núverandi aðstaða styður ekki að fullu.
Í þessum kafla er fjallað um framtíðaruppbyggingu æfingasvæða slökkviliða á Íslandi. Greind er heildarþörf slökkviliðanna með tilliti til mismunandi valkosta í uppbyggingu. Jafnframt er litið til nýtingar núverandi æfingasvæða, kosta og galla mismunandi lausna með tilliti til fjarlægða, aðgengis og hagkvæmni.
Núverandi æfingaaðstaða slökkviliða er mjög takmörkuð og ójöfn og styður ekki að fullu við þær kröfur sem gerðar eru um fjölbreytta, raunhæfa og samræmda verklega þjálfun. Heildarþörfin felst því í að tryggja samfellu, jafnræði og fullnægjandi aðstöðu fyrir nám, endurmenntun og æfingar.
Slökkvilið þurfa bæði aðgang að aðstöðu fyrir reglubundnar viðhaldsæfingar og að stærra og fjölbreyttara svæði þar sem unnt er að æfa alla helstu þætti starfsins við raunhæfar og flóknar aðstæður. Við mat á þörfinni þarf jafnframt að líta til landfræðilegrar dreifingar, vegalengda, ferðatíma og aðgengis.
Hæfniviðmið grunn- og framhaldsnáms Brunamálaskólans lýsa þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem slökkviliðsmenn þurfa að tileinka sér. Þau ná meðal annars til eftirfarandi verklegra þjálfunarsviða:
Hér er aðeins dregin fram sú verklega færni sem hefur bein áhrif á gerð og uppbyggingu æfingaaðstöðu. Hæfniviðmið grunn- og framhaldsnáms eru birt í heild í viðauka 4.
Mismunandi og jafnframt takmarkaður aðbúnaður slökkviliða gerir það að verkum að staðfæra þarf og aðlaga æfingar Brunamálaskólans að aðstöðu hverju sinni. Það torveldar stöðlun, dregur úr samræmi í verklegri þjálfun og gerir erfitt að tryggja að æfingar uppfylli hæfniviðmið með sambærilegum hætti.
Tafla 2 sýnir dæmi um æfingar sem erfitt hefur reynst að setja upp með samræmdum hætti. Ekki er greint á milli grunn- og framhaldsnáms, enda má að mestu uppfylla hæfniviðmiðin með sömu aðstöðu. Það sama gildir um hæfniviðmið stjórnendanáms.
Tafla 2: Dæmi um æfingar sem erfitt er að samræma
Til að tengja verklega þjálfun Brunamálaskólans með skýrari hætti við hæfniviðmið námsins leggur starfshópurinn til að æfingasvæði verði flokkuð í þrjár megingerðir: svæði A, B og C. Flokkunin byggir á umfangi, aðstöðu og því hvaða æfingar hægt er að framkvæma á hverju svæði. Hún á að auðvelda að ákvarða hvaða verklegir þættir grunnnáms, framhaldsnáms, stjórnendanáms og endurmenntunar þurfa að fara fram á fullbúnu svæði og hvaða þættir geta farið fram á einfaldari eða dreifðari svæðum.
Í framhaldinu væri eðlilegt að skilgreina hvaða æfingar og hæfniviðmið skuli tengjast hverri gerð svæðis. Slík tenging myndi gera kröfur til aðstöðu skýrari og tryggja að þeir verklegu þættir námsins sem krefjast ákveðins búnaðar, öryggis eða raunhæfra aðstæðna séu framkvæmdir á viðeigandi æfingasvæði með samræmdum hætti.
Tafla 3 sýnir samanburð á svæðum A, B og C eftir hlutverki, umfangi og helstu kröfum. Nánari skilgreiningu og dæmi um æfingaeiningar eru í viðauka 3.
| Eiginleiki | Svæði A – Fullbúið æfingasvæði | Svæði B – Dreifð æfingasvæði | Svæði C – Grunnæfingasvæði |
|---|---|---|---|
| Hlutverk | Fullbúin æfingamiðstöð fyrir skipulagða kennslu og stærri æfingar, þar á meðal námskeið á vegum Brunamálaskólans. Allar námsleiðir | Svæðisbundin æfingaaðstaða, staðbundin námskeið og regluleg færniþjálfun | Reglulegar æfingar slökkviliðs í héraði |
| Umfang aðstöðu | Fullbúin aðstaða fyrir verklega og bóklega kennslu | Aðstaða fyrir fræðilega yfirferð minni hópa, sem nema einni vakt eða um 5–7 þátttakendum. | Einföld æfingaaðstaða |
| Bókleg kennsla | Já | Nei | Nei |
| Tæknilegur búnaður til hermi- og sýndarþjálfunar | Já | Nei | Nei |
| Heitar æfingar (eldur/reykur) | Já | Já | Nei |
| Brunahani/ar | Já | Já | Ekki krafa |
| Rafmagn | Já | Já | Ekki krafa |
| Salernis- og hreinlætisaðstaða | Já | Já | Ekki krafa |
| Aðstaða til fataskipta | Já | Já | Ekki krafa |
| Aðstaða til að nærast | Já | Nei | Nei |
| Gisting / samstarf við gistingu | Já | Nei | Nei |
| Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits | Já | Já | Nei |
| Daglegur rekstur/skilgreind umsjón | Afgirt/ Vaktað/starfsmaður | Já | Ekki nauðsynlegt |
| Tengsl við Brunamálaskólann | Meginstaður formlegrar kennslu | Stuðningur við verklega þjálfun | Regluleg æfing innan slökkviliðs |
Til að flokkunin verði nothæf þarf að útfæra hvaða hæfniviðmið og æfingaeiningar falli undir hverja gerð æfingasvæðis. Við þá útfærslu þarf að taka mið af eðli æfinga, öryggiskröfum, búnaðarþörf og því hvort tilteknir verklegir þættir þurfi að fara fram á svæði A, B eða C til að tryggja sambærilegar aðstæður, raunhæfi og mat á hæfni.
Jafnframt þarf að skilgreina hvaða æfingaeiningar þurfa að vera á hverri gerð svæðis og hvaða kröfur núverandi svæði þurfa að uppfylla til að teljast svæði A, B eða C. Með æfingaeiningum er átt við mannvirki eða búnað, svo sem æfingahús, gámaeiningar, bílaplön, tanka eða aðrar uppsetningar sem gera kleift að setja upp tilteknar sviðsmyndir og ná fram ákveðnum hæfniviðmiðum. Dæmi um slíkar einingar eru í viðauka 3 og myndir af erlendum æfingasvæðum í viðauka 2.
Þegar kröfur til æfingaeininga og aðstöðu liggja fyrir þarf að ákveða hvernig slíku kerfi verður best komið fyrir á landsvísu. Sú umfjöllun leiðir að samanburði á valkostum í næsta kafla.
Við það mat þarf einnig að horfa til núverandi æfingasvæða, möguleika á frekari uppbyggingu þeirra og áhrifa ólíkra leiða á fjarlægðir, aðgengi, nýtingu og hagkvæmni.
Starfshópurinn greindi tvær meginsviðsmyndir:
- Eitt fullbúið æfingasvæði (A-svæði) eða
- Eitt fullbúið æfingasvæði (A-svæði) ásamt dreifðum svæðum (B-svæðum).
Valkostirnir eru bornir saman með tilliti til aðgengis, vegalengda, nýtingar núverandi svæða og hagkvæmni í uppbyggingu og rekstri.
Einn valkostur væri að byggja upp eitt fullbúið æfingasvæði af gerð A sem sinnti meginþáttum verklegrar kennslu, sérhæfðri þjálfun og stærri æfingum á vegum Brunamálaskólans, slökkviliðanna og hugsanlega annarra viðbragðsaðila innan Almannavarna. Kostur slíkrar leiðar er að unnt væri að samþætta sérhæfðan búnað, æfingaeiningar, kennsluaðstöðu og rekstur á einum stað. Slíkt gæti skapað betri forsendur fyrir samræmdri kennslu, auknum gæðum æfinga og hagkvæmari uppbyggingu sérhæfðrar aðstöðu sem erfitt og kostnaðarsamt væri að koma upp víða um land.
Ókosturinn við slíkt fyrirkomulag er fyrst og fremst sá að aðgengi margra slökkviliða að svæðinu yrði takmarkað vegna fjarlægða. Langur ferðatími og kostnaður við ferðir, gistingu og uppihald gæti dregið úr reglulegri nýtingu svæðisins, einkum fyrir minni slökkvilið og þau sem staðsett eru lengst frá svæðinu. Þá myndi eitt fullbúið svæði eitt og sér ekki leysa þörf slökkviliða fyrir reglubundna grunnþjálfun og viðhaldsæfingar í heimahéraði.
Við uppbyggingu slíks svæðis þarf þó ávallt að horfa til þess að tryggja þurfi nægt fjármagn til uppbyggingar, viðhalds og daglegs reksturs.
Annar valkostur er að byggja upp eitt fullbúið svæði A fyrir sérhæfða þjálfun, stærri námskeið og æfingar sem krefjast umfangsmeiri innviða. Samhliða yrðu nokkur dreifð miðlæg æfingasvæði B nýtt fyrir reglulega verklega þjálfun og staðbundin námskeið Brunamálaskólans, en einfaldari svæði C gætu áfram nýst slökkviliðum fyrir grunnæfingar í heimahéraði.
Kostur þessarar leiðar er að hún sameinar fullbúna sérhæfða aðstöðu og bætt aðgengi að æfingaaðstöðu víðar um landið. Með þessu móti væri hægt að stytta vegalengdir að lágmarksaðstöðu fyrir stærstan hluta slökkviliða, án þess að reynt væri að byggja upp fullbúna og kostnaðarsama aðstöðu á mörgum stöðum.
Ókostir leiðarinnar felast í meiri heildaruppbyggingu og flóknara skipulagi en ef aðeins væri byggt upp eitt fullbúið æfingasvæði. Hún kallar á skýra verkaskiptingu, samræmd viðmið um kröfur til B svæða og markvissa forgangsröðun í uppbyggingu, rekstri og nýtingu svæðanna.
Eins og fram kemur hér að framan styður eitt fullbúið svæði samræmda kennslu og sérhæfða aðstöðu, en fjarlægðir takmarka aðgengi og reglulega nýtingu. Dreifðari uppbygging bætir aðgengi en krefst meiri fjárfestingar og flóknara skipulags.
Við skipulag framtíðaruppbyggingar er eðlilegt að líta til þeirra svæða sem þegar eru til staðar og meta hvort og hvernig þau geti nýst sem hluti af framtíðarkerfi. Fyrir liggur að núverandi æfingaaðstaða slökkviliða er misjöfn að umfangi, búnaði og möguleikum, en á nokkrum stöðum hefur þegar verið byggður upp grunnur sem unnt væri að þróa áfram.
Í því samhengi þarf að meta hvaða núverandi svæði gætu, með frekari uppbyggingu, uppfyllt skilyrði svæðis A eða B. Slík nálgun gæti dregið úr heildarkostnaði og nýtt þá þekkingu, reynslu og innviði sem þegar eru til staðar hjá einstaka slökkviliðum. Jafnframt þarf að hafa í huga að misjafnt er hvort núverandi staðsetningar, skipulag, leyfismál og umhverfisaðstæður gefa raunhæfa möguleika á frekari þróun.
Sem dæmi mætti skoða fýsileika þess að byggja upp svæði A á Reykjanesi og styðja samhliða við uppbyggingu annarra svæða þannig að þau geti uppfyllt kröfur til B svæða.
Verði farið í frekari uppbyggingu á núverandi svæðum og þau nýtt fyrir námskeið Brunamálaskólans væri eðlilegt að því fylgdi stuðningur af hálfu ríkisins m.t.t. kostnaðar við uppbyggingu og rekstur. En einnig þarf að horfa til fjarlægða þessara svæða frá öðrum slökkviliðum þannig að nýtingin og notkunarmöguleikar verði sem best er á kosið.
Vegalengdir og aðgengi að æfingaaðstöðu eru meðal mikilvægustu þátta við skipulag framtíðaruppbyggingar á æfingasvæðum slökkviliða á landsvísu. Til að æfingaaðstaða nýtist í reglulegri þjálfun þarf hún að vera innan raunhæfs ferðatíma frá viðkomandi slökkviliði. Ef ferðatími verður of langur dregur það úr möguleikum slökkviliða til að sækja æfingar reglulega og eykur jafnframt kostnað vegna ferða og vinnutaps. Þetta hefur verið hindrandi þáttur í því að slökkvilið sendi mannskap á skipulögð námskeið utan heimahéraðs.
Við mat á aðgengi að æfingaaðstöðu var miðað við um 200 km fjarlægð frá aðalstöð slökkviliðs. Slík fjarlægð gerir í flestum tilvikum ráð fyrir að unnt sé að fara á æfingasvæði, framkvæma æfingu og snúa aftur heim innan hefðbundins vinnudags. Fjarlægðir umfram það gera ásókn á æfingar og námskeið mun flóknari vegna lengri ferðatíma og aukins kostnaðar vegna ferðalags, gistingar og uppihalds.
Til að sýna áhrif dreifingar á vegalengdir er í greiningunni miðað við hugsanlega uppbyggingu fullbúins svæðis á Reykjanesi og styrkingu núverandi aðstöðu á Húsavík og Reyðarfirði. Dæmin eru notuð til að meta aðgengi en fela ekki í sér bindandi tillögu um endanlegt staðarval.
Greiningin bendir til þess að langar vegalengdir geti verið veruleg hindrun í reglulegri nýtingu æfingaaðstöðu, einkum fyrir þau slökkvilið sem eru utan viðmiðsins um 200 km frá næsta svæði.
Mynd 3: Vegalengdir milli svæða
Með því að bæta við dreifðri aðstöðu, t.d. á Vesturlandi (Búðardal sem dæmi) og Suðurlandi (Selfoss sem dæmi), samhliða uppbyggingu á Reykjanesi væri mögulegt að stytta vegalengdir nokkurra þessara liða.
Mynd 4: Vegalengdir milli svæða
Þá væru einungis 3 slökkvilið í meira en 200 km fjarlægð frá næsta yfirtendrunargám og gámahúsi (+/-10 km).
Sérhæfð aðstaða, svo sem heit reykköfun með raunverulegum reyk frá eldi, aðstaða til rústabjörgunar og æfingar vegna hættulegra efna, er erfið í uppbyggingu á mörgum stöðum á landinu. Það er bæði kostnaðarsamt og tæknilega flókið, þar sem ekki er alls staðar hægt að setja upp slíka aðstöðu vegna nálægðar við byggð eða sambærilegra takmarkana.
Því gæti verið æskilegt að setja upp eitt fullbúið svæði á landinu þar sem boðið er upp á að æfa og kenna alla þá þætti sem slökkviliðin þurfa til að uppfylla þau hæfniviðmið sem skólinn og námið gera kröfu um (svæði A), auk nokkurra minni B svæða.
Með þessu móti væri hægt að koma til móts við tæplega 90% allra slökkviliða landsins og bjóða þeim upp á lágmarksaðstöðu til æfinga og námskeiða innan við 200 km frá aðalstöð hvers slökkviliðs.
Fyrir þau slökkvilið sem standa utan þessarar vegalengdar þyrfti að skoða lausnir til að auðvelda þeim aðgengi að næstu æfinga- og kennsluaðstöðu, til dæmis með ferðastyrkjum eða öðrum stuðningsúrræðum.
Hafa þarf í huga að hér er miðað við vegalengdir en ekki raunverulegan ferðatíma sem getur verið misjafn vegna samgönguhindrana, ástands vega o.s.frv. Hugsanlega kann því að vera hagkvæmara að gera færri og þá fullbúnari svæði og leita að annars konar lausnum við að auðvelda aðgengi sem flestra slökkviliða að þeim, með sjóðum til ferðalaga eða álíka lausnum.
HMS rekur Brunamálaskólann samkvæmt lögum um brunavarnir. Frá 1994 hefur skólinn annast menntun slökkviliðsmanna, stjórnenda slökkviliða og eldvarnaeftirlitsmanna í nánu samstarfi við slökkvilið landsins.
Leiðbeinendur Brunamálaskólans eru að langmestu leyti starfandi slökkviliðsmenn. Þeir sinna kennslu innan eigin slökkviliða eða ferðast á önnur svæði þar sem námskeið eru haldin. Kennslan er þannig að stærstum hluta byggð á dreifðu fyrirkomulagi þar sem nýtt er sú aðstaða og sá búnaður sem er til staðar hjá slökkviliðunum hverju sinni.
Námsframboð Brunamálaskólans er skilgreint í reglugerð um Brunamálaskólann nr. 1246/2022 og skiptist í eftirfarandi námsþætti:
Skólanum ber að veita slökkviliðsmönnum að lágmarki þá menntun og starfsþjálfun sem krafist er samkvæmt reglugerð, þar á meðal skyldubundið nám og endurmenntun. Brunamálaskólanum er jafnframt heimilt að standa fyrir annarri fræðslu, enda komi slík starfsemi ekki niður á meginstarfsemi skólans. Skólinn starfrækir staðarnám, fjarnám og farkennslu samkvæmt námskrá. Rekstur Brunamálaskólans er fjármagnaður af rekstrarfé HMS samkvæmt fjárlögum hverju sinni og heimilt er að nýta tæki og búnað slökkviliða sveitarfélaganna við skólastarfið, með samþykki viðkomandi slökkviliðsstjóra, án sérstakrar greiðslu.
Þrátt fyrir lögbundið og umfangsmikið hlutverk hefur Brunamálaskólinn takmarkaða yfirbyggingu og enga sértæka aðstöðu til verklegrar kennslu. Það hversu háður skólinn er að aðstöðu slökkviliðanna hefur áhrif á samræmi kennslu, skipulag námskeiða og þróun verklegrar þjálfunar. Kennsla verður flóknari í framkvæmd og krefst aukins undirbúnings og útsjónarsemi af hálfu leiðbeinenda.
Núverandi æfingaaðstaða slökkviliða sýnir jafnframt að ákveðnir þættir í námi Brunamálaskólans eru erfiðir í framkvæmd, einkum æfingar sem krefjast notkunar heits, raunverulegs reyks og opins elds. Slík aðstaða er almennt ekki til staðar eða aðeins í mjög takmörkuðum mæli, sem setur skorður við framkvæmd hluta námsins, bæði í grunn- og framhaldsnámi sem og í endurmenntun, þar sem fjarlægðin við næsta yfirtendrunargám eða annað slíkt er oft of löng.
Í ljósi þessa er nauðsynlegt að skýra aðkomu Brunamálaskólans að framtíðaruppbyggingu æfingasvæða. Aðstaðan þarf að nýtast grunnnámi, framhaldsnámi, endurmenntun og stjórnendanámi og styðja við samræmda, raunhæfa og örugga verklega kennslu. Í því samhengi koma þrjár meginleiðir til greina:
Aðkoma Brunamálaskólans að æfingasvæðum þarf að vera skýrari en hún er í dag og byggja á því að skólinn geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu með samræmdum og raunhæfum hætti og með sanngjörnum hætti gagnvart slökkviliðum í landinu.
Í þessum kafla er fjallað um æfingaaðstöðu annarra viðbragðsaðila, helstu þarfir þeirra, takmarkanir og möguleika á samnýtingu eða samstarfi við uppbyggingu æfingasvæða.
Ekki bárust svör frá öllum aðilum. Umfjöllunin byggir því annars vegar á þeim upplýsingum sem bárust og hins vegar á þekkingu starfshópsins á aðstöðumálum viðkomandi aðila.
Lögreglan rekur Mennta- og starfsþróunarsetur á Krókhálsi í Reykjavík með fundarrýmum, æfingaíbúð, valdbeitingarhermi og íþróttasal. Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur einnig aðgang að fjölhæða gámastæðu í Reykjavík. Auk þess nýtir lögreglan akstursæfingasvæði við Keflavíkurflugvöll, skotsvæði á Suðurnesjum og aðra aðstöðu á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við stofnanir og félagasamtök.
Helstu þarfir snúa að fjölbreyttu æfingarými innan- og utandyra, aðstöðu til aksturs- og skotþjálfunar og rými fyrir stækkandi nemendahópa. Takmarkanir felast einkum í plássleysi, takmörkuðu útisvæði, ferðatíma til Suðurnesja og kostnaði við tæknilausnir á borð við sýndarveruleika. Formleg afstaða til samstarfs liggur ekki fyrir og þyrfti að byggjast á nánari þarfagreiningu og fjármögnun.
Landhelgisgæslan hefur ekki eigið skilgreint æfingasvæði fyrir alla þá þjálfun sem áhafnir skipa og séraðgerðasveit LHG þurfa á að halda. Hún hefur meðal annars nýtt aðstöðu á Keflavíkurflugvelli, eigin skip, Sæbjörgu hjá Slysavarnaskóla sjómanna og aðstöðu SHS í Hafnarfirði. Helstu þarfir snúa að raunhæfari æfingaaðstæðum þar sem hægt er að vinna með reyk, hita og sérhæfðar aðstæður. Einnig getur verið þörf fyrir aðstöðu sem styður við þjálfun vegna björgunarþyrlu, svo sem sundlaug, hermiþjálfun og önnur sérhæfð æfingarými. Samnýting æfingasvæða gæti því einkum falist í aðstöðu fyrir sérhæfðar sviðsmyndaæfingar og sameiginlega þjálfun með öðrum viðbragðsaðilum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg samanstendur af björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum og rekur bæði Björgunarskólann og Slysavarnaskóla sjómanna. Æfingar fara að jafnaði fram í bækistöðvum björgunarsveita, en í tilvikum þar sem húsnæði hentar ekki eða rúmar ekki þátttakendur er leitað eftir aðstöðu hjá öðrum aðilum. Slysavarnarskóli sjómanna nýtir skipið Sæbjörgu sem kennslu- og æfingaaðstöðu og á helming í æfingahúsinu Elju á móti SHS.
Helstu þarfir sem ekki eru alltaf leystar í bækistöðvum tengjast einkum útisvæðum, meðal annars fyrir rústabjörgun. Slík aðstaða er kostnaðarsöm í uppbyggingu og hefur ekki tekist að koma henni aftur upp eftir að aðstaða í Gufuskálum lagðist af. Fjarlægðir frá dreifðari byggðum og mikill fjöldi félagsmanna sem þarf að mennta eru meðal helstu takmarkana og því hefur fjarkennsla verið nýtt talsvert.
Sjúkraflutningaskólinn og sjúkraflutningaaðilar víða um land hafa ekki eigið æfingasvæði en eiga búnað til tilfellaæfinga, svo sem æfingartæki og dúkkur. Kennsla og æfingar hafa meðal annars farið fram í húsnæði slökkviliða víðs vegar um landið og á tveimur föstum viðverustöðum fyrir kennslu og lager, annars vegar á Akureyri fyrir Norður- og Austurland og hins vegar í Sandgerði fyrir Suður- og Vesturland. Helstu samstarfsmöguleikar felast í nýtingu dreifðrar aðstöðu fyrir tilfellaæfingar, samhæfðar æfingar og sameiginlega kennslu þar sem verkefni sjúkraflutninga skarast við verkefni annarra viðbragðsaðila.
Aðrar sjálfstæðar einingar, til dæmis á vegum ISAVIA, voru ekki teknar sérstaklega til skoðunar í heildargreiningu starfshópsins. Þó er vitað að á Keflavíkurflugvelli er sérhæfð aðstaða til að þjálfa viðbrögð við eldi í loftförum, auk sýndarveruleikabúnaðar sem nýtist til stjórnendaþjálfunar. Slík dæmi sýna að sérhæfð æfingaaðstaða er þegar til staðar á afmörkuðum sviðum og að mikilvægt getur verið að horfa til mögulegrar samnýtingar þegar framtíðarkerfi æfingasvæða er mótað.
Í heild sýnir yfirferðin að samnýtingarmöguleikar milli viðbragðsaðila eru fyrir hendi, einkum varðandi útisvæði, aðstöðu fyrir æfingar án elds, reyks eða mengandi efna og sameiginlega kennslu- og hreinlætisaðstöðu. Slík samnýting gæti aukið nýtingu svæðanna og styrkt samhæfingu milli aðila.
Sérþarfir slökkviliða þurfa þó áfram að vera ráðandi við hönnun æfingasvæða, einkum þegar kemur að aðstöðu fyrir heitan, dökkan reyk og opinn eld. Með hliðsjón af fjölda viðbragðsaðila á Íslandi gæti engu að síður verið ákjósanlegt að hanna svæðin þannig að þau geti að hluta mætt þörfum fleiri en eins aðila. Nánari útfærsla kallar á ítarlegri þarfagreiningu og þverfaglegt samstarf viðbragðsaðila.
Í þessum kafla er fjallað um áætlaðan grunnkostnað við uppbyggingu og rekstur æfingasvæða, auk kostnaðar slökkviliða vegna ferða og þátttöku starfsmanna í námskeiðum og þjálfun. Kostnaðartölur eru áætlanir sem byggja á upplýsingum frá slökkviliðum, opinberum og öðrum aðgengilegum verðupplýsingum og gildandi launaviðmiðum. Miðað er við listaverð eða áætluð verð án afslátta, en endanlegur kostnaður ræðst meðal annars af útfærslu, samningum og framkvæmdaraðstæðum.
Við mat á uppbyggingarkostnaði æfingasvæða slökkviliða var miðað við uppbyggingu fullbúins æfingasvæðis (svæði A) sem gæti þjónað bæði sem miðstöð þjálfunar slökkviliða og sem kennsluaðstaða fyrir Brunamálaskólann.
Kostnaðaráætlunin byggir á upplýsingum frá slökkviliðum og reynslu þeirra af uppbyggingu æfingasvæða, verðupplýsingum frá birgjum og almennum byggingarkostnaði.
Horft er til uppbyggingar grunninnviða sem þurfa að vera til staðar á æfingasvæði og uppsetningar þeirra æfingaeininga sem þarf til að mæta hæfniviðmiðum námsins.
Helstu kostnaðarliðir við uppbyggingu svæðis A eru sýndir í töflu hér að neðan.
Áætlaður heildarkostnaður við uppbyggingu svæðis A er um 167–220 milljónir króna miðað við kostnaðarbil einstakra liða í töflu 4.
Stærstur hluti kostnaðarins felst í uppbyggingu þjónustu- og kennsluaðstöðu ásamt uppsetningu æfingaeininga. Slíkar einingar eru oft byggðar upp úr gámum sem breytt er til æfinga, til dæmis með því að skera út hurðir og glugga, setja upp stiga eða svalir og styrkja rými til að standast álag æfinga. Slík lausn hefur reynst hagkvæm og sveigjanleg og er víða notuð á æfingasvæðum slökkviliða erlendis.
Í samanburði við svæði A eru svæði B byggð upp samkvæmt sömu hugmyndafræði en með töluvert minni yfirbyggingu, þar sem þau eru fyrst og fremst ætluð til reglulegrar verklegrar þjálfunar slökkviliða. Slík svæði þurfa því almennt ekki kennsluaðstöðu, þjónustubyggingar eða umfangsmiklar æfingaeiningar. Af þeim sökum er uppbygging svæðis B verulega kostnaðarminni en svæðis A, þó að grunninnviðir og ákveðin lágmarksaðstaða til æfinga þurfi engu að síður að vera til staðar.
Uppbygging æfingasvæða frá grunni getur verið kostnaðarsöm, sérstaklega þegar kemur að jarðvinnu, grunninnviðum og uppbyggingu æfingaaðstöðu. Í mörgum tilvikum getur því verið hagkvæmara að byggja áfram á svæðum þar sem þegar hefur verið komið upp ákveðinni aðstöðu og innviðum, þar sem slíkt getur dregið úr bæði framkvæmdakostnaði og uppbyggingartíma.
Í því samhengi gæti verið hagkvæm lausn að byggja upp eitt fullbúið æfingasvæði (svæði A) þar sem fyrir eru ákveðnir grunninnviðir og aðstaða til æfinga, til dæmis á æfingasvæði Brunavarna Suðurnesja í Reykjanesbæ.
Með því að styðja við áframhaldandi uppbyggingu þar væri unnt að nýta þá fjárfestingu sem þegar hefur verið lögð í svæðið og draga þannig úr umfangi ákveðinna kostnaðarliða við uppbyggingu. Samhliða væri jafnframt eðlilegt að styðja við frekari þróun annarra æfingasvæða á landinu þannig að þau geti uppfyllt kröfur svæða B. Þar má meðal annars nefna æfingasvæði slökkviliða í Fjarðabyggð og í Norðurþingi, þar sem þegar er til staðar ákveðin aðstaða sem með markvissri uppbyggingu gæti þróast í svæðisbundin æfingasvæði fyrir reglulega verklega þjálfun.
Með slíkri nálgun væri unnt að byggja upp samræmt kerfi æfingasvæða þar sem eitt stærra svæði þjónar sérhæfðari þjálfun á landsvísu en minni svæði styðja við reglulegt æfinga- og þjálfunarstarf slökkviliða á ákveðnum landshlutum.
Kostnaðaráætlunin sýnir áætlaðan uppbyggingarkostnað grunninnviða og æfingaeininga, en tekur ekki til heildarfjárfestingar í tækjum og búnaði. Áður en ákvörðun um framkvæmd er tekin þarf því að skilgreina búnaðarþörf A og B svæða og meta stofn- og rekstrarkostnað hennar sérstaklega.
Rekstur æfingasvæða slökkviliða felur í sér breytilega kostnaðarliði sem tengjast bæði framkvæmd æfinga og daglegu viðhaldi svæða og æfingaeininga. Slíkur kostnaður getur verið misjafn eftir umfangi æfingaaðstöðu, nýtingarhlutfalli yfir ákveðin tímabil og fleiri þátta. Við mat á rekstrarkostnaði þarf því meðal annars að horfa til bæði efnis- og búnaðarkostnaðar vegna æfinga, kostnaðar við viðhald og rekstur svæðis og launakostnaðar þeirra sem koma að rekstri svæðisins og framkvæmd æfinga.
Tölur sem settar eru fram í þessum kafla byggja á upplýsingum frá slökkviliðum sem reka eða hafa byggt upp æfingaaðstöðu, ásamt mati á efnisnotkun og vinnuframlagi við undirbúning og framkvæmd æfinga.
Mikilvægt er að hafa í huga að verulegur hluti þess vinnuframlags sem tengist rekstri æfingasvæða er í dag unninn af starfsmönnum slökkviliða samhliða öðrum störfum þeirra. Við mat á rekstrarkostnaði hefur því verið reynt að leggja raunhæft mat á það vinnuframlag sem þarf til að halda slíkri aðstöðu í rekstri.
Tafla 5: Dæmi um kostnaðarliði sem horfa þarf til
Tafla 6: Rekstrarkostnaður eftir upplýsingum frá slökkviliðum og Brunamálaskólanum.
Upplýsingar frá slökkviliðum benda til þess að rekstrarkostnaður æfingasvæða geti verið verulegur, sérstaklega þegar um er að ræða svæði þar sem framkvæmdar eru reglulegar æfingar með eld og reyk og æfingar fyrir sérhæfðar björgunaraðferðir. Kostnaður ræðst þó að miklu leyti af umfangi svæðisins, fjölda æfinga og þeirri aðstöðu sem til staðar er.
Til að unnt sé að setja fram raunhæfa rekstraráætlun fyrir æfingasvæði af gerð A og B þarf þó að skilgreina nánar hvaða aðstaða og æfingaeiningar þurfa að vera til staðar á slíkum svæðum. Þegar sú skilgreining liggur fyrir verður unnt að leggja fram nákvæmara mat á rekstrarkostnaði svæðanna og samanburð á mismunandi útfærslum þeirra. Inn í þann útreikning þarf einnig að taka annað hvort kaup og/eða leigu á búnaði og tækjakosti sem þarf að vera til staðar á æfingasvæði til að hægt sé að keyra raunhæfar æfingar.
Til viðbótar við uppbyggingu og rekstur æfingasvæða þarf að horfa til þess kostnaðar sem slökkvilið bera þegar starfsmenn sækja námskeið Brunamálaskólans. Samkvæmt kjarasamningi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSOS) og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) skulu starfsmenn sem sækja fræðslu- og þjálfunarnámskeið samkvæmt beiðni vinnuveitanda halda reglubundnum launum og fá greiddan kostnað vegna þátttöku. Ákvæði samningsins ná einnig til ferðatíma og námskeiða sem fara fram utan hefðbundins dagvinnutíma.
Við mat á þessum kostnaði þarf að taka tillit til nokkurra mismunandi kostnaðarliða.
Helstu kostnaðarliðir eru eftirfarandi:
Útreikningarnir byggja á þremur viðmiðum: akstursgjaldi vegna ferða, dagpeningum vegna gistingar og fæðis og gildandi kjarasamningi vegna launakostnaðar. Fjárhæðir og nánari forsendur koma fram í töflum 7–9.
Tafla 7: Launakostnaður á klukkustund
Tafla 7 sýnir tímakaup sem byggir á gildandi kjarasamningi og launatöflu sem tekur gildi 1. apríl 2026. Miðað er við lægsta gildi viðkomandi launaflokks, án persónuálags og annarra launatengdra greiðslna. Röðun í launaflokka byggir á röðun Verkefnastofu Starfsmats.
Tafla 8: Kostnaður vegna gistingar og fæðis
Tafla 9: Aksturgjald eftir vegalengd
Hér eru sett fram þrjú dæmi sem byggja á mismunandi forsendum hvað varðar starfstitil þátttakenda, tímalengd námskeiða, námskeiðstíma og fjarlægð frá námskeiðsstað.
Athygli er vakin á því að í útreikningunum er kostnaður vegna ferðatíma starfsmanna reiknaður þannig að hverjir 100 km séu líkt og 1.25 klst. í vinnu. Samkvæmt kjarasamningi ber þó sveitarfélögum og starfsmönnum að ná samkomulagi um greiðslur vegna ferðatíma þegar slíkt á við.
Slökkvilið sendir fjóra hlutastarfandi slökkviliðsmenn í námskeiðslotu í grunnnámi slökkviliðsmanna. Áætluð tímalengd námskeiðsins er 20 klukkustundir, frá síðdegis á föstudegi fram að kaffi á sunnudegi. Slökkviliðsmennirnir þurfa að ferðast um 400 km hvora leið til að taka þátt í námskeiðinu.
Tafla 10: Dæmi 1 um útreikning
Slökkvilið sendir fjóra löggilda slökkviliðsmenn í námskeiðslotu við framhaldsnám slökkviliðsmanna. Námskeiðið stendur yfir í 30 klukkustundir og fer fram á dagvinnutíma frá mánudegi til föstudags. Slökkviliðsmennirnir þurfa að ferðast um 300 km, hvora leið, til að taka þátt í námskeiðinu.
Tafla 11: Dæmi 2 um útreikning
Slökkvilið sendir fjóra aðstoðarvarðstjóra á námskeið fyrir stjórnendur á vettvangi. Námskeiðið stendur yfir í 20 klukkustundir og fer fram um helgi. Fjarlægð frá námskeiðsstað er 200 km og þátttakendur aka fram og til baka báða dagana.
Tafla 12: Dæmi 3 um útreikning
Dæmin sýna að heildarkostnaður slökkviliða vegna þátttöku starfsmanna í námskeiðum getur orðið verulegur þegar laun, ferðatími, akstur, gisting og uppihald eru tekin með.
Útreikningarnir byggja á einfölduðum forsendum og taka ekki til allra möguleika til kostnaðarlækkunar, svo sem samnýtingar ferða og ökutækja eða greiðslu fæðis og gistingar samkvæmt reikningi í stað dagpeninga, í samræmi við leiðbeiningar ferðakostnaðarnefndar. Einnig þarf að meta mögulegan kostnað vegna afleysinga á meðan námskeiði stendur.
Eins og rakið er í fyrri köflum krefst uppbygging og rekstur æfingasvæða skýrrar fjármögnunar. Þar sem sveitarfélög bera ábyrgð á slökkviliðum en ríkið rekur Brunamálaskólann er eðlilegt að sameiginlegir þjálfunarinnviðir byggi á samstarfi ríkis og sveitarfélaga.
Í aðgerðaráætlun starfshóps um Brunamálaskólann sem send var ráðherra í maí 2022 var sérstaklega bent á mikilvægi þess að koma á virku samstarfi ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu sameiginlegra æfingasvæða fyrir slökkvilið landsins. Þar var lagt til að byggð yrðu upp örugg og vel búin æfingasvæði sem tryggðu samræmt aðgengi slökkviliða að verklegri þjálfun. Jafnframt var bent á að heppilegra gæti verið að byggja upp færri en betur útbúin æfingasvæði fremur en mörg smærri svæði með takmarkaða aðstöðu. Við staðarval slíkra svæða væri mikilvægt að horfa sérstaklega til aðgengis sem flestra slökkviliða og þeirra vegalengda sem þarf að ferðast til að sækja æfingar.
Í tillögum starfshópsins var einnig lagt til að aðkoma ríkisins gæti falist í fjárhagslegum stuðningi við uppbyggingu æfingasvæða, til dæmis með mótframlagi við sveitarfélög til uppbyggingar slíkra innviða. Sveitarfélög gætu á móti lagt til landsvæði eða aðra nauðsynlega innviði og tryggt að slökkvilið hafi aðgang að svæðunum til reglulegrar þjálfunar. Slík nálgun samræmist þeirri uppbyggingu sem fjallað er um í þessari skýrslu, þar sem lagt er til að byggt verði upp eitt stærra æfingasvæði með sérhæfðri aðstöðu ásamt fáeinum dreifðum svæðum sem nýtast til reglulegrar þjálfunar og kennslu.
Í ljósi þess að æfingasvæði, samkvæmt þeirri uppbyggingu sem hér er lögð til, myndu jafnframt nýtast til kennslu Brunamálaskólans, er eðlilegt að ríkið komi að uppbyggingu og rekstri þeirra að einhverju marki. Slík aðkoma gæti til dæmis falist í fjármögnun ákveðinna æfingaeininga eða aðstöðu sem sérstaklega tengist kennslu og námskeiðahaldi skólans, svo sem aðstöðu fyrir heitar æfingar, sérhæfðar björgunaraðstæður eða hermi- og stjórnunarþjálfun.
Þá má einnig horfa til þess að æfingasvæði slökkviliða gætu nýst fleiri viðbragðsaðilum eins og lögreglu, sjúkraflutningum og björgunarsveitum. Samnýting slíkra svæða gæti styrkt samhæfingu viðbragðsaðila og aukið gæði sameiginlegra æfinga vegna stærri atburða. Í því samhengi mætti einnig skoða mögulega aðkomu almannavarnakerfisins að uppbyggingu og þróun slíkra svæða, þar sem þau gætu nýst við samæfingar og undirbúning viðbragða við stærri áföllum.
Við mat á uppbyggingu æfingasvæða slökkviliða er einnig rétt að horfa til þess að starfsemi slökkviliða er hluti af heildaröryggi samfélagsins. Slökkvilið gegna lykilhlutverki í viðbrögðum við stórslysum, náttúruhamförum, mengunaróhöppum, eldsvoðum og öðrum atburðum sem geta ógnað öryggi samfélagsins og mikilvægra innviða.
Í alþjóðlegu samstarfi um öryggis- og varnarmál hefur í auknum mæli verið lögð áhersla á að byggja upp og samhæfa viðbúnað og getu á sviði fjölþátta ógna. Innan Atlantshafsbandalagsins (NATO) hefur sérstaklega verið bent á mikilvægi viðnámsþols samfélaga (e. resilience) þar sem ríki skulu búa yfir nægilegri getu til að bregðast við alvarlegum atburðum og tryggja starfsemi samfélagsins við erfiðar aðstæður. Þar undir geta meðal annars fallið viðbrögð við stórbrunum, slysum, hruni bygginga, mengunaróhöppum og öðrum atburðum þar sem slökkvilið gegna lykilhlutverki.
Í ljósi þess að Ísland rekur ekki eigin her og byggir öryggis- og varnarsamstarf sitt að verulegu leyti á alþjóðlegu samstarfi og borgaralegum viðbragðsinnviðum má færa rök fyrir því að uppbygging og styrking þjálfunarinnviða slökkviliða sé hluti af því að efla viðnámsþol samfélagsins og öryggi ríkisins. Þannig er það til dæmis á hinum Norðurlöndunum. Út frá þeim sjónarmiðum er eðlilegt að líta á uppbyggingu æfingasvæða slökkviliða ekki eingöngu sem verkefni einstakra sveitarfélaga heldur sem innviðauppbyggingu sem þjónar öryggi samfélagsins í heild.
Kanna þarf með viðeigandi stjórnvöldum hvort og að hvaða marki uppbygging æfingasvæða fyrir viðbragðsaðila geti fallið undir fjárfestingar sem styrkja öryggis- og varnartengda innviði landsins og skuldbindingar Íslands sem aðildarríkis Atlantshafsbandalagsins (NATO). Slík niðurstaða verður að byggjast á gildandi viðmiðum, samningum og formlegri flokkun fjárfestinga, en uppbyggingin styður jafnframt viðnámsþol samfélagsins og getu þess til að bregðast við stórslysum, náttúruhamförum og atburðum sem geta haft áhrif á mikilvæga innviði og öryggi ríkisins.
Leyfisþörf æfingasvæða ræðst af umfangi starfseminnar, þeirri aðstöðu sem byggð er upp og því hvort æfingar fela í sér eld, reyk eða notkun efna. Við undirbúning þarf því snemma að meta samræmi við skipulag, þörf fyrir byggingar- eða framkvæmdaleyfi, starfsleyfi heilbrigðiseftirlits og kröfur um öryggi og umhverfisvernd.
Æfingasvæði þarf að vera innan gildandi deiliskipulags sem heimilar starfsemina. Ef svo er ekki þarf að vinna nýtt deiliskipulag eða breyta gildandi skipulagi í samráði við skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins. Þar þarf meðal annars að gera grein fyrir landnotkun, aðkomu, öryggissvæðum, hljóðvist og mögulegum áhrifum á umhverfi og nágrenni. Skipulagsforsendur geta því ráðið bæði staðarvali og tímasetningu framkvæmda.
Ef reist eru mannvirki á svæðinu, svo sem æfingaturn, gámaeiningar, geymslur eða æfingahús, þarf að afla byggingarleyfis frá byggingarfulltrúa sveitarfélagsins. Með umsókn fylgja almennt aðaluppdrættir og hönnunargögn löggiltra hönnuða, lýsing á fyrirhugaðri starfsemi og, þegar eldur eða reykur er notaður, brunahönnun og öryggisáætlun. Ef framkvæmdir takmarkast við jarðvinnu, aðkomuvegi eða aðrar minni framkvæmdir getur í ákveðnum tilvikum nægt framkvæmdaleyfi.
Æfingasvæði þarf gilt starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélagsins. Við útgáfu þess er meðal annars metið hvort starfsemin geti haft áhrif á umhverfi, jarðveg eða grunnvatn, hvernig eldsneyti, vatn og önnur efni eru meðhöndluð og hvernig staðið er að hreinsun eða förgun skólps og úrgangs. Ef æfingar fela í sér brennslu eða notkun efna getur jafnframt þurft samþykki Umhverfisstofnunar eða sérstakt leyfi fyrir brennslu utan sorpbrennslu.
Fyrir æfingasvæðið skal liggja fyrir öryggisáætlun og áhættumat fyrir þau verkefni og æfingar sem þar fara fram. Gögnin skulu að lágmarki taka til áhættu fyrir starfsfólk og þátttakendur, ráðstafana til að fyrirbyggja slys og mengun og viðbragða við óhöppum eða slysum.
Viðeigandi sjúkrabúnaður skal vera aðgengilegur þegar æfingar fara fram og miðast við áhættu þeirra verkefna sem framkvæmd eru á svæðinu. Búnaðurinn þarf að nýtast sjúkraflutningamönnum við líkleg slys og óhöpp á svæðinu.
Skýrslan greinir núverandi æfingaaðstöðu slökkviliða, aðgengi að æfingasvæðum og hvaða uppbygging getur best stutt menntun, þjálfun og hæfni slökkviliðsmanna. Niðurstöðurnar leiða til fjögurra megintillagna um samræmt kerfi æfingasvæða, skilgreina ábyrgð og tryggja uppbyggingu, rekstur og fjármögnun æfingasvæða, samstarf við aðra viðbragðsaðila og innleiðingu gæðakerfis.
Greiningin staðfestir að æfingaaðstaða er mjög takmörkuð og misjöfn eftir landshlutum og styður víða ekki sérhæfðar æfingar og hvergi öll hæfniviðmið Brunamálaskólans. Því þarf að skilgreina æfingasvæði í þrjá flokka eftir umfangi og aðstöðu: svæði A, B og C. Flokkunin gerir kleift að tengja þjálfunarþætti og hæfniviðmið við viðeigandi aðstöðu og styður þannig samræmda kennslu og þjálfun.
Meginniðurstaðan er að eitt fullbúið æfingasvæði A ásamt nokkrum dreifðum svæðum B veiti raunhæfasta jafnvægið milli sérhæfðrar aðstöðu, reglulegrar þjálfunar og aðgengis slökkviliða. Einfaldari svæði C geti áfram stutt grunn- og viðhaldsþjálfun í heimahéraði.
Uppbygging æfingasvæða krefst verulegrar fjárfestingar og verður ekki borin af slökkviliðum sveitarfélaganna einum. Þar sem sveitarfélög bera ábyrgð á slökkviliðum en HMS, á vegum ríkisins, starfrækir Brunamálaskólann er eðlilegt að uppbygging, rekstur og nýting æfingasvæða byggist á skýrri ábyrgð og samstarfi ríkis og sveitarfélaga, stöðugri og fyrirsjáanlegri fjármögnun og markvissu samstarfi við aðra viðbragðsaðila.
Með markvissu samstarfi væri hægt að byggja upp nauðsynlega aðstöðu að því markmiði að tryggja betri og samræmdari verklega þjálfun slökkviliðsmanna, bæta aðgengi slökkviliða að æfingaaðstöðu og styrkja þá innviði sem samfélagið þarf á að halda þegar kemur að viðbrögðum við slysum, eldsvoðum og öðrum alvarlegum atburðum.
Á grundvelli niðurstaðna skýrslunnar leggur starfshópurinn fram fjórar megintillögur. Með hverri tillögu eru tilgreindar aðgerðir sem lýsa nánar hvernig henni verði hrint í framkvæmd.
Tryggja þarf samræmda, örugga og aðgengilega æfingaaðstöðu fyrir öll slökkvilið landsins.
Skýra þarf ábyrgð og aðkomu ríkisins og sveitarfélaga að uppbyggingu, rekstri og fjármögnun æfingasvæða og skapa þannig forsendur fyrir markvissri uppbyggingu og sjálfbærum langtímarekstri.
o Brunamálaskólinn verði tryggður aðgangur að slíku svæði fyrir námskeið á vegum skólans.
o Fyrirkomulag um skipulagningu, þróun, uppbyggingu og rekstri svæðisins verði skilgreint.
Auka þarf nýtingu innviða og styrkja samhæfingu milli viðbragðsaðila.
o Almannavarnir komi að skipulagningu og framkvæmd sameiginlegra æfinga, með áherslu á heildarstjórnun viðbragða, fjarskipta og stjórnun við stærri atburða.
o Æfingasvæði verði nýtt fyrir sviðsmyndir sem endurspegla raunveruleg verkefni almannavarna, þar á meðal hópslys, náttúruvá og stórfelldar neyðaraðstæður.
Tryggja þarf að æfingasvæði uppfylli samræmdar kröfur um aðstöðu, búnað, öryggi, nýtingu og viðhald.
Nánari myndskýringar er að finna í pdf útgáfu skýrslunnar.
Brunavarnir Árnessýslu (BÁ) hafa til umráða æfingasvæði undir æfingar og þjálfun á gámasvæði sveitarfélagsins Árborgar við Víkurheiði á Selfossi. Svæðið er afgirt og vaktað með myndavélum á vegum sveitarfélagsins. Umráðasvæði BÁ er við enda svæðisins.
Slökkviliðið er með yfirtendrunargám á svæðinu sem þarfnast endurnýjunar. Þá eru nokkrir gámar komnir á svæðið til að útbúa gámstæðu undir þjálfun en enn á eftir að fjölga gámum og opna á milli þeirra.
Á svæðinu hefur BÁ einnig ýmsa hluti sem nýtast við uppsetningu æfinga, svo sem strætisvagn, flugvél, tanka, steypta veggi, steypta kubba, rör til björgunaræfinga og fleira. Þá getur BÁ fengið bíla á svæðið til að æfa björgun fastklemmdra úr ökutækjum í samstarfi við verktaka á Selfossi, sem hefur komið með bíla og tekið þá aftur eftir notkun.
Það felur í sér mikla samnýtingu að hafa gámasvæði Árborgar sem æfingasvæði, þar sem auðvelt er að nálgast efni og búnað til notkunar á æfingum og koma því síðan fyrir í viðeigandi farvegi að æfingu lokinni. Svæðið er einnig afgirt og því verður slökkviliðið síður fyrir truflun á æfingum, til dæmis á kvöldin og um helgar, þó umferð sé um svæðið á daginn.
Verktakar, fyrirtæki og byggingarvöruverslanir hafa aðstoðað BÁ við að útvega hluti og efni á æfingasvæðið.
Brunavarnir Árnessýslu hafa fengið húsnæði sem átti að rífa til afnota fyrir æfingar frá fyrirtækjum og íbúum í Árnessýslu. Húsnæðið hefur þá verið nýtt til æfinga áður en það fór í niðurrif.
Æfingasvæðið við Ferjutröð 15 í Reykjanesbæ er fjölnota þjálfunarsvæði fyrir slökkvilið og aðra viðbragðsaðila. Svæðið spannar um 28.000 m² og er staðsett á athafnasvæði Tæknivalla á Ásbrú.
Svæðið er skipulagt í samræmi við gildandi deiliskipulag. Uppbygging svæðisins er unnin í samráði við og með samþykki Heilbrigðiseftirlitsins. Einnig hefur verið komið upp öryggisbúnaði á borð við myndavélakerfi og svæðið er girt af.
Helstu innviðir og aðstaða á svæðinu eru meðal annars:
Æfingasvæðið við Ferjutröð 15 býr yfir miklum möguleikum til framtíðar. Stærð svæðisins og staðsetning innan Tæknivalla á Ásbrú skapa einstakt tækifæri til frekari þróunar og uppbyggingar. Nú þegar er svæðið skipulagt í hólf sem gefur möguleika á fjölbreyttum æfingum og verkefnum en framundan er vinna við að skerpa enn frekar á skipulagi og nýtingu.
Markmið næstu ára er að nýta þann grunn sem þegar hefur verið lagður og móta framtíðaruppbyggingu svæðisins. Þar er meðal annars horft til:
Slökkvilið Akureyrar (SA) hefur til afnota 500 m² tveggja hæða húsnæði innan lóðamarka slökkvistöðvarinnar. Af þeim fermetrafjölda er verið að breyta um 200 m² í íbúðarrými með léttum, færanlegum veggjum. Þannig er hægt að breyta innra skipulagi rýmanna og útfæra mismunandi æfingar. Um er að ræða fjölbreytta æfingaaðstöðu sem mætir ýmsum þörfum slökkviliðsins.
Til stendur að breyta öllu húsnæðinu, en það hefur þegar verið hólfað niður í þrjú hólf. Einn hlutinn eru fyrrnefndar íbúðir, annar hluti er ætlaður eiturefnum og þriðji hlutinn er óráðstafaður. Hingað til hefur verkefnið verið fjármagnað að stórum hluta með styrkjum úr Fræðslusjóði brunamála.
Önnur æfingaaðstaða sem slökkviliðið hefur til umráða er 40 m² gámur sem notaður er fyrir yfirtendrun og heita reykköfun. Hann er staðsettur í grjótnámu við Súluveg á Akureyri.
Staðsetning: Á lóð við slökkvistöðina Skútahrauni 6, Hafnarfirði.
Eign: Eignarhald og rekstur með Slysavarnaskóla sjómanna.
Lýsing: Tveggja hæða. Neðri hæð er fimm gámar, þar af stjórngámur og geymsla. Efri hæðin minni, stórar svalir.
Búnaður: Gaseldar, fjórar uppsetningar innanhús á neðri hæð. rúm, vélarrými, hurð.
Framtíð: Lóð er samþykkt til framtíðar. Möguleiki að byggja annað æfingahús skv. skipulagi. Hugmyndin var gámahús, án hita/elds, með þaki, svölum, mögulega turni.
Takmarkanir: Ekki er hægt að vera með eld í timbri eða slíku, eingöngu gaseldun.
Staðsetning: Á lóð við slökkvistöðina við Hraun, Reyðarfirði og á hafnarsvæði ca 200m frá slökkvistöðinni.
Eign: Slökkvilið Fjarðabyggðar.
Lýsing: Tveggja hæða. Neðri hæð er 7 gámar, efri hæð er 3 gámar og svo er einn lóðréttur 40 ft gámur með svölum þar sem hægt er að æfa að síga. Geymslugámar eru á svæðinu. Á hafnarsvæðinu er yfirtendrunargámur ásamt olíupönnu.
Búnaður: Master-blásarar, hitalampar og reykvélar. Færanlegir milliveggir.
Framtíð: Lóð er samþykkt til framtíðar. Stækkun er í vinnslu. Unnið er að því að setja niður árásargáma á hafnarsvæðið. Yfirtendrunargámurinn og olíupannan eru ekki komin á endanlegan stað, en samt hægt að nota bæði. Skipulagsvinna er í vinnslu á hafnarsvæðinu með Fjarðabyggðahöfnum.
Brunahanar: Nægt vatnsmagn er á svæðinu, brunahanar eru bæði við slökkvistöðina og á hafnarsvæðinu.
Vatnsöflun: Stutt í sjó og á til að æfa vatnsöflun.
Takmarkanir: Engar sérstakar.
Brunamálaskólar á Norðurlöndunum eru, líkt og hér heima, reknir af ríkinu undir viðeigandi ríkisstofnunum. Allir hafa þessir skólar eitt eða fleiri æfingasvæði sem rekin eru af ríkinu. Á Íslandi er hvergi til staðar æfingasvæði sem ríkið stendur kostnað af við uppbyggingu og rekstur þar sem hægt er að æfa fjölbreytta þætti í störfum viðbragðsaðila. Æfingasvæði slökkviliða á Íslandi eru fjölbreytt, en ekkert þeirra er þannig uppbyggt að hægt sé að setja upp tilfellaæfingar með sem raunverulegustum hætti eða fyrir öll lögbundin verkefni slökkviliða.
Í heimsóknum sem farnar hafa verið í skóla erlendis á vegum HAGA-samstarfsins hefur komið skýrt í ljós að Ísland er langt á eftir hinum Norðurlöndunum hvað varðar aðstöðu til æfinga fyrir slökkviliðsmenn. Aðstaða og aðbúnaður Brunamálaskólans á Íslandi er að öllu leyti háð því hvað er til staðar hjá þeim slökkviliðum þar sem námskeið skólans eru haldin, sem gerir samræmingu í kennslu og þjálfun flóknari.
Norðurlöndin eru með stór og mikil æfingasvæði þar sem kennsla fyrir slökkviliðsmenn í fullu starfi fer fram og eitthvað af menntun fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn og stjórnendur. Í Noregi, Danmörku og Finnlandi er einn skóli í hverju landi en tveir í Svíþjóð. Skólarnir nýta svo önnur æfingasvæði slökkviliðanna fyrir menntun hlutastarfandi til að auðvelda þeim að sækja námið nær heimabyggð.
Íbúafjöldi í Noregi er 5,6 milljónir. Skólinn er rekinn í Norður-Noregi. Nemendur þurfa að vera þrjár annir í skólanum og eina í starfsþjálfun hjá slökkviliði. Í Noregi eru um 4.200 slökkviliðsmenn í fullu starfi og 7.600 í hlutastarfi.
Skólinn er fullbúinn að öllu leyti. Þar er allt nauðsynlegt húsnæði, heimavist, kennsluaðstaða, slökkvistöð o.s.frv. Æfingasvæðið er með mörgum æfingaeiningum, slökkvistöð, slökkvibifreiðum og öllum þeim búnaði sem þarf til æfinga.
Slökkviliðið í Þrándheimi er með fjórar slökkvistöðvar með sólarhringsvöktum og svo nokkur útkallslið. Æfingasvæðið er við eina slökkvistöðina og því öll starfsmannaaðstaða og aðstaða til að þrífa búnaðinn inni á þeirri slökkvistöð.
Á æfingasvæðinu er kennsluhúsnæði, þriggja hæða steypt hús með gasbrennurum, tvær gámastæður og sérstakt hús til rústabjörgunar. Þá er einnig svæði við rústabjörgunarhúsið til að æfa ýmislegt utandyra varðandi rústabjörgun og umferðaslys.
Sérstakt svæði til æfinga með hættuleg efni er ekki á svæðinu en slökkviliðið á tank með rörum og búnaði til að æfa slíkt. Sú æfingaeining er á gámagrind og því hægt að fara með hana á milli stöðva eða staðsetja hvar sem er á æfingasvæðinu.
Æfingasvæðið í Sandö er annað af tveimur skilgreindum æfingasvæðum sem MSB rekur. Svæðið er um 70 hektarar að stærð og við það starfa yfir 100 starfsmenn. Á svæðinu er rekin heimavist með mötuneyti og aðstaða fyrir um 190 einstaklinga í gistingu á hverjum tíma. Æfingasvæðið er mjög fjölbreytt og þar er hægt að setja á svið ýmis tilfelli, svo sem eld í iðnaðarhúsnæði, íbúðarhúsnæði, mengunarslys, umferðaslys, björgun úr vatni og fleira. Í raun býður svæðið upp á útfærslu á fjölbreyttum æfingum og sviðsmyndum. Fjölmargar alþjóðasveitir, stofnanir og aðrir viðbragðsaðilar sækja æfingar á svæðinu og fá aðstoð og ráðgjöf MSB við uppsetningu. Svæðið í Sandö hefur því yfir að ráða fjölbreyttri aðstöðu til náms, hvort sem um er að ræða bóklegt nám, verklegt nám eða rannsóknarvinnu.
Sértækt rústabjörgunarsvæði sem hefur möguleika á krefjandi umhverfisaðstæðum, svo sem samfallna vegi, byggingarústir, ofanflóð og slys utan alfaraleiða. Svæðið heyrir undir Sandö og er um 5 hektarar að stærð. Á svæðinu er sprengisvæði sem nýtist til ýmissa tilrauna og æfinga tengdum sprengingum. Á svæðinu er því m.a. hægt að æfa viðbragð vegna snjóflóða og skriðufalla, leit og björgun, viðbrögð við hryðjuverkaógn, viðbragð í flóknum og áhættusömum umhverfisaðstæðum ásamt hermiæfingum með skógarelda. Líkt og neðanverðar myndir sýna hefur svæðið mikla möguleika og MSB er reiðubúið að leyfa notkun á svæðinu og aðstoð við uppsetningu æfinga gegn umsömdu gjald, sé þess óskað og tímaáætlun svæðisins leyfir.
Hitt svæðið í Svíþjóð er í Revinge og er svipað af stærð og hefur sambærilega möguleika til æfinga.
Svæðið í Tinglev er nýtt við þjálfun stjórnenda, leiðbeinenda og annarra sem koma að viðbragðsþjónustu í Danmörku. Á svæðinu eru kennslustofur og aðstaða til æfinga í sýndarheimi ásamt hefðbundnu æfingasvæði. Áhersla menntunar sem fram fer á svæðinu er fyrst og fremst á stjórnendur slökkviliða, svo sem leiðbeinendur, teymisstjóra og vettvangsstjóra. Svæðið nýtist einnig öðrum viðbragðsaðilum og slökkviliðum til þjálfunar. Á svæðinu er heimavist með mötuneyti og aðstaða fyrir nokkurn fjölda á hverjum tíma. Æfingasvæðið sjálft er nefnt Atlaborg (Atleborg) og er eitt stærsta æfingasvæðið í Norður-Evrópu. Svæðið er mjög vinsælt til æfinga vegna rústabjörgunar og er oft leigt út til alþjóðasveita og annarra viðbragðsaðila fyrir slíkar æfingar. DEMA áætlar að stækka svæðið, en nú þegar býður það upp á flestar þær aðstæður sem geta komið upp í störfum slökkviliða. Líkt og á öðrum æfingasvæðum á Norðurlöndunum er svæðið mjög fjölbreytt og þar er hægt að setja á svið ýmis tilfelli, svo sem eld í iðnaðarhúsnæði, íbúðarhúsnæði, mengunarslys, umferðaslys, lestarslys og fleira.
Aðstaða til skrifborðs- og sýndarveruleikaþjálfunar fyrir stjórnendur er til fyrirmyndar á svæðinu. Annars vegar er búið að setja upp heila bæi, uppbyggt með líkönum af byggingum og öðrum mannvirkjum, líkt og um raunverulegt samfélag sé að ræða. Þetta kallast „table top simulation“, þar sem hægt er að setja um atvik og vettvang þar sem nemendur taka ákvarðanir um aðgerðir og framkvæmd. Við slíkar æfingar þjálfast upp yfirsýn og ákvarðanataka hjá stjórnendum. Búið er að hanna atvik þannig að hver ákvörðun hefur í för með sér afleiðingu sem ýmist hefur engin, batnandi eða versnandi áhrif á aðstæður. Það er því ákveðin sögulína fyrir hvern vettvang en nemendur geta haft áhrif á þá sögulínu með sínum ákvörðunum. Hver ákvörðun, hvort sem það er áætlun um aðgerðir, lokanir eða uppstillingu á vettvangi, skiptir því máli. Framkvæmdar eru hópaæfingar þar sem farið er yfir ólíkar aðstæður á vettvangi og teknar opnar umræður. Sömuleiðis eru keyrðar einstaklingsæfingar þar sem greining og ákvörðunartaka í hlutverki stjórnanda er prufuð við stýrðar aðstæður. Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum minna slíkar æfingar á leik með barnaleikföng en engu síður er verið að nota fremur kostnaðarlitlar aðferðir við að þjálfa upp hæfari og undirbúnari stjórnendur.
Þegar nemendur hafa náð að byggja upp færni í gegnum þessa þjálfun hefja þeir frekara nám í gegnum sýndarveruleika. Í Danmörku, líkt og í Svíþjóð og Finnlandi, er notast við XVR sem er leiðandi hugbúnaðarlausn á þessu sviði. Innan þess kerfis er hægt að setja upp margar útfærslur af tilfellum með það markmið að efla reynslu og þjálfa alla sem koma að stjórnun og skipulagi á vettvangi.
Uppsetningin í Tinglev er þannig að um er að ræða sérstaka kennslustofu sem inniheldur nauðsynlegan tæknibúnað fyrir leiðbeinendur og þátttakendur þjálfunar. Kaupa þarf áskriftarleyfi af hugbúnaðarlausninni og eru slík leyfi fjögur talsins í Tinglev og stendur til að fjölga þeim um tvö til fjögur árið 2025. Þau hafa sömuleiðis útfært lausnir við tilfærslu á búnaðinum ef þörf er á að kenna utan svæðisins. Eftir að nemendur hafa verið þjálfaðir í gegnum table top og XVR, þar sem einfalt er að stýra aðstæðum og öryggi, er farið með áunna reynslu út á æfingasvæðið sjálft. Þannig eru nemendurnir orðnir öruggari í ákvarðanatöku áður en þeir eru settir í aðstæður þar sem erfiðara er að hafa stjórn á öllum aðstæðum. Oft fara fram sameiginlegar æfingar með öðrum viðbragðsaðilum sem starfa eftir sama vettvangsstjórnunarskipulagi og slökkviliðin, s.s. heilbrigðisstarfsfólki og lögreglu.
Brunamálaskólinn í Finnlandi hefur til umráða umfangsmikla og fjölhæfa aðstöðu til þjálfunar vegna björgunaraðgerða og neyðarsímsvörunar. Æfingasvæðið sjálft býður upp á einstaka aðstöðu sem hentar afar vel fyrir verklega kennslu til viðbragðsaðila. Svæðið er mikið notað af nemendum skólans í starfsnámi og einnig til símenntunar og annarrar þjálfunar. Aðstaðan er gríðarlega fjölbreytt eins og má sjá hér að neðan.
Til staðar er aðstaða til akstursæfinga, fyrir bæði létt og þungt viðbragðsökutæki, til að efla öryggi og færni við neyðarakstur. Útbúin hefur verið sérstök æfingarbraut en einnig er möguleiki til þjálfunar á torfæruökutækjum líkt og fjórhjólum sem ætluð eru við björgun utan alfaraleiðar.
Hægt er að setja upp aðstæður sem krefjast heilbrigðisinngripa og vinnu við sjúkraflutninga. Slíkt er gert með hermilíkönum sem líkja eftir þeim aðstæðum sem geta komið upp við veikindi eða slys við hefðbundnar heimilisaðstæður en hafa sömuleiðis möguleikann til að breyta umhverfinu þannig að það líkist spítölum og viðlíka stofnunum.
Hér er einnig notast við hermisetur sem líkir eftir hefðbundnu starfsvæði neyðarsímsvörunar. Um er að ræða tæknilega vel búna aðstöðu með marga möguleika.
Svæðið hefur til staðar „eldfugl“ þar sem hægt er að setja á svið bruna í loftfari. Þarna eru þjálfaðir flugvallarstarfsmenn og slökkviliðsmenn í viðbragði vegna elds á flugvélum.
Á svæðinu er sérstakur hermir ætlaður til brunarannsókna. Um er að ræða flutningsvagn útbúinn aðstöðu til fyrirlestra, tæknirými og brunarými. Þetta er því færanleg aðstaða til verklegrar þjálfunar við brunarannsóknir sem einnig er hægt að nýta til að sýna brunaþróun og útskýra eðli elds sem og forvarnarstarfs til almennings í kringum ráðstefnur og annað slíkt.
Í sýningarsalnum er hægt að sýna brunaþróun og eðli elds við örugga og hreina aðstöðu. Þarna er sömuleiðis sýnt hvernig ýmis tæknibúnaður virkar svo sem sprinkler kerfi og fleira.
Á svæðinu er sýndarveruleikasetur sem notað er til þjálfunar á vettvangs- og teymistjórum í sýndarheimi. Notast er við forrit líkt og FireStudio og XVR sem bjóða upp á yfirgripsmikla nálgun í þrívídd.
Búið er að setja upp kvarðalíkön til að líkja eftir íbúðarbyggð, iðnaðarsvæðum, flugvöllum og fleiri aðstæðum þar sem hægt er að setja upp vettvang til að þjálfa ákvörðunartöku stjórnenda, útskýra öryggisþætti í tengslum við byggingarfræði og brunavarnir og fleiri þætti.
Í skólanum má finna nútímalega aðstöðu til að þjálfa tryggingar, fallvarnir og annað sem viðkemur vinnu í hæð. Þar er hægt að þjálfa þakrof og fleira.
Á svæðinu er möguleiki til að æfa og þjálfa slökkvitækni í ólíkri gerð húsnæðis, svo sem iðnaðarhúsnæði, íbúðarhúsnæði, stærri byggingum, bílastæðahúsum og fleiru.
Aðstaða er til að þjálfa viðbragð við rústabjörgun, þar sem hægt er að líkja eftir mannvirkjum sem hafa hrunið. Aðstaðan er notuð til þjálfunar í leit og björgun, búa til aðgengi, línuvinnu, þjálfun leitarhunda, lyftingum og tryggingum og fleiri þáttum.
Breytileg aðstaða til þjálfunar í reykköfun, svo sem sértækir gámar og húsnæði sem líkir eftir íbúð til að æfa leit og lífbjörgun.
Á svæðinu er aðstaða til að æfa vatnabjörgun sem og björgunarköfun í þar til gerðum laugum. Skólinn á allan nauðsynlegan búnað, svo sem báta, köfunarbúnað og fleira sem þarf til.
Sett hefur verið upp breytileg aðstaða til að þjálfa björgun fastklemmdra í kjölfar umferðaslysa þar sem hægt er að setja á svið ýmsar útfærslur vegna slysa í venjulegum fólksbílum sem og stærri ökutækjum og jafnvel lestum.
Til staðar er aðstaða sem nýtist við þjálfun aðgerða- og vettvangsstjóra. Um er að ræða tæknilega vel búið rými með öllu því sem á þarf að halda.
Aðstaða er til að þjálfa viðbragð vegna mengunaróhappa og vinnu við hættuleg efni. Ýmsir möguleikar eru til staðar til að setja á svið efnaleka með og án raunverulegra efna.
Svæði A er fullbúið æfingasvæði sem markvisst er skipulagt og hannað til að ná fram heildstæðri og formlegri þjálfun slökkviliða og annarra viðbragðsaðila. Svæðið skal uppfylla kröfur sem gerðar eru til æfinga samkvæmt lögum og reglugerðum um brunavarnir og viðbragðsþjálfun.
Svæði A þjónar sem miðstöð fyrir skipulagða kennslu og stærri æfingar, þar á meðal námskeið á vegum Brunamálaskólans.
Svæði B eru minni og eru dreifð um landið. Þau eru ætluð til staðbundinna æfinga og reglulegrar færniþjálfunar en uppfylla ekki allar þær kröfur sem gerðar eru til Svæðis A.
Ekki er gerð krafa um:
Svæði B styðja við reglubundna þjálfun og færniþróun slökkviliða á viðkomandi svæði.
Svæði C eru einföld og staðbundin æfingasvæði sem ætluð eru fyrir grunnþjálfun og reglulegar æfingar innan hvers héraðs.
Svæði C gera slökkviliðum kleift að viðhalda reglulegri verklegri færni án umfangsmikilla innviða eða fjárfestinga.
Ef komið verður upp svæðum eftir þessari skilgreiningu væri eðlilegt framhaldsskref að tengja tiltekin hæfniviðmið úr námskrám Brunamálaskólans við skilgreindar gerðir æfingasvæða. Slíkt fyrirkomulag fæli þá í sér að skilyrt yrði að ljúka ákveðnum verklegum þáttum námsins, hvort sem um er að ræða grunnnám, framhaldsnám eða endurmenntun, á tiltekinni gerð æfingasvæðis (A, B eða C) til samræmis við eðli og umfang þess hæfniviðmiðs sem um ræðir. Með þessu væri hægt að stuðla betur að því að verkleg þjálfun uppfylli ákveðin hæfniviðmið og fari fram við samræmdar aðstæður með tilliti til aðstöðu, öryggis og raunhæfis æfinga.
Dæmi um fjölnota æfingaeiningu á æfingasvæðinu við skólann í Noregi. Gámahús, hallandi þak, turn og svalir. Tveir 40 feta gámar upp á rönd og þrem 20 feta gámum undir hallandi þakinu. Svalir og öryggishandrið.
Hægt að æfa ýmsa þætti svo sem vinnu á þökum, opnun á þökum (reyklosun), björgun með stigum og körfubifreiðum, inngöngu upp stigahús, sig niður af svölum o.s.frv.
Hæfniviðmið svo sem stigaæfingar, björgun úr hæð, línuvinna, vinna á þökum, tryggingar, notkun körfu/stigabíla og fleira er hægt að æfa og uppfylla.
Á svæði Norska skólans. Nýleg æfingaeining sem byggð er upp með tveim steyptum húsum. Hægt að æfa slökkvistarf innan og utanhúss, reykköfun, björgun fólks og setja upp mismunandi sviðmyndir til að takast á við. Hæfniviðmið svo sem varðandi slökkvistarf, björgun fólks, reykköfun, notkun stiga o.fl.
Hæfniviðmið sem verkleg þjálfun í grunn- og framhaldsnámi á að uppfylla: