21. febrúar 2025
19. febrúar 2025
Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,25 prósent í janúar 2025
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði annan mánuðinn í röð
- Á síðustu 6 mánuðum hefur vísitalan hækkað um 0,2 prósent
- Á síðustu 12 mánuðum hefur vísitalan hækkað um 12 prósent, á meðan verðbólga mældist um 4,6 prósent á sama tímabili
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 118,6 stig og lækkaði um 0,25 prósent á milli mánaða í janúar. Vísitalan hefur því lækkað síðustu tvo mánuði en hún lækkaði um 0,9 prósent á milli mánaða í desember.
Á ársgrundvelli hefur vísitala leiguverðs hækkað um 12 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 4,6 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 10,4 prósent. Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildi hennar síðustu 12 mánuði.
Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo janúargildi hennar tekur mið af leigusamningum í desember og janúar.
Hægt er að nálgast upplýsingar um leigusamninga í leiguverðsjá HMS, en hana má nálgast með því að smella á þennan hlekk.
Hægt hefur á hækkun leiguverðs síðustu mánuði
Eftir miklar leiguverðshækkanir fyrri part síðasta árs hefur hægt mjög á hækkun leiguverðsvísitölunnar síðustu mánuði og nemur sex mánaða hækkun hennar einungis 0,2 prósent. Sé horft yfir lengra tímabil hefur vísitala leiguverðs hækkað um 12 prósent á síðustu 12 mánuðum á meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 4,6 prósent á sama tímabili.
Á ársgrundvelli heldur leiguverð áfram að hækka umfram verðlag í landinu öllu, en 12 mánaða raunverðshækkun vísitölu leiguverðs nam 7 prósent í janúar. Til samanburðar hækkaði leiguverð um 7,5 prósent að raunvirði á ársgrundvelli í desember og 6,4 prósent í nóvember.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS