26. nóvember 2026
HMS herðir varnir gegn netárásum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Netvarnir HMS hafa verið hertar sem liður í viðbragðsáætlun almannavarna vegna verndunar upplýsingainnviða
- Notendur vefþjónustu og gagnatenginga frá HMS gætu upplifað tímabundið rask á meðan verið er að herða netvarnirnar
- Engin óeðlileg netöryggisatvik hafa verið skráð hjá HMS á síðustu dögum
Tímabundið rask gæti verið á vefþjónustum og gagnatengingum hjá HMS, þar sem stofnunin hefur aukið öryggiseftirlit með upplýsingakerfum sínum.
Aukið eftirlit er liður í viðbragðsáætlun almannavarna sem virkjuð hefur verið vegna aukinna netárása þar sem gervigreind er notuð. Almannavarnir og CERT-IS hafa lýst yfir óvissustigi, sem er lægsta viðbúnaðarstig af þremur og felur í sér aukna vöktun, árvekni og samráð.
Vegna aukinna netárása með hjálp gervigreindar hefur CERT-IS hvatt íslensk fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur og tengingar við þriðju aðila. Jafnframt hvetur CERT-IS fyrirtæki og stofnanir til að tryggja að vöktun og viðbragsgeta þeirra sé í samræmi við þessa þróun.
HMS áréttar að engin óeðlileg netöryggisatvik hafa verið skráð hjá HMS á síðustu dögum. Viðskiptavinir HMS geta sent tölvupóst á hms@hms.is ef rof verður á þjónustum þeirra.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




