16. júlí 2024

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4 prósent í júní

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðaverð hækkaði jafn mikið milli mánaða og í maí, en hækkunin í júní var mest á meðal fjölbýlishúsa á landsbyggðinni.
  • Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 9,1 prósent, sem er rúmum þremur prósentustigum yfir verðbólgu.
  • Raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli nam 3,1 prósentum í júní, en til samanburðar hækkaði íbúðaverð um 2 prósent að raunvirði í maí og 0,3 prósent að raunvirði í apríl.

Ný vísitala íbúðaverðs mældist 106,4 stig í júní og hækkaði um 1,4 prósent á milli mánaða, sem er sama hækkun og var í maí þegar vísitalan hækkaði einnig um 1,4 prósent milli mánaða.

Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaðahækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggð og á höfuðborgarsvæðinu.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­­ir júní 2024

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð106,41,4%9,1%
Sérbýli á hbs.106,21,7%12,1%
Sérbýli á landsbyggð107,51,3%5,7%
Fjölbýli á hbs.105,91,3%8,2%
Fjölbýli á landsbyggð108,12,3%11,3%

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun nýrrar vísitölu íbúðaverðs, ásamt undirvísitölum, frá janúar 2020. Einnig sýnir myndin eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð er á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024. Myndina má finna á hms.is/visitolur.

Líkt og myndin og taflan hér að ofan gefa til kynna hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 9,1 prósent á síðustu tólf mánuðum á sama tíma og verðbólga hefur mælst 5,8 prósent samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Íbúðaverð hefur þannig hækkað að raunvirði á milli júní mánaða 2023 og 2024 líkt og í maí og apríl en þar áður hafði verðbólga mælst umfram íbúðaverðshækkun á ársgrundvelli í 13 mánuði samfleytt, eða frá því í mars 2023.

Raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli nam 3,1 prósenti í júní en til samanburðar hækkaði íbúðaverð um 2 prósent að raunvirði í maí og 0,33 prósent að raunvirði í apríl á ársgrundvelli. Raunhækkun íbúðaverðs er drifin áfram af verðhækkunum á landinu öllu, en íbúðaverð hækkaði umfram verðbólgu bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

Árshækkun íbúðaverðs var mest á íbúðum í sérbýli á höfuðborgarsvæðinu en slíkar íbúðir hækkuðu um 12,1 prósent á ársgrundvelli eða um rúm 6 prósent umfram verðbólgu á tímabilinu. Verð á íbúðum í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði minna á milli ára, eða um 8,2 prósent.

Íbúðaverð hækkaði minna á landsbyggðinni á milli ára samanborið við höfuðborgarsvæðið. Á landsbyggðinni nam hækkun íbúðaverðs 7,2 prósentum, eða tæpu einu og hálfu prósenti umfram verðbólgu. Verð á íbúðum í sérbýli hækkaði um 5,7 prósent á meðan verð á íbúðum í fjölbýli hækkaði um 11,3 prósent síðustu 12 mánuði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS