15. júlí 2025

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða í júní 2025

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala íbúðaverðs mældist 111,4 stig í júní og hækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða
  • Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 4,7 prósent, en árshækkunin nam 5,7 prósent í maí
  • Íbúðaverð hækkaði um 0,5 prósent að raunvirði á milli júnímánaða 2024 og 2025, samanborið við 1,9 prósenta hækkun í maí og 3,3 prósent í apríl

Vísitala íbúðaverðs mældist 111,4 stig í júní og hækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða. Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 4,7 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 4,2 prósent.

Raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli er á niðurleið og nam 0,5 prósent í júní en til samanburðar var 12 mánaða raunhækkun íbúðaverðs 1,9 prósent í maí og 3,3 prósent í apríl.

Á mynd hér að neðan má sjá mánaðarbreytingu vísitölu íbúðaverðs á síðustu mánuðum.

Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir júní 2025

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð111,40,45%4,7%
Sérbýli á hbs.112,42,27%5,84%
Sérbýli á landsbyggð113,6-0,96%5,67%
Fjölbýli á hbs.109,20,37%3,12%
Fjölbýli á landsbyggð113,4-3,74%4,9%

Enn hægist á raun­verðs­hækk­un íbúða­verðs

Á síðastliðnum 12 mánuðum hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 0,5 prósent að raunvirði, en raunverðshækkun á ársgrundvelli hefur lækkað samfellt frá því í janúar þegar hún var 5,5 prósent. Vísitala íbúðaverðs hefur ekki hækkað jafn lítið að raunvirði frá því í apríl 2024 þegar hún hækkaði um 0,3 prósent.

Raunverðshækkun íbúðaverðs er að miklu leyti drifin áfram af verðhækkunum á sérbýlisíbúðum á landsbyggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 0,2 prósent að raunvirði síðastliðið ár. Þar af hefur vísitala sérbýlisíbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 1,6 prósent á sama tíma og vísitala fjölbýlisíbúða á svæðinu hefur lækkað um 1 prósent.

Á landsbyggðinni hefur vísitalan hækkað um 1,2 prósent að raunvirði síðastliðið ár en hækkunin hefur að mestu verið drifin áfram af verðhækkunum á sérbýli sem hafa hækkað um 1,5 prósent að raunvirði en fjölbýlisíbúðir um 0,7 prósent.

Mæla­­­­­borð fyr­­­­­­ir vísi­­­­­­töl­­­­­­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggð.

Einnig sýnir mælaborðið undirvísitölur íbúðaverðs og eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS