18. maí 2026
19. maí 2026
Vísitala íbúðaverðs stóð í stað á milli mánaða í apríl 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Vísitala íbúðaverðs stóð í stað á milli mánaða
- Undanfarna tólf mánuði hefur íbúðaverð lækkað um 2,94% að raunvirði
- Greiningaraðilar spá raunverðslækkunum íbúðaverðs á þessu ári og því næsta
Vísitala íbúðaverðs mældist 113,8 stig í apríl og stóð því í stað á milli mánaða. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,15% á sama tíma og verðbólga mældist 5,2%. Íbúðaverð hefur því lækkað um 2,94% að raunvirði undanfarið ár.
Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.
Líkt og sjá má á töflunni hér að neðan hækkuðu undirvísitölur fyrir sérbýli bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni milli mánaða á meðan undirvísitölur fyrir fjölbýli stóðu í stað eða lækkuðu. Á undanförnum 12 mánuðum hefur verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 1,92% og á landsbyggðinni um 0,6%. Að raunvirði hefur verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu því lækkað um 3,16% síðastliðið ár og á landsbyggðinni hefur það lækkað um 4,42%. Verð á sérbýli hefur hins vegar lækkað minna að raunvirði síðustu 12 mánuði, eða um 2,22% á landsbyggðinni og 2,79% á höfuðborgarsvæðinu.
Vísitala íbúðaverðs fyrir apríl 2026
| Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
|---|---|---|---|
| Íbúðaverð | 113,8 | 0,00% | 2,15% |
| Sérbýli á hbs. | 114,9 | 0,17% | 2,32% |
| Sérbýli á landsbyggð | 116,5 | 0,52% | 2,92% |
| Fjölbýli á hbs. | 111,2 | -0,27% | 1,92% |
| Fjölbýli á landsbyggð | 117,1 | 0,00% | 0,60% |
Spá áframhaldandi raunverðslækkunum á næsta ári
Íbúðaverð hefur staðið í stað eða lækkað að raunvirði á ársgrundvelli undanfarna 10 mánuði. Íbúðaverð lækkaði einnig að raunvirði á árinu 2023 þegar miklar og skarpar vaxtahækkanir slógu á þenslu á fasteignamarkaði. Þá lækkaði íbúðaverð að raunvirði á ársgrundvelli í þrettán mánuði í röð, en 12 mánaða raunverðslækkunin mældist mest 6,42% í júlí 2023. Rýming Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa undir lok árs 2023 leiddi til aukinnar eftirspurnar á fasteignamarkaði sem stuðlaði að verðhækkunum á markaðnum þannig að íbúðaverð tók að hækka að raunvirði að nýju, þrátt fyrir hátt vaxtastig.
Greiningardeildir Arion banka og Landsbankans spá áframhaldandi raunverðslækkunum íbúðaverðs á þessu ári og því næsta í nýjum þjóðhagsspám fram til ársins 2028 sem gefnar voru út í síðari hluta aprílmánaðar. Báðar greiningardeildir gera hins vegar ráð fyrir að íbúðaverð taki að hækka að raunvirði að nýju á árinu 2028.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




