22. október 2026
Yfir 80 prósent landsins nú afmarkað í landeignaskrá
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS hefur áætlað eignamörk 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi
- Eigendur fá bréf í pósthólfið sitt á Ísland.is og hafa sex vikur til að bregðast við áætluðum eignamörkum
- Alls hefur yfir 80 prósent flatarmáls Íslands verið afmarkað í landeignaskrá
HMS hefur nú lokið við að áætla drög að eignamörkum um 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi. Hægt er að nálgast upplýsingar um áætluð eignamörk og landeignir um allt land á kortavefsjá HMS fyrir landeignaskrá.
HMS hefur áður áætlað eignamörk 2.470 jarða á Norðurlandi og Vestfjörðum. Með birtingu draga að eignamörkum jarða á Norðaustur- og Austurlandi hefur HMS nú áætlað eignamörk rúmlega 3.600 jarða á landsvísu.
Áætluð eignamörk í landeignaskrá
Áætlun eignamarka á Norðaustur- og Austurlandi er liður í verkefni HMS um að áætla eignamörk jarða um allt land þar sem hnitsett afmörkun liggur ekki fyrir. Um er að ræða drög að legu eignamarka sem landeigendum gefst kostur á að gera athugasemdir við áður en endanleg afstaða er tekin.
Við áætlunina er byggt á bestu tiltæku heimildum hverju sinni, svo sem landamerkjabréfum og öðrum opinberum gögnum. Markmið verkefnisins er að byggja upp heildstæða landeignaskrá sem veitir yfirsýn yfir afmörkun og eignarhald lands á Íslandi.
Úr 29 prósentum í rúmlega 80 prósent frá árinu 2023
Frá því að HMS tók við málaflokki fasteignaskrár hefur stofnunin unnið markvisst að uppbyggingu landeignaskrár. Í upphafi árs 2023 var um 29% flatarmáls Íslands afmarkað í landeignaskrá.
Hlutfallið jókst í 39% árið 2024, 62% árið 2025 og nú í október 2026 er það komið yfir 80% með áætlun eignamarka á Norðaustur- og Austurlandi.
Sex vikur til að bregðast við áætluðum eignamörkum
Þann 22. október sendi HMS eigendum jarða á Norðaustur- og Austurlandi bréf þess efnis að drög að áætluðum eignamörkum væru komin í birtingu. Bréfið er aðgengilegt eigendum á Mínum síðum á Íslandi.is og hafa þeir sex vikur til að bregðast við og senda HMS athugasemdir um áætlaða legu einstakra eignamarka.
Landeigendur geta sent athugasemdir á rafrænan hátt á island.is. Þar að auki geta landeigendurnir hitt starfsmenn í eigin persónu ef bókaður er fundur með því að senda póst á netfangið jardir@hms.is eða í símanúmer stofnunarinnar 440-6400.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





