22. október 2026

HMS endurreiknaði húsnæðisbætur þann 20. október

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Endurreikningur húsnæðisbóta byggir á nýjustu tekju- og eignaupplýsingum frá Skattinum
  • Húsnæðisbætur eru endurreiknaðar fjórum sinnum á ári samkvæmt lögum
  • Umsækjendur hafa fengið sent bréf á island.is ef breyting varð á bótafjárhæð

HMS framkvæmdi endurreikning á öllum virkum umsóknum um húsnæðisbætur þann 20. október síðastliðinn. Endurreikningurinn byggir á nýjustu tekju- og eignaupplýsingum frá Skattinum og er liður í reglubundnu eftirliti með húsnæðisbótum.

Við endurreikning húsnæðisbóta er gerð ný tekjuáætlun á grundvelli fyrirliggjandi gagna, þar á meðal upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins, eignaupplýsinga og annarra forsenda sem geta haft áhrif á rétt til húsnæðisbóta.

Samkvæmt lögum um húsnæðisbætur ber HMS að framkvæma endurreikning húsnæðisbóta fjórum sinnum á ári. Markmið endurreikningsins er að tryggja að bótafjárhæð taki mið af réttum og uppfærðum upplýsingum um tekjur, eignir og aðrar forsendur umsækjenda.

Umsækjendur sem urðu fyrir breytingu á bótafjárhæð í kjölfar endurreikningsins hafa fengið sent bréf með niðurstöðu nýrrar tekjuáætlunar á island.is. HMS hvetur umsækjendur til að kynna sér niðurstöður endurreikningsins.

Ef spurningar eða athugasemdir vakna vegna nýrrar tekjuáætlunar er hægt að hafa samband með tölvupósti á hms@hms.is eða í síma 440 6400.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS