21. apríl 2026
21. apríl 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,62% á milli mánaða í mars 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðaverð hækkaði um 0,62% milli mánaða í mars
- Vísitala íbúðaverðs er nú 0,88% hærri en hún var í september 2025
- Íbúðaverð hefur lækkað um 2,63% að raunvirði á síðustu 12 mánuðum
Vísitala íbúðaverðs mældist 113,8 stig í mars og hækkaði því um 0,62% á milli mánaða. Vísitalan mældist 112,8 stig í september í fyrra og er því sex mánuðum seinna 0,88% hærri nú.
Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.
Líkt og sjá má á töflunni hér að neðan hækkuðu tvær undirvísitölur íbúðaverðs fyrir sérbýli á höfuðborgarsvæðinu og fjölbýli á landsbyggð á milli mánaða í mars. Sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði mest, eða um 1,87% að nafnvirði en fjölbýli á landsbyggð hækkaði um 0,72% í mars. Sérbýli á landsbyggð lækkaði um 0,43% en verð á fjölbýlisíbúðum á höfuðborgarsvæðinu stóð í stað í marsmánuði.
Undanfarið ár hefur sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað mest eða um 3,43% en fjölbýlisíbúðir á sama svæði hafa hækkað um 1,93%. Á landsbyggðinni hafa fjölbýlisíbúðir hækkað um 3,26% síðastliðið ár en íbúðir í sérbýli hafa hækkað minna eða um 1,58% milli marsmánaða 2025 og 2026.
Vísitala íbúðaverðs fyrir mars 2026
| Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
|---|---|---|---|
| Íbúðaverð | 113,8 | 0,62% | 2,61% |
| Sérbýli á hbs. | 114,7 | 1,87% | 3,43% |
| Sérbýli á landsbyggð | 115,9 | -0,43% | 1,58% |
| Fjölbýli á hbs. | 111,5 | 0% | 2,2% |
| Fjölbýli á landsbyggð | 117,1 | 0,72% | 3,62% |
Íbúðaverð heldur áfram að lækka að raunvirði á ársgrundvelli
Milli marsmánaða 2025 og 2026 hækkaði íbúðaverð um 2,61 prósent að nafnvirði á milli, en árshækkunin nam 2,35 prósentum í febrúar síðastliðnum. Verðbólga jókst þó á milli mánaða í mars og því hefur raunverð íbúða breyst minna en nafnverð. Íbúðaverð hefur nú lækkað um 2,63 prósent að raunvirði undanfarna 12 mánuði, samanborið við 2,70 prósenta lækkun milli ára í febrúar síðastliðnum, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




