15. september 2026

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða í ágúst 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða þriðja mánuðinn í röð
  • Íbúðaverð lækkaði á höfuðborgarsvæðinu en hækkaði á landsbyggðinni
  • Íbúðaverð hefur hækkað um 2,25 prósent að nafnvirði síðustu tólf mánuði en lækkað um 3,20 prósent að raunvirði

Vísitala íbúðaverðs mældist 113,6 stig í ágúst og hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða þriðja mánuðinn í röð. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,25 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,6 prósent. Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.

Verðþróunin var þó ólík eftir landsvæðum í ágúst. Á höfuðborgarsvæðinu lækkaði íbúðaverð um 0,18 prósent á milli mánaða, þar sem verð á sérbýli lækkaði um 0,17 prósent og verð á fjölbýli um 0,18 prósent. Á landsbyggðinni hækkaði íbúðaverð hins vegar um 0,77 prósent á milli mánaða.

Hækkunin á landsbyggðinni skýrist einkum af fjölbýli, en sú undirvísitala hækkaði um 2,8 prósent á milli mánaða. Verð á sérbýli á landsbyggðinni stóð hins vegar í stað.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir ág­úst 2026

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð113,60,09%2,25%
Sérbýli á hbs.114,8-0,17%3,24%
Sérbýli á landsbyggð117,00%2,63%
Fjölbýli á hbs.110,5-0,18%1,19 %
Fjölbýli á landsbyggð117,62,8%2,89%

Árshækkun íbúðaverðs eykst en raunverð heldur áfram að lækka

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 2,25 prósent að nafnvirði. Árshækkunin hefur því aukist frá júlí, þegar hún mældist 1,61 prósent.

Að teknu tilliti til verðlagsbreytinga lækkaði íbúðaverð um 3,20 prósent að raunvirði á síðustu tólf mánuðum. Raunverðslækkunin hefur þó farið minnkandi frá því fyrr á árinu og var 3,46 prósent í júlí. Tólf mánaða raunbreyting íbúðaverðs hefur nú verið neikvæð í þrettán mánuði samfellt.

Þegar horft er til undirvísitalna hefur sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað mest síðustu tólf mánuði, eða um 3,24 prósent. Minnsta hækkunin hefur orðið á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu, þar sem verðið hefur hækkað um 1,19 prósent. Á landsbyggðinni hefur verð á fjölbýli hækkað um 2,89 prósent og sérbýli um 2,63 prósent á sama tímabili.

Mæla­borð fyr­ir vísi­töl­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Póstlisti hagdeildar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS