14. september 2026

Mikilvægt að uppfæra brunabótamat eftir framkvæmdir

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS hefur sent fjölmörgum húseigendum tilkynningu um mögulega þörf á endurmati brunabótamats vegna framkvæmda eða breytinga á húseignum
  • Eigendur þurfa sjálfir að óska eftir endurmati og senda upplýsingar um framkvæmdir, framkvæmdarár og ljósmyndir
  • Rétt brunabótamat tryggir að matið taki mið af húseigninni eins og hún er í dag

Nýverið sendi HMS fjölmörgum húseigendum tilkynningu þar sem breytingar höfðu orðið á húseignum sem gætu haft áhrif á brunabótamat þeirra. Til þess að hægt sé að uppfæra brunabótamat þurfa eigendur sjálfir að óska eftir endurmati og senda HMS upplýsingar um framkvæmdir.

Rétt bruna­bóta­mat skipt­ir máli þeg­ar á reyn­ir

Brunabótamat endurspeglar áætlaðan kostnað við að endurbyggja húseign verði hún fyrir verulegu tjóni, svo sem vegna eldsvoða eða annarra stórra váatburða. Því er mikilvægt að matið taki mið af húsinu eins og það er í dag.

Þegar verulegar endurbætur eða breytingar hafa verið gerðar á húseign er mikilvægt að brunabótamatið sé endurskoðað svo það taki mið af þeim framkvæmdum. Með reglulegri endurskoðun má tryggja að upplýsingar um húseignina séu sem réttastar.

Hvernig óska ég eft­ir end­ur­mati?

Til að HMS geti framkvæmt endurmat þurfa húseigendur að óska eftir því og senda upplýsingar ásamt myndum um framkvæmdirnar.

Til að framkvæma endurmat er fyrst og fremst þrennt sem þarf að berast frá húseiganda:

  • Upptalning á þeim framkvæmdum eða viðbótum sem gerðar hafa verið á húseigninni.
  • Upplýsingar um hvaða ár einstakar framkvæmdir voru unnar.
  • Ljósmyndir af þeim breytingum eða viðbótum sem taldar eru upp.

Upplýsingar um samþykktar teikningar og önnur opinber gögn berast HMS frá byggingarfulltrúum sveitarfélaga. Mikilvægt er þó að húseigendur upplýsi um það sem hefur verið framkvæmt og sendi myndir sem sýna breytingar og frágang þeirra.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar

Allar nánari upplýsingar um brunabótamat og endurmat brunabótamats ásamt umsókn um endurmat má finna á heimasíðu brunabótamats á www.brunabotamat.is eða á www.Island.is/brunabotamat.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS