7. september 2026
8. september 2026
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða í brennidepli úrskurðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Kjarni kærumálsins varðar hvort synja hefði átt endurnýjun rekstrarleyfis sökum nálægðar við mikilvægan fjarskiptastreng
- Í nýlegum úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (hér eftir nefnd ÚUA) var tekin fyrir kæra á ákvörðun Matvælastofnunar um að endurnýja rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi á laxi í Arnarfirði. Kærandinn Míla er eigandi og rekstraraðili sæstrengs í Arnarfirði
- Strandsvæðisskipulag Vestfjarða öðlaðist gildi í mars 2023. Eitt eldissvæða Arnarlax í Arnarfirði, við Tjaldaneseyrar, er að mestu leyti innan reits í nýtingarflokknum Lagnir og vegir (LV) í strandsvæðisskipulaginu
Skoða þurfi áhættuna betur að áliti HMS
Í áliti HMS frá 5. maí sl. um samræmi tillögu vegna endurnýjun rekstrarleyfis við strandsvæðisskipulag Vestfjarða kemur fram að fjarskiptastrengir séu ráðandi landnýting innan LV reita, þar á meðal á reit LV6. Af því leiði að önnur nýting á reitnum, þar á meðal sjókvíaeldi, þurfi að geta farið fram án þess að skerða öryggi eða virkni þeirra innviða sem nýtingarflokkurinn tekur til. Í áliti sínu gerir HMS ekki skipulagslega athugasemd við staðsetningu fiskeldis á LV6, í ljósi túlkunar innviðaráðuneytisins á fjarskiptalögum og þess að 7 fulltrúar svæðisráðs telja að gert sé ráð fyrir sjókvíaeldi á reit LV6. Í niðurlagi álits HMS segir stofnunin eftirfarandi: Í samræmi við áherslur innviðaráðuneytis og almenn ákvæði strandsvæðisskipulags um að öryggi fjarskipta sé í fyrirrúmi á reitnum, er þó áréttuð þörf á áhættumati og ábyrgð framkvæmdaraðila á að leggja fram gögn um að starfsemin hafi ekki áhrif á ásættanlegt öryggi strengsins.
ÚUA telur að tilefni hafi verið til nánari rannsóknar
ÚUA telur að það hefði verið eðlilegt að Matvælastofnun tæki tillit til sjónarmiða Mílu sem lutu að áhættu fyrir fjarskiptastrenginn vegna fiskeldisins. Kröfur um sönnun þess að fiskeldið raski ekki öryggi strengsins hvíli á framkvæmdaraðilanum. Að áliti ÚUA orkar afstaða Matvælastofnunar um að engin áhætta skapist af nálægð fiskeldisins við fjarskiptastrenginn tvímælis og er ekki nægilega ígrunduð með tilliti til stefnumörkunar strandsvæðisskipulagsins um öryggi fjarskipta.
Með vísan til sjónarmiða um meðalhóf ákvað ÚUA að ógilda ekki ákvörðun Matvælastofnunar um endurnýjað rekstrarleyfi. Fram kemur í úrskurðarorðum ÚUA að Matvælastofnun eigi að taka til efnislegrar meðferðar að nýju hvort strandsvæðisskipulag Vestfjarða girði fyrir endurnýjun á rekstrarleyfinu.
Sjá úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í heild sinni
Sjá Strandsvæðisskipulag Vestfjarða í vefsjá
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




