4. október 2024

Opnað að nýju fyrir umsóknir um hlutdeildarlán

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Opnað hefur verið að nýju fyrir umsóknir um hlutdeildarlán hjá HMS. Hægt verður að sækja um hlutdeildarlán til og með 21. október með því að smella á þennan hlekk.

Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og standa til boða fyrir fyrstu kaupendur og þau sem ekki hafa átt íbúð sl. fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Lánunum er því ætlað að auðvelda fólki að brúa bilið við fasteignakaup og komast inn á húsnæðismarkaðinn.

Hluti af að­gerð­um stjórn­valda vegna kjara­samn­inga

Hlutdeildarlánin eru hluti af aðgerðum ríkisins til stuðnings fjögurra ára kjarasamningum á vinnumarkaði. Aðgerðirnar styðja við sameiginleg markmið stjórnvalda og samningsaðila um heilbrigðari húsnæðismarkað og fjölskylduvænna samfélag.

Hægt að sækja um til og með 21. októ­ber

Umsóknartímabilið er frá 4. október til og með 21. október. Til úthlutunar fyrir umsóknartímabilið að þessu sinni eru 800 milljónir króna og dugi fjármagnið ekki sem nú er til úthlutunar verður dregið af handahófi úr umsóknum þeirra umsækjanda sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána í samræmi við forgangsreglur.

Í forgangi eru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð liggur fyrir, auk þess sem miða skal við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána veitt til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. Ekki verður hægt að gefa út lánsvilyrði fyrr en allar umsóknir hafa verið yfirfarnar.

Níu millj­örð­um út­hlut­að til 900 íbúða

Frá því að fyrst var byrjað að veita hlutdeildarlán árið 2020 hafa slík lán verið veitt til kaupa rúmlega 900 íbúða og nemur heildarfjárhæð hlutdeildarlána um 9 milljörðum króna. Það sem af er þessu ári hefur 2,7 milljörðum kr. verið úthlutað til alls 219 íbúða. Alþingi samþykkti í sumar að hækka lánsfjárheimild til hlutdeildarlána úr 3 milljörðum í 4 milljarða króna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS