13. maí 2026
15. maí 2026
Meirihluti gildra leigusamninga tímabundinn
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Um 1.300 nýir leigusamningar tóku gildi í leiguskrá í apríl
- Um 52 prósent gildra leigusamninga eru tímabundnir
- Leiguverð er að jafnaði lægra í ótímabundnum leigusamningum
Alls tóku 1.328 nýir leigusamningar gildi í apríl á sama tíma og 1.061 samningur féll úr gildi. Gildum samningum í leiguskrá fjölgaði þannig um 267 á milli mánaða. Í apríl í fyrra tóku 1.466 leigusamningar gildi á sama tíma og 916 samningar féllu úr gildi.
Nýskráðum samningum fækkaði þannig á milli ára, þrátt fyrir að almenn skráningarskylda leigusamninga hafi tekið gildi um áramótin. Samhliða skráningarskyldu tók afskráningarskylda leigusamninga jafnframt gildi, sem gæti að hluta til útskýrt hvers vegna fleiri leigusamningar féllu úr gildi í apríl í ár en í fyrra.
Þetta kemur fram í upplýsingum sem HMS hefur unnið upp úr leiguskrá um miðjan maímánuð en ítarlegri umfjöllun um leigusamninga verður birt í mánaðarskýrslu HMS fyrir maímánuð sem kemur út á fimmtudaginn í næstu viku.
Tímabundnir leigusamningar algengari en ótímabundnir
Leigusamninga má flokka eftir því hvort þeir séu tímabundnir eða ótímabundnir. Tímabundnir leigusamningar hafa fyrir fram skilgreindan lokadag en ótímabundnir samningar falla ekki úr gildi nema annaðhvort leigutaki eða leigusali óski eftir uppsögn samningsins.
Algengara er að gerðir séu tímabundnir leigusamningar heldur en ótímabundnir, en samkvæmt upplýsingum úr leiguskrá HMS í aprílmánuði voru um 52 prósent gildra leigusamninga tímabundnir.
Samkvæmt upplýsingum úr leiguverðsjá HMS var hlutfall tímabundinna leigusamninga um 54 prósent í janúar í fyrra svo að hlutdeild þeirra hefur lækkað á síðustu misserum.
Leiguverð er lægra í ótímabundnum samningum
Leiguverð í ótímabundnum samningum er almennt lægra en í tímabundnum samningum, hvort sem litið er til heildarverðs eða fermetraverðs. Þegar litið er til leiguverðs á tveggja til þriggja herbergja leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu eftir tegund leigusala er meðalleiguverð lægra í ótímabundum samningum þegar leigusali er einstaklingur, hagnaðardrifið leigufélag eða óhagnaðardrifið leigufélag, líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Hið sama gildir ef litið er til fermetraverðs.
Hlutfallslegur munur á heildarverði er mestur í samningum um íbúðir á vegum einstaklinga (13%) en minnstur í samningum um íbúðir á vegum hagnaðardrifinna leigufélaga (4%) en upplýsingarnar eru aðgengilegar í leiguverðsjá HMS.
Heildarverð í ótímabundnum samningum er aftur á móti að meðaltali 6% hærra en í tímabundnum samningum þegar leigusali er sveitarfélag, og fermetraverðið er um 1% hærra. Ólíkt því sem tíðkast almennt eru langflestir leigusamningar um íbúðir á vegum sveitarfélaga ótímabundnir, eða um 80% af þeim sem eru í gildi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




